Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1961, Page 35

Frjáls verslun - 01.09.1961, Page 35
y Athglnarnenn og frjólst framtak y Þorvaldur Guðmundsson Þorvaldur Guðmundsson er fæddur 9. desember 1911 í Holti undir Eyjafjöllum. Foreldrar hans voru Katrín Jónsdóttir og Guð- mundur Sveinbjörnsson. Þorvald- ur var á fyrsta ári, þegar hann fluttist til Reykjavíkur, og hefur hann átt heima þar síðan. Fyrsta vinna Þorvaldar við verzlun hófst með sendisveins- starfi hjá Matvöruverzlun Tóm- asar Jónssonar, en síðar varð hann „innanbúðarmaður“ hjá Tómasi. Þorvaldur stundaði nám í Verzlunarskóla íslands á árun- um 1926—’28. Síðan tóku við ýmis störf hjá Sláturfélagi Suð- urJands, m. a. við verzlunarstjórn, fram til ársins 1935. Það ár fór Þorvaldur til Þýzkalands til náms í niðursuðu, enda hafði hann um tíma unnið við niðursuðu mat- væla hjá Sláturfélaginu. Eftir heimkomuna frá náminu í Þýzkalandi, seint á árinu 1936, réðist Þorvaldur til Fiskimála- nefndar, sem sérfræðingur hennar í niðursuðu. Var þá gerð fyrsta og eina tilraunin hér á landi með niðursuðu á þorski, — var hann seldur til Ítalíu. Næsta verkefni Þorvaldar á vegum Fiskimála- nefndar var að skipuleggja fyrstu rækjuverksmiðju á landinu, sem komið var upp á ísafirði. Sá hann hver í eyrað á öðrum, engin stjórn og engin samtök, svo að oft liggur við að bátnum hvolfi. Vér íslend- ingar þurfum að Iæra að vinna; sumir þurfa að læra að skipa fyrir um vinnu; aðrir að þegja og hlýða. síðan um rekstur hennar um eins og hálfs árs skeið. Þegar fram- leiðslan á niðursoðnum rækjum var komin í gott horf, var Þor- valdur sendur til markaðsleitar í Danmörku, Frakklandi, Belgiu og fleiri löndum. Hefur rækja vcrið seld héðan á hverju ári síðau. Þorvaldur sá einnig um upp- setningu rækjuverksmiðju á Bíldu- dal, en svo þegar ákveðið var, að Sölusamband íslenzkra fiskfram- leiðenda reisti niðursuðuverk- smiðju í Reykjavík var hann ráð- inn til að veita henni forstöðu. Sú verksmiðja tók til starfa 1938, — var þar mikill rekstur og reynd- ar ýmsar nýjungar. Þegar mest var að gera, unnu alls 130 manns við verksmiðjuna. Þorvaldur stjórnaði niðursuðuverksmiðjunni til ársins 1944, er hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, „Síld og fisk“. „Síld og fiskur“ var upphaflega fyrst og fremst fiskbúð, og var þar selt mikið úrval fiskmetis. En einnig var seldur þar tilbúinn væizlumatur og smurt brauð, sem sent var út um bæinn. Smárn sam- an þróaðist fyrirtækið á þann veg, að hafa fyrst og fremst með kjöt- vinnslu og kjötsölu að gera. Um tíma var rekin matsala í sambandi við verzlunina, en húsnæði mat- sölunnar hefur fyrir löngu verið tekið undir kjötvinnslu. Auk að- alverzlunarinnar, að Bergstaða- stræti 37, rekur fyrirlækið nú þrjú útibú. Árið 1954 lét Þorvaldur reisa svínabú á Minni-Vatnsleysu, sem er langstærsta svínabú landsins. Einnig cru ræktaðar þar Peking- endur, sem seldar eru á innan- landsmarkaði eingöngu. Þorvaldur tók við rekstri Þjóð- leikhúskjallarans árið 1951 og hef- ur rckið hann síðan. Veitingahús- ið Lido stofnaði hann 1958 og rek- ur það cinnig. Á sl. ári var Þorvaldur feng- inn til ráðuneytis í sambandi við innréttingu hótels í „Bændahöll- inni“, sem er í smíðum á Melunum í Reykjavík. Standa vonir til, að þetta hótel geti tekið til starfa á næsta ári, — verður þar rúm fyrir 150 rnanns í 90 gistiherbergj- um. Þorvaldur Guðmundsson liefur verið í stjórn Kaupmannasamtak- anna, í stjórn Félags ísl. kjötkaup- manna og í Verzlunarráði íslands í nokkur ár. Hann var í stjórn Verzlunarsparisjóðsins frá byrjun og liefur síðan verið í bankaráði Verzlunarbanka íslands h. f. frá stofnun hans. Kona Þorvaldar er Ingibjörg Guðmundsdóttir. Eiga þau þrjú börn: Geirlaugu, sem er við nám í Háskóla íslands, Skúla, sem stundar nám við Verzlunarskóla íslands, og Katrínu, sem er barn að aldri. FRJALS VERZLUN 35

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.