Frjáls verslun - 01.07.1959, Síða 19
skiptalöndin með hjálp viðskiptasamninga. — í
þeim viðskiptum sparast allur auglýsingakostn-
aður.
Ef vel á að fara, verður hér að koma til
lmgarfarsbreyting beggja aðila — ríkisvalds og
útflutningsfyrirtækjanna — ef ekki á að stefna
öllu atvinnu- og athafnalífi í voða hafta og
ófrelsis. — A meðan núverandi kerfi ríkir í efna-
hagsmálum verður að reikna með hæfilegum
auglýsingakostnaði, þegar um starfsgrundvöllinn
er samið hverju sinni, þannig að auka megi þá
starfsemi verulega frá því sem nú er. Og raunar
verður að fást full viðurkenning á því, að aug-
lýsingakostnaður er eins mikilvægur liður í
rekstrarútgjöldum fyrirtækis og hver annar. —
Það verður einnig að telja til hlutverka ríkis-
valdsins að efla starfsemi sendiráða íslands er-
lendis í þágu útflutningsins, svo og ræðismanns-
skrifstofa, þar sem því verður við komið. — Til
dæmis væri atlnigandi, að sérst.akur verzlunar-
fulltrúi starfaði við hvert hinna helztu sendiráða.
Þá má telja það til hlutverka ríkisvaldsins, að
liðka svo til, að útflutningsfyrirtæki geti auð-
veldlega stofnsett dótturfyrirtæki erlendis og eflt
þannig aðstöðu sína.
Af hálfu útflutningsfyrirtækjanna verður al-
mennt að vænta ákveðnari og meiri sölustarf-
semi, einkum í þeim löndum, sem greiða í frjáls-
um gjaldeyri.
Starf Vörusýninganefndar
Með stofnun Vörusýninganefndar var efnt til
samtaka með ýmsum útflytjendum um þátttöku
íslenzkra aðila í erlendum vörusýningum. —
Nefiidin hefur á undanförnum árum haft for-
g'öngu í þessum málum og beitt sér fvrir þátt-
töku í nokkrum sýningum erlendis. — Að veru-
legu leyti hefur hingað til verið um sameiginleg-
ar Iand- og vörukynningardeildir að ræða, en
sölustarfinu lítt verið sinnt, enda liafa sérstakir
fulltrúar litflytjenda yfirleitt ekki verið við-
staddir á sýningunum í því skyni. — Erfitt er því
að gera sér grein fyrir þeim beina árangri, sem
af þátttökunni hefur hlotizt fyrir útflytjendur,
en landkynning hefur óumdeilanlega verið mikil,
enda deildirnar vel og smekklega úr garði gerðar
— skipulagðar af færum arkitektum.
Hlutverk Vörusýninganefndar er bæði að að-
stoða útflytjendur og aðra aðila, sem taka vilja
„Ég heii mjög mikinn óhuga á því hvert ég íer — líklega
meiri en flestir aðrir."
þátt í erlendum vörusýningum og vera ríkis-
stjórninni til ráðuneytis og skipuleggja opinbera
þátttöku, þar sem hún hefur verið ákveðin. Eðli-
legt virðist og æskilegt að eíla þennan vísi að
samvinnu, sem tekizt hefur milli útflytjenda,
þar sem mikið starf bíður í leit nýrra markaða,
betri hagnýtingu þeirra, sem fyrir eru, o. fl., sem
samvinna getur auðveldlega verið um, enda þótt
samkeppni ríki að öðru leyti um hylli viðskipta-
vinanna. — Það virðist og eðlilegt, að ríkisvald-
ið styðji slíka viðleitni og eíli hana með fjár-
framlögum, sem veitt verði án annarra skilyrða
en venjulegrar endurskoðunar. — Kemur bæði
til greina, það sem nefnt var hér að íraman
um áhrif hins rangskráða gengis á afkomu út-
flutningsatvinnuveganna, og hitt, að það er bein-
línis skylda ríkisvaldsins að efla atvinnulífið
eftir föngum og vinna að viðgangi þess á allan
hátt, án þess að krefjast beinnar íhlutunar í mál-
efni fyrirtækjanna.
Lokaorð
Það skyldi ávallt haft í huga, að vörusýning
er aðeins ein leið af mörgum til auglýsinga og'
sölu; hversu hagkvæm þessi leið reynist er að
sjálfsögðu mikið komið undir því, hvernig vand-
að er til undirbúnings og þátttökn og ekki sízt
því, hvernig fylgt er á eftir með því að nýta
þau viðskiptasambönd, sem unnizt hafa.
Fyrst og' fremst skyldi þess gætt að líta á
vörusýninguna aðeins sem lið í stærri auglýs-
inga- og söluherferð, þar sem jafnframt hefur
verið tekið fullt tillit til þeirra upplýsinga, er
fyrír lig'g'ja um viðkomandi markaðr.
FIIJÁLS VLRZLUN
19