Frjáls verslun - 01.05.1965, Blaðsíða 13
sjóðnum samkvæmt því, er segir hér á eftir, en
styrkveitingar skulu fara fram 18. maí það ár, sem
styrkur er veittur í fyrsta sinn 18. maí 1969.
Tilgangur sjóðsins skal vera að efla hag hinnar
íslenzku verzlunarstéttar,vernda rétt hennar í hví-
vetna, efla frjálsa verzlun í landinu og vinna gegn
hvers konar verzlunarófrelsi, ríkiseinkasölu og sér-
réttindum einstakra verzlunarfyrirtækja, sem njóta
skattafrelsis eða annarra hlunninda um fram kaup-
menn, þar á meðal samvinnufélaga og kaupfélaga,
sem reka jöfnum höndum innflutning og útflutning
eða vöruskiptaverzlun.
Til þess að ná þessu markmiði, sem sjóðnum er
samkvæmt framanskráðu ætlað, má Verzlunarráðið
verja árlega allt að helmingi tekna sjóðsins gegn
jöfnu framlagi frá hinni íslenzku verzlunarstétt. Af
þessu fé má á ári hverju veita 1—2 ungum mönn-
um úr verzlunarstéttinni styrk til framhaldsnáms
í verzlunarfræði í enskum eða amerískum verzlun-
arháskóla. Það er skilyrði fyrir styrkveitingunni,
að styrkþegi hafi gengið í Verzlunarskóla íslands
og útskrifazt þaðan með fyrstu einkunn. Ennfrem-
ur verður hann að hafa starfað við eina af stærri
verzlununum cða heildverzlunum hér á landi eða að
minnsta kosti 1—2 ár, og hafi hann góð meðmæli
fyrir reglusemi og áhuga fyrir starfinu og ætli sér og
liafi skilyrði til þess að starfa hér á landi og í þarfir
hinnar frjálsu íslenzku verzlunarstéttar á eigin á-
byrgð eða hjá öðrum, en ekki í samvinnufélögum,
sem hafa sameinaðan innflutning og útflutning eða
njóta skattfrelsis eða annarra hlunninda umfram
kaupmenn landsins. Gangi styrkþegi síðar í þjón-
ustu einhvers slíks samvinnufélags eða einkasölu,
skal hann skyldur að endurgreiða styrkinn og skuld-
binda sig til þess um leið og styrkurinn er honum
veittur.
Sá helmingur árstekna sjóðsins, sem ekki verður
notaður árlega samkvæmt þessari málsgrein, leggst
við liöfuðstól hans. Verði eitthvert ár ekki helm-
ingur árstekna sjóðsins notaður svo sem að framan
er fyrirmælt, leggjast allar ónotaðar árstekjur við
höfuðstólinn.
Frá andláti arfleifanda þess, er lengur lifir, ber
Verzlunarráðinu að sjá starfsmanni verzlunarinnar,
Jóni Proppé og konu hans, fyrir lífvænlegri at-
vinnu eða lífeyri meðan lifa, ef þau lifa arfleifendur
bæði.
Leggist Verzlunarráð íslands niður vegna póli-
tískts ofbeldis og kúgunar eða af öðrum ástæðum
svo sem þeim að öll verzlun í landinu verði einokun
ríkis eða samvinnufélags með sérréttindum umfram
kaupmenn, þannig að frjáls verzlun líði undir lok,
skal framangreindur sjóður óskiptur falla undir um-
ráð búnaðardeildar Háskólans eða Búnaðarháskóla
íslands, verði hann stofnaður sem sérstök deild við
Háskólann. Skal þá helming vaxta sjóðsins árlega
varið til þess að styrkja efnilega kandidata frá
téðri búnaðardeild eða búnaðarháskóla til fram-
haldsnáms við erlendan búnaðarháskóla aðallega á
Norðurlöndum, en þó ekki í Þýzkalandi. Háskóla-
ráð veitir styrkinn eftir sömu reglum og að framan
segir um verzlunarstyrkinn eftir því sem við getur
átt, og er skylt að endurgreiða stvrk, sem veittur
er samkvæmt þessari málsgrein, í sömu tilfellum
og skylt er að endurgreiða verzlunarnámsstyrki.
Það okkar hjóna, sem lengur lifir, má ekki með
FRJÁLS VERZLUN
18