Frjáls verslun - 01.11.1959, Blaðsíða 19
Rosario er næststærsta borgin með 700 þús. íbúa,
en það er lítið á móti höfuðborginni, sem hefur 3%
millj. íbúa, og í Stór-Buenos Aires (þá eru útborgir
taldar með) búa 5 milljónir, eða fjórði hver íbúi
landsins.
Mesópótamía
Héraðið liggur milli Paraná og Uruguay. Þar er
raki töluvert meiri, en á stóru sléttunni, og sunnan
til er mikið ræktað af hrísgrjónum. Norðar er víða
mjög votlent, og er þar stunduð nautgriparækt.
En í landsskikanum, er gengur milli Paraguay og
Brasilíu eru miklir skógar og þaðan kemur mest
af því timbri, sem notað er í landinu.
Chaco
Þar er eins konar hitabeltisloftslag, þar sem
skiptast á þurrka- og úrkomutímabil. Nokkur
baðmullarrækt er í héraðinu og norður við landa-
mæri Bólivíu er allstórt olíulindasvæði, Campo
Duran.
„Norðvestrið"
Þetta hérað liggur að verulegu leyti í Andesfjöll-
unum. Landbúnaður er nokkur, einkum syðst, en
þar er ræktaður sykurreyr. Annars er héraðið held-
ur strjálbýlt og lífskjör margra íbúanna bágborin.
Allmikil vinna er við námugröft, en í fjöllunum
finnst: tin, gull, borax og brennisteinn.
Cuyo
Hálendasti hluti Andesfjalla liggur í þessu héraði,
þar á meðal Aconcagua, sem er um 7000 m á hæð
(mælingum ber ekki alveg saman) og hæsti tindur
í Ameríku. Upphaflega var hálfgerð eyðimörk við
fjallaræturnar, en henni hefur víða verið breytt í
ræktað land með áveitum er nýta leysingarvatn úr
fjöllunum. Er margt ræktað þarna, svo sem vín-
viður, ólívur og alfa alfa. En sauðfjárræktin bygg-
ist á sumarbeitilöndum í fjöllunum. I bæjunum
er mikið um brugghús, og olíulindir í suðurhluta
héraðsins hafa leitt til aukinnar iðnvæðingar.
„HæSa- og sléttuhéraSið''
Þarna er landslag mjög breytilegt eins og nafnið
bendir til. Landið er yfirleitt þurrt og illa fallið
til ræktunar, og þar er því fremur strjálbýlt. Naut-
Öll vesturlandamæri Argentínu liggja að Chile, norðurlanda-
mærin að Bólivíu og Paraguay og austurlandamærin að Para-
guay, Brasilíu og Urúguay. Fyrir sunnan Buenos Aires, eða
La Plata-flóann, liggur Argentína að Atlantshafinu.
Syðsti hluti Argentínu, Eldlandseyjar, nær álíka langt suður
eins og Þýzkaland nær norður og nyrzti hluti landsins nær norð-
ur fyrir hvarfbaug steingeitarinnar, ssm samsvarar landsvæði á
norðurhveli jarðar er nær suður fyrir hvarfbaug krabbans, t. d.
miðhluti Sahara-eyðimerkurinnar.
FRJÁLS VERZLUN
19