Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1960, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.06.1960, Blaðsíða 5
Valdimar Kristinsson: Fræðslukeríið, atvinnuvegirnir og efnahagur þjóðarinnar Margir hafa orðið til að gagnrýna íslenzka frœðslukerfið, sem lögleitt var fyrir nær hálfum öðrum áratug. Að sjálfsögðu mun menn alltaf greina á um svo víðtækt og mikilsvert málefni sem fræðslukerfi heillar þjóðar. En flestir munu geta fallizt á, að ýmislegt af áðurnefndri gagnrýni, sé á veigamiklum rökum reist og því sé endur- skoðunar þörf hið fyrsta. Lengd og fyrirkomulag skyldunámsins hefir hvað mest verið gagnrýnt, svo og landsprófið og tengsl gagnfræðaskólanna og menntaskólanna. En um þessi atriði verður ekki rætt hér. — Að undan- förnu hafa margir orðið til að gagnrýna fræðslu- kerfið á nokkuð annan hátt en áður hefur verið gert. Þessir menn halda því fram, að nám á íslandi sé að jafnaði í allt of litlum tengslum við atvinnu- vegina og kennslufyrirkomulagið að ýmsu leyti mjög úrelt. Sé þessi gagnrýni réttmæt og verði herini þó ekki sinnt, þá er hvorki meira né minna en framtíð þjóðarinnar í veði. Til hvers er verið að halda uppi skólakerfi — til hvers er miklum hluta mannsævinnar eytt í skólanám? Mörgum mun þykja fávíslega spurt; auðvitað sé verið að búa börn og unglinga undir framtíðina. En er ekki ómaksins vert að hugleiða svarið nokkru nánar? Að búa undir framtíðina getur einkum verið í því fólgið að kenna ýmislegt, sem beint eða óbeint mun koma að haldi við fram- tíðarstörf, svo og að kenna einstaklingunum að lifa heilbrigðu menningarlífi. Kröfur um betri lífskjör Menningarmálin ber að meta mikils, en fyrir alla venjulega borgara er liitt þó mikilvægara, sem snertir afkomu þeirra, enda er það undirstaða til- vcrunnar. Menn skiptast í stjórnmálaflokka og hagsmunasamtök, að verulegu leyti eftir skoðunum og aðstöðu í sambandi við það hvernig skipta skuli þessa heims gæðum milli borgaranna. í lýðræðis- ríkjum nútímans er eytt mikilli hugsun og orku í sambandi við þetta vandamál. Enda eru menn stöðugt í „kröfugöngum“, bæði í eiginlegri og óeig- inlcgri merkingu. Og menningarfrömuðirnir og lista- mennirnir virðast flestir hverjir sízt eftirbátar ann- arra, enda er það ekki lengur í tízku að svelta fyrir list sína. Miklar kröfur eru jafnan gerðar til þjóðfélagsins og ,,annarra“ stétta, hverjar sem þær nú eru í það og það skiptið. Allir ættu að geta verið sammála um, að róðurinn yrði léttari, ef meira yrði til skiptanna. Þó að ágreiningsefnin séu mörg, þá eru aukin af- köst, eða réttara sagt meiri framleiðni, sameigin- legt hagsmunamál þjóðarinnar. Nú er hæfni einstaklinganna að jafnaði aðal- atriðið, sem framfarirnar verða að byggjast á, og því hljóta fræðslumálin að hafa mjög mikil áhrif á framþróunina í hverju þjóðfélagi. Mannlífið tek- ur nú svo örum breytingum, að þær eru meiri á hverjum áratug, en oft um aldir áður. Tilveran verður stöðugt flóknari og æ meiri kunnáttu er krafizt af þeim, sem vilja fylgjast með. íslenzka þjóðin vill fylgjast með, á því er enginn vafi. Það sýna kröfurnar, og þær eru því miður oft meiri en afköstin. Menn vilja fá ný hús, nýjar vélar og meiri þægindi. En skólakerfið, sem á að búa undir lífið í nútíð og framtíð, er jafnvel að sumu leyti byggt á miðaldaaðstæðum. Hér skortir eitt- hvað á samræmi. Vegna liinna öru breytinga ætti það að vera föst venja að endurskoða kennslumálin á hverjum áratug. Hér á eftir verður ekki rætt um fræðslumálin í heild, heldur aðeins vikið að þremur þáttum þeirra. Fyrst verður minnzt lítillega á iðnfræðsluna og nauðsyn þess að bæta hana og auka, því næst FRJ Á LS VERZLUN 5

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.