Frjáls verslun - 01.05.1965, Blaðsíða 16
Pál). Jón Pioppé, mágur
hans, og Björn. — Myndin
er tekin í Þjórsárdal á ierða-
lagi 1935
— Síðar lét Páll rífa Melsteðshús, og byggði
stórhýsi á þeirra tíma mælikvarða við Lækjartorg.
Var það verzlun og tvær hæðir fyrir ofan, og voru
skrifstofurnar þar til húsa. Páll seldi Útvegsbank-
anum eignina árið 1935, að mig minnir, og keypti
þá stóra lóð að Hverfisgötu 103. Þar byggði Iiann
hús fyrir skrifstofur og varahlutaverzlun.
— Páll var eins og margir vita fyrsti umboðs-
maður Ford-verksmiðjanna á íslandi, en síðar hætti
hann því umboði. Við seldum marga Fordbíla og
varahluti til þeirra.
— Páll gat oft verið hnyttinn, og fór oft sögum
af tiltektum hans. Páli var þannig mjög í nöp við
templara og stórstúkuna. Ég man í janúar 1924
kom ég utanúr bæ eftir að hafa verið í innheimtu,
og rakst ég þá á mann með fregnmiða, sem Páll
hafði látið prenta sérstaklega. Stúkan átti um þess-
ar mundir stórafmæli, og voru mikil hátíðahöld
um land allt, m. a. í Reykjavík. Fór þá skrúð-
ganga um bæinn, og samtök voru um að kaup-
menn lokuðu þennan dag.
— Á þessum fregnmiða Páls voru ýmis vel valin
orð um stúkuna og templara, og jafnframt yfir-
lýsing um að hann myndi ekki loka verzlun sinni
ie
FRJÁL.8 VBRZLTJN