Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1965, Side 4

Frjáls verslun - 01.05.1965, Side 4
inu og skiptingu þeirra eftir þjóðerni ásamt skýrsl- um um greiðslujöfnuðinn. Hins vegar skortir mjög upplýsingar um notkun á afkastagetu þeirrar að- stöðu, sem erlendum ferðamönnum er boðin, ásamt kortlagningu um það, hvert þeir stefna för sinni um landið, og hve lengi þeir dveljast á hverjum stað, og hvaða samgöngutæki þeir noti. Ætti að vera auðvelt að afla ýmissa þessara upplýsinga og ber brýna nauðsyn til, að þeir aðilar, sem hlut eiga að máli geti kannað markaðinn og gert fram- tíðaráætlanir í samræmi við þær niðurstöður. Þýð- ingarmiklar niðurstöður mætti t. d. fá með skoð- anakönnun meðal ferðamannanna sjálfra við brott- för af landinu, t. d. um Iengd dvalar, kostnað, ástæð- ur fyrir komu, ásamt áliti um vandamál og óskum um breytingar. Straumur ferðamanna til íslands hefst seinna en til nágrannalanda okkar. Þannig verður hér ekki vart þeirrar bylgju, sem áður er getið og reis strax að styrjöldinni lokinni. Vaxandi ferðamannastraums hefur hins vegar gætt hér síðustu tíu árin, og má þar merkja áhrif síðari bylgjunnar, enda einkenn- ist hún af ferðamönnum frá Evrópu. Fjöldi ferðamcmna á tímabilinu 1950—1964 Á yfirliti yfir tímabilið frá 1950—1964 (tafla I) má rekja þessa þróun. Lagður er t.il grundvallar flutningur útlendra farþega til íslands, bæði með skipum og flugvélum. Við notkun þessara talna ber að hafa í huga, að þær fylgja ekki nákvæmlega þeirri skilgreiningu á hugtakinu erlendur ferðamað- ur, sem áður er getið. Hér eru taldir saman allir þeir útlendingar, sem koma til landsins, og hafa viðdvöl eina nótt eða lengur, án tilgangs dvalarinnar. Þá eru farþegar á skemmtiferðaskipum ekki taldir með. TAFLA I. Flutningur útlendra jarþega til Islands 1950—196If. Með skipum Með jlugv. Samtals 1950 1.734 2.649 4.383 1951 2.000 2.084 4.084 1952 2.364 2.459 4.823 1953 1.514 4.866 6.380 1954 2.221 4.622 6.843 1955 2.838 6.636 9.474 1956 2.990 6.527 9.517 1957 2.772 6.507 9.279 1958 2.785 7.326 10.111 1959 3.275 9.021 12.296 1960 2.894 9.912 12.806 1961 2.617 10.899 13.516 1962 2.672 14.577 17.249 1963 2.800 14.775 17.575 1964 3.157 19.812 22.969 þessum fimmtán árum hefur tala crlendra ferðamanna hingað rúmlega fimmfaldazt, aukizt úr 4.383 árið 1950 í 22.969 árið 1964. Ekki hefur þróunin þó verið jöfn yfir tímabilið og er lang hröð- ust og vaxandi síðasta hluta þess. Má af töflunni glöggt rekja vaxandi ferðamanna- straum síðustu árin. Sé litið á síðustu 10 árin sem eina heild, er aukningin 142% eða 14,2% að meðal- tali. Nokkrar sveiflur hafa verið frá ári til árs og má þær m. a. rekja til ástandsins i gjaldeyrismál- um, en óþarft er að rekja, að eftirspurn eftir þeirri þjónustu, sem veitt er fcrðamönnum, er teygin með tilliti til gengis gjaldmiðilsins, hvort sem um er að ræða formlega eða óformlega skráningu hins raun- verulega gengis. Hina miklu aukningu á tímabilinu 1960—1964, má þannig beinlínis rekja til þess hve hagstæðara var fyrir erlenda ferðamenn að koma hingað til lands eftir gengislækkun íslenzku krón- unnar 1960. Á sama hátt má álykta að þróunin hefði orðið örari, ef við hefðum fyrr búið við rétt skráð gengi. Annar þýðingarmikill þáttur í þessari aukn- ingu eru auglýsingar íslenzkra aðila erlendis, eink- um íslenzku flugfélaganna, en þau liafa aukið mjög og skipulagt auglýsingastaHsemi sína í kjölfar end- uruppbyggingar flugflotai.s síðasta áratuginn. Skiptingin á samgöngutæki í flestum ferðamannalöndum er um fjórar höfuð- greinar samgöngutækja að ræða, j). e. skip, flugvél- ar, járnbrautir og bifreiðir. Hér verður af náttúr- legum ástæðum aðeins tveim þeinr fyrstnefndu við komið. Það er hins vegar athyglisvert, að þegar í upphafi áðurgreinds tímabils hefur flugið yfirhönd- ina, og hefur haft allan tímann, og aukningin í flutn- ingunum nær öll komið fram í fluginu. Skiptingin þar á milli hefur verið sem hér segir: Skip Flugvélar Árið 1950 40% 60% Árið 1955 30% 70% Árið 1960 23% 77% Árið 1964 14% 86% Þessu er til skýringar hin mikla aukning flugflot- ans og átak flugfélaganna á meðan flutningsgeta 4 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.