Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1961, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.09.1961, Blaðsíða 6
tíma til flutninga á afurðum og vörum til rekstrar- ins, og jafnframt bræðslunni höfðu þeir bræður eig- in síldarsöltun þarna svo sem fyrr segir. Af kunnáttumönnum í síldariðnaði, er störfuðu þarna, auk Brobakkes, má nefna Arnfinsen vél- stjóra, P. Vaaren og Knut Sether, verkstjóra, sá síðastnefndi með ársbúsetu sem eftirlitsmaður hér austan fjarðarins. Mannvirki Evangers voru stór um sig og einkar myndarleg. Geymslu- og íveruhús fyrir starfsmenn voru rammbyggð bjálkahús í norskum st.il. Bræðsla þessi var virt á fjórðung milljónar, hús, vélar og tæki, og var það geysihá upphæð á þeirn lággengis- tímum, er hún var reist á, en ekki hcfi ég getað fengið í hendur þá matsgjörð, þótt fróðlegt hefði verið á fá glöggt yfirlit um hin ýmsu tæki og mats- verð þeirra. Ofurlítið þorp myndaðist þarna austan fjarðarins, og þessi byggð þarna neðst á Staðarhólsengi var hin mesta prýði bæjarins, blasti beint við eyrinni, og setti einkar reisulegan svip á hinn ört vaxandi Siglufjörð. Margir eldri Siglfirðingar minnast þess hve lífvænlegt var að líta austur yfir fjörðinni á kyrr- um síðsumarkvöldum, þegar tekið var að rökkva, og þar gat að líta stórhýsi Evangersbræðra og ljóshafið frá því blika á lognsléttum firðinum, en gráhvítur gufumökkurinn úr þurrkurunum steig hátt í loft upp og hnyklaðist upp eftir fjallinu, þar til eimyrjan dreifði úr sér uppi undir Skolla- skál, — kvosinni, — er varð örlagabikar þessa fyrir- tækis. Þessi bræðsla var reist með það fyrir augum að hún gæti staðið þarna um áratugi. En fáa mun hafa grunað, eða þá ekki sinnt um þá hættu er vofði yfir þessum myndarlegu mannvirkjum. Og á bjart- sýnisárum eru menn fljótir að gleyma og hlusta ógjarnan á varúðartal gamalla manna. Og það geta liðið margir áratugir á milli þeirra náttúruhamfara er snjóflóð nefnast. En veturinn 1919 var mjög snjóþungur og þann 12 apríl féll snjóflóð mikið úr Skollaskál í Staðar- holsfjalli og olli gífurlegu tjóni á mönnum og mann- virkjum. Flóðið sópaði með sér verksmiðjuhúsinu og íveru- og geymsluhúsum og miklum birgðum af tómum síldartunnum og einum þúsund áfylltum lýsisfötum, langt út á fjörðinn, en síldarþrær og steyptar undirstöður húsanna stóðu einar eftir. Snjóflóð þetta náði allt suður að Ráeyri og varð níu manns að fjörtjóni. Meðal þeirra er fórust var eftir- litsmaðurinn Knut Sether og kona hans. Jón Jóhannesson málflm. og fræðimaður í Siglu- firði samdi skilmerkilega ritgerð um þessar miklu náttúruhamfarir og birti hana í tímaritinu Grímu, 18. árg., og vísast til hennar fyrir þá, er vilja vita nánari skil á þessum örlagaríka atburði. Olaf Evanger hafði á eigin spýtur rcist litla síldar- stöð nokkru áður, sunnar á þessu svæði, nær Ráeyri, en hún eyddist og í þessu flóði. Bræðsla Evangersbræðra var ekki endurbyggð, en 1922 komu þeir bræður aftur á fornar slóðir og reistu síldarstöðina að nýju og komu upp lifrar- bræðslu og íveruhúsum. Olaf sá þar um mikla síldarsöltun í mörg ár og firma þeirra reisti síldar- verksmiðjur á Dagverðareyri og á Raufarhöfn, þær bræðslur seldu þeir svo nokkru síðar, og eru þær utan við ramma þessarar greinar. Löngun þeirra bræðra að reisa að nýju verksmiðju hér í Siglu- firði brann jafnan í þeim, en minningin um reiðar- slagið mikla hamlaði því að meiri háttar mannvirki risu að nýju á sjávarbökkum Staðarhólsengis. Þeir gerðu tilboð í ltoaldsstöðina á sínum tíma og höfðu í liuga nýja bræðslu, en tilboð Gustavs var of lágt, aðrir hrepptu þá eign. Þetta telur Olaf að hafi orðið þeim dýr mistök. Olaf Evanger og A. Brobakke cru nú líklega einir á lífi (1961), þeirra manna, cr vorn hér frumherjar í sildinni á fyrsta tug aldarinnar. Ég hef átt ánægjuleg bréfaskipti við Olaf um rekstur þeirra bræðra hér í Siglufirði og í Norcgi og orðið fróðari af, og nýt ég þess að þcir voru hér góðir vinir föður míns. Olaf var sá yngri þeirra, fæddur 1887, og því innan við tvítugt er hann kom hingað til að gegna ábyrgðarstörfuin. Eg hefi getað sannprófað margar af frásögnum hans og verð að undrast hið góða minni hans og áreiðanleik í með- ferð heimilda. Fyrirtæki þeirra bræðra i Eggesbönes fór halloka á árum heimskreppunnar. Gustav fluttist til Ný- fundnalands, og þar starfaði hann og lézt þar 1954, varð 73 ára. Brobakke er á lífi, er þetta er ritað, 78 ára, en er nú hættur störfum sakir aldurs. Olaf fluttist til Danmerkur 1933 og setti upp lifrar- bræðslu í Esbjerg og keypti og seldi fiskafurðir. Þetta gekk allvel, en fyrir nokkrum árum seldi hann eign sína og hætti starfi þessu sakir aldurs. Hann á nú búgarð og hefir ofurlitla garðyrkju sér til hugarhægðar. Hann var síðast við störf hér í Siglufirði sumarið 1933. Bróðir þeirra Gustavs og Olafs, fyrrum sjómaður, og ógift systir þeirra hafa rekið verzlun og skipaafgreiðslu í húseignum fjöl- skyldunnar í Eggesbönes, en verksmiðja og vöru- 6 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.