Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Page 25

Frjáls verslun - 01.07.1959, Page 25
Torfi Ásgeirsson, hagfr.: Skoðanakannanir og notkun þairra í þágu atvinnulífsms Hér á landi hafa til þessa verið framkvæmdar fimm skoðanakannanir á landsmælikvarða. Sn fyrsta var gerð á vegum „Helgafells“ árið 1042, mn afstöðu manna til lýðveldisstofnunarinnar. Onnur var gerð á vegum Stórstúku Islands um afstöðu manna til áfengisbanns og sú þriðja og fjórða 10.55 og 1956 um afstöðu almennings til íjölda mála, og um leið til þess að afla upplýs- inga um ýmsa hætti og venjur þjóðarinnar. Nokkrar niðurstöður þessara kannana voru birt- ar í „Nýju Helgafelli“. 1955—1956 var einnig gerð könnun fyrir tvö atvinnufyrirtæki, en nið- urstöður hafa að sjálfsögðu ekki verið birtar, þar sem þær eru eign fyrirtækjanna. Skoðanakannanir hafa undanfarin ár rutt sér mjög til rúms í hinum vestræna heimi. Segja má, að sú tækni, sem nú er notuð, sé upprunnin 1006, en það ár hóf George H. Gallup rannsóknir í Bandaríkjunum á almenningsálitinu með að- ferð, sem við hann hefur verið kennd. Að vísu þekktust skoðanakannanir af ýmsu tagi fyrir þann tíma. Segja má að sérhver at- kvæðagreiðsla sé skoðanakönnun innan þess hóps, sem atkvæði greiðir, og að þjóðaratkvæða- greiðsla sé skoðanakönnun um það, sem atkvæði er greitt. um. Hið nýja í aðferð Gallups var í því fólgið, að lumn, á vísindalegan hátt, sagði til um skoðanir þjóðarheildarinnar (þ. e. a. s. þær skoðanir, sem myndu hafa komið í ljós við þjóðaratkvæða- greiðslu) með því að spyrja tiltölulega fámenn- an hóp manna. Þótt ótrúlegt megi virðast, er margrevnt, að til þess að fá skýra mynd af almenningsálitinu í Bandaríkjunum þarf ekki að spyrja nema 5—6 þusund manns, að því tilskildu, að þessi hópur se rett valinn. Hér á landi myndi eitt þúsund manns nægja. Hér er treyst á lögmál, sem við öll, meira eða minna óafvitandi förum eftir í dag- legu lífi. Við erum alltaf að dæma einhverja heild eftir úrtökum úr heildinni. Til þess að skýra nánar aðferð Gallups skul- um við athuga eftirfarandi dæmi. t poka eru eitt þúsund kúlur, sem allar eru jafnstórar, sumar eru hvítar, aðrar svartar. Pok- inn er hristur vandlega, og við biðjum einhvern um að taka eitt hundrað kúlur upp úr pokan- um. Það kemur nú í ljós, að 25 kúlur eru hvít- ar en hinar svartar, og við drögum þá ályktun, að um það bil einn fjórði af öllum eitt þúsund kúlunum séu hvítar. Auðvitað yrðum við ekki hissa, el' nákvæm talning leiddi í Ijós, að hvítu kúlurnar væru ekki nákvæmlega 250, en t. d. 256 eða 240. Á hinn bóginn myndi það þykja undarlegt, ef þær reyndust aðeins eitt hundrað. Við mundum þá álíta, að annaðhvort hefði þeim ekki verið nógu vel blandað áður en dráttur fór fram, eða þá, að sá, sem kúlurnar dró í úr- takið, hafi, vitandi eða óafvitandi, valið úr. I þessu dæmi er tæpt á þremur aðalvanda- málunum við úrtaksaðferðina, og um leið bend- ir dæmið til þess hvernig leysa megi vandamál- in. í fyrsta lagi þarf að gera sér grein fyrir því, hve svarið þarf að vera nákvæmt en það ákvarð- ar aftur hve úrtakið þarf að vera stórt. 1 öðru lagi þarf að „blanda vel“ og í þriðja lagi þarf að tryggja að „ekki sé gægzt í pokann.“ Skoðanakönnun fyrir atvinnufyrirtæki Segjum að forstöðumaður málningarverk- smiðju hafi ákveðið að hefja auglýsingaherferð l'yrir nýrri tegund málningar. Hvort á hann að beina skeytum sínum til málaranna eða til íbúð- areigendanna? Að verulegu leyti er það háð því, hverjir myndu koma til með að nota hina nýju málningu. Hann þarf því að vita, hve mikill FHJALS VERZLUN 25

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.