Frjáls verslun - 01.05.1965, Blaðsíða 15
Páll Stefánsson — sérkennilegur
dugnaðarmaður
Spjallað við Björn Þorgrímsson og Egil Guttormsson
Vegna hinnar stórhöfðinglegu dánargjafar Páls
Stefánsson frá Þverá og konu hans, sera hér er að
framan lýst, átti Frjáls verzlun stutt viðtöl við tvo
menn, sem þekktu Pál heitinn vel, en hann var
um margt maður sérkennilegur, og setti á sínum
tíma svip sinn á Reykjavík. Mennirnir eru Björn
Þorgrímsson, sem starfaði hjá Páli Stefánssyni í
liðlega þrjá áratugi og var hans hægri hönd, og
Egill Guttormsson, stórkaupmaður, sem var vel
kunnugur Páli.
32 óra starf
— Ég vann hjá Páli Stefánssyni í 32 ár, eða frá
3. september 1919 til ársins 1951, er Páll seldi fyrir-
tæki sitt nokkrum mönnum, sagði Björn Þorgríms-
son, er við hittum hann að máli á heimili hans að
Grettisgötu 67. — Árið 1951 gerðist Kristján Karls-
son, fyrrum bankastjóri íslandsbanka, verzlunar-
stjóri við fyrirtækið og gegndi þeirri stöðu í eitt ár,
en þá seldu hinir nýju eigendur fyrirtæ.kið aftur,
og keypti þá Sigfús Bjarnason, forstjóri í Heklu,
fyrirtækið að Hverfisgötu 103. Sigfús er einn bezti
maður, sem ég hefi þekkt um dagana, framkvæmda-
maður mikill og hamhleypa til allra verka.
— Það var fyrir milligöngu Vilhjálms Knudsens,
föður Ósvaldar Knudsen og móðurbróður míns, að
ég fékk vinnu hjá Páli Stefánssyni, en Vilhjálmur
var vel kunnugur Páli. Páll kom svo suður til
Keflavíkur, þar sem ég var þá, til þess að líta á
gripinn og ræða við mig. Talaðist svo um að ég
hæfi hjá honum vinnu þá um haustið, og úr þessu
varð hin langa dvöl mín hjá Páli Stefánssyni.
— Ég var lengst af fulltrúi hjá Páli, en hann fór
oft utan i verzlunarerindum og þurfti þá að hafa
mann fyrir sig við fyrirtækið. Einn starfsmaður
var fyrir hjá Páli, er ég hóf starf mitt hjá honum.
Var það Sigurður Sigurz, og hafði hann byrjað að
vinna hjá Páli nokkru áður en ég kom. Sigurður
hætti störfum hjá Páli nokkru eftir að ég réðist til
fyrirtækisins.
— Árið 1920 réðist til Páls Bjarni Bjarnason,
og vorum við Bjarni samstarfsmenn hjá Páli í
rúm 30 ár. Bjarni er nú að verða áttræður, en ég
á 80. aldursári. Ég hef verið blindur sl. 10 ár, en
segja má að svo megi illu venjast að gott þyki.
— Páll StefáiMson var ákaflega hreinn og beinn
maður. Iíann sagði sínar skoðanir hreint út, var
maður greindur og tryggur mjög. En hinsvegar gat
hann verið harður í horn að taka, og þá sérstaklega
í pólitík. Á því sviði var hann ákafamaður hinn
mesti.
— Honurn var mjög illa við Framsóknarmenn,
og kom það oft fram í bréfum hans til kunningja
norður í Þingeyjarsýslu, þar sem hann var fæddur
og uppalinn. Páll samdi bréfin en i minn hlut kom
að vélrita þau.
— Ég man að ég var nýkominn til Páls, er til
hans kom maður, og imprað var á pólitík. Jós Páll
þá úr skálum reiði sinnar yfir pólitíkinni, og það
svo, að maðurinn spurði mig á eftir: „Er þessi mað-
ur með öllum mjalla?“ Ég svaraði því til að það
væri hann, nema hvað helzt gæti það varla talizt,
er rætt væri um pólitík Páll varð oft mjög æstur
í samræðum um pólitík, og kaupfélög og samvinnu-
félög voru honum mikill þyrnir í augum. En hann
var framúrskarandi hreinskilinn og sagði blátt
áfram það sem hann taldi.
— Þegar ég hóf störf hjá Páli var fyrirtæki hans
til húsa í Lækjargötu 1, í svokölluðu Melsteðshúsi.
Það var Iágt og gamalt timburhús, sem þekkti sögu
bæjarins. Húsið sneri að Kolasundi og þar á bakvið
hafði Páll bílaverkstæði.
15
FRJÁLS VERZLUN