Frjáls verslun - 01.06.1960, Blaðsíða 31
Verzlunarbanki Islands fekur til starfa vorið 1961
Stjórn Verzlunarsparisjóðsins boðaði til fundar
ábyrgðarmanna Verzlunarsparisjóðsins hinn 14.
júní sl. í því skyni að ræða stofnun verzlunar-
banka. Form. stjórnar sparisjóðsins, Egill Gottorms-
son stórkaupmaður, hafði framsögu um málið.
llakti hann í stórum dráttum aðdraganda að laga-
setningu um Verzlunarbanka íslands h. f. og með-
ferð málsins á Alþingi. Jafnframt skýrði hann ein-
staka þætti laganna. Hann færði Alþingi og ríkis-
stjórn þakkir fyrir þann ríka skilning, sem komið
hefði fram á hagsmunamálum verzlunarstéttarinn-
ar í sambandi við setningu laganna um bankann.
1 lok ræðu sinnar lagði hann fram svofellda tillögu,
sem flutt var af stjórn Verzlunarsparisjóðsins og
formönnum Verzlunarráðs íslands, Kaupmanna-
samtaka íslands og Félags ísl. stórkaupmanna:
„Með vísun til laga nr. frá 10. júní 1960 um
Verzlunarbanka Islands h. f., samþykkir aulcafund-
ur ábyrgðarmanna Verzlunars'parisjóðsins, haldinn
í Sjálfstœðishúsinu 1\. júní 1960, að neyta heimild-
ar laganna um stofnun Verzlunarbanka íslands h.f.
Jafnframt samþykkir fundurinn, að Verzlunar-
banki Islands h.f. skuli taka við öllum eignum,
skuldum og ábyrgðum Verzlunarsparisjóðsins og
starfsemi hans, og koma að öllu leyti í hans stað.“
Nokkrar umræður urðu um tillöguna og fögnuðu
ræðumenn lagasetningunni um verzlunarbankann,
en að umræðum loknum var tillagan borin undir
atkvæði og var hún einróma samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
í lok fundarins var leitað eftir hlutafjárloforð-
um meðal fundarmanna og skráðu þeir sig fyrir
hlutafjárloforðum að upjdiæð 4,3 rnillj. króna, en
gert er ráð fyrir að hlutafé bankans verði eigi minna
en 10 milljónir króna. Núverandi ábyrgðarmenn
Verzlunarsparisjóðsins hafa forgangsrétt til þess að
ski-ifa sig fyrir hlutum í bankanum og gildir sá rétt-
ur þeirra í 6 mánuði. Að hlutafjársöfnun lokinni
verður boðað til stofnfundar bankans og er gert
ráð fyrir, að hann taki formlega til starfa að lokn-
urn næsta aðalfundi Verzlunarsparisjóðsins, sem
haldinn verður í marzmánuði næstkomandi.
Á fundinum voru mættir um 180 ábyrgðarmenn
Verzlunarsparisjóðsins, en alls eru ábyrgðarmenn
hans 310 talsins.
★
Verzlunarsparisjóðurinn hefur frá upphafi vcrið
til húsa í Hafnarstræti 1, en flytur um næstu ára-
mót í Bankastræti 5. Og þar verður Verzlunar-
banki Islands starfræktur næstu árin. Þess má geta,
að núverandi stjórn Verzlunarsparisjóðsins hefur
þcgar hafið undirbúning að áætlun um byggingu
bankahúss á lóð sparisjóðsins að Vesturgötu 2, en
ekki er enn tímabært að greina nánar frá því máli.
Myndir teknar í sambandi viS afgreiSslu verzlunarbankamálsins
Sigurður Ó. Ólafsson, forseti efri deildar, Gylfi Þ. Gíslason, bankamálaráðherra, Forseti íslands staðfestir lögin um Verzl-
afgreiðir frumvarpið, sem lög frá Alþingi undirritar lögin unarbanka íslands
FBJÁLS VERZLUN
31