Frjáls verslun - 01.01.1964, Blaðsíða 9
Súkarnó — óábyrgasti þjóðarleiStogi heims
tekur nú spor aftur á bak í málefnum þessara
landa. Castró-íta er alls staðar að finna og þeir
kunna að notfæra sér þau tækifæri senr bjóðast.
Annars er erfitt að sjá hvernig Bandaríkjamenn
ætla að komast hjá því að koma að einhverju
leyti til móts við Panamastjórn í deilumálum þeirra,
eftir þá afstöðu sem hún tók í Súez-deilunni 1956.
Stefnan gagnvart þessum löndum hlýtur að vera
sú að efla menntun og hagsæld fjöldans þótt það
kunni að verða á kostnað hinna fámennu auðstétta
þessara landa. Jafnframt verða Bandaríkjamenn að
sjálfsögðu að virða fullkomlega sjálfstæði þessara
landa eins og þeir raunar hafa gert og koma til
móts við réttmætar kröfur þeirra, t. d. í Panama-
málinu, sem þeir hafa ekki gert.
í Suðaustur-Asíu virðast púðurtunnur á hverju
leiti. Nú er það komið í Ijós, sem raunar hver heil-
vita maður átti að geta skilið, að stríðið í Suður-
Vietnam yrði ekki unnið með því að drepa Diem
og hrekja Madame Nhu frá völdum. Að því er
fregnir herma gengur baráttan gegn Vietkong enn
verr en áður. Það er aldeilis ótrúlegt hvað Banda-
ríkjamenn geta verið skammsýnir og auðtrúa oft
og tíðum og ekki annað að sjá en andúð banda-
rískra blaðamanna í Saigon á Madame Nhu og
það almenningsálit sem skapaðist í Bandaríkj-
unum af þeim sökum, hafi orðið stjórn Diem
að falli. Þeir virðast nú fá ávöxt. erfiðis síns, sem
að því unnu.
t Tndónesíu ríkir nú ábyrgðarlausasti þjóðarleið-
togi, sem uppi er í heiminum í dag. Hann notar
hina 100 milljóna þjóð sína eins og leikfang og
girnist ný lönd. Með hótunum og gífuryrðum hefur
hann þegar haft hollenzku Nýju Gíneu af Hollcnd-
ingum (með hjálp Bandaríkjamanna). Nú virðist
hann ætla að leika sama leikinn gagnvart hinu
nýja ríki Malaysiu.
í þessum heimshluta gæti auðveldlega brotist út
styrjöld á þessu ári, því fremur sem Bandaríkja-
stjórn virðist að einhverju leyti taka málstað
Súkarnó.
í heild sinni má búast við sæmilegum friði milli
stórveldanna á þessu ári og ef til vill auknu sam-
komulagi þeirra á milli í kjölfar tilraunabannsins,
en óróa, stjórnarbyltingum og öðrum slíkum óþæg-
indum meðal þróunarlandanna.
SG
GuSmundur Jörundsson
Framhald af bls. 7
um til Reykjavíkur og stjórnar þar nú bækistöðv-
um fvrirtækja sinna, og hefur ennfremur rckið lirað-
frystihús á Kirkjusandi sl. fjögur ár.
Kona Guðmundar er Marta Sveinsdóttir (bónda
á Látraströnd Jóakimssonar og Þórunnar Krist-
jánsdóttur). Eiga þau fimrn börn, sem öll eru í
skóla, elzt sonur þeirra, Sigurður, er í Stýrimanna-
skólanum.
ILelzta áhugamál Guðmundar í tómstundum er
spíritismi. ITefur hann tekið virkan þátt í sálar-
rannsóknafélögum í mörg ár, var stofnandi Sálar-
rannsóknafélags Akureyrar og formaður þess á með-
an hann var þar búsettur, en síðan verið í Sálar-
rannsóknafélagi ísland^ i Reykjavík,
0
KRJÁL9 VERZLUN