Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1965, Side 20

Frjáls verslun - 01.05.1965, Side 20
lin verzlunardeild má heldur ekki breyta veruiega frá því, sem ákveðið cr í fyrrnefndri reglugerð, þar eð lærdómsdeild skólans byggir á þeirri fræðslu í ýmsum undirstöðugreinum, sem þar er veitt. Þess ber að geta, að ýmsir merkir skólamenn, sem ég hef sýnt námsskrá skólans, bæði austan hafs og vestan, hafa farið um hana lofsamlegum orðum, einkum fyrir það, hve gott jafnvægi sé þar milli al- mennrar menntunar og sérgreina á verzlunarsvið- inu. En allir töldu þeir mikilvægt að hafa ríflegan skammt af hinni almennu menntun, því að hún yki aðlögunarhæfni manna. Aðlögunarhæfni er einmitt sá eiginleiki, sem flestum mun koma bezt að eiga í ríkum mæli, ekki sízt ef það er rétt, að unga kyn- slóðin megi eiga von á að þurfa að skipta um starf og læra nýtt þrisvar til fjórum sinnum á ævinni, svo ör mun þróunin verða. Engin skilji orð mín samt svo, að ég telji engra umbóta þörf í fræðslustarfi skólans. Þar þarf ein- mitt að gera stórátak, einkum á sviði kennslutækni. Skólinn þarf nauðsynlega vegna tungumálanámsins að eignast language laboratory, máltæknistofu, eða hvað nú á að kalla þetta nýja fyrirbæri á sviði tungumálakennslunnar. Fleiri sérkennslustofur þyrftu einnig að bætast við, þar sem góð aðstaða væri til notkunar fræðslumynda, að ég ininnist ekki á sérkennslustofur fyrir alla hina nýju og marg- brotnu skrifstofutækni. En allt þetta kostar mikið fé. Þó að ég geti ekki, að svo komnu, bent á nýjar tekjuöflunarleiðir, þá vil ég taka skýrt fram, að ég tel alveg fráleitt að afla nauðsynlegs viðbótarfjár með mikilli hækkun skólagjalda. Þau eru, að mínum dómi, þegar orðin það há, að ekki er miklu á bætandi. Auk þess gengi slík aðferð beinlínis í berhögg við þróunina í nágrannalöndum vorum, þar sem svo margir námsmenn fá svo háa námsstyrki, að næstum því má kveða svo að orði, að þeir séu á námslaunum. Það sjónarmið fær sívaxandi fylgi, að arðbærasta fjárfesting ríkisins sé fræðslustarfið og skólarnir. Hver unglingur eigi því að fá eins mikla menntun og hæfileikar hans frekast leyfa. Undir því sé eigi aðeins komin velferð einstaklinganna, heldur allrar ríkisheildarinnar. Á meðan unglingar hér á landi eiga jafnvirkan þátt í framleiðslustörfunum og nú, er auðvitað ekkert á móti því, að þeir greiði nokkur skólagjöld. En gæta verður hófs. Engan má fé skorta til þess þjóðnytjastarfs að afla sér menntunar. Nú, á þessum tímamótum í sögu Verzlunarskóla íslands, vill undirritaður þakka öllum, sem hann Í30 hefur átt við að skipta í málefnum skólanum, skóla- nefndum, kennurum og nemendum fyrir ánægju- legt samstarf. Þó að oft hafi verið við ramman reip að draga, hefur allt farið vel með samstilltu átaki að lokum. Verzlunarskóla Islands óska ég allra heilla á komandi árum og vona, að hann megi hér eftir, sem hingað til, koma mörgum góðum mannsefnum, körlum og konum, til nokkurs þroska. Hesturinn, asninn og kýrin deildu um hvert þeirra hefði komið að mestu gagni í styrjöldinni. — Ég dró skotfæri og vistir til víglínunnar, gort- aði hesturinn. — Án mjólkur og smjörs, sem ég lagði til, hefðu hermennirnir dáið úr sulti, sagði kýrin. — En mín kæru, sagði asninn. — Ef ég hefði ekki setið í ríkisstjórn hefði ekkert stríð orðið. ★ Kaupsýslumaður frá New York kom til mor- mónaborgarinnar Salt Lake City, og tók þar litla telpu tali á götu. — Ég er frá New York, sagði hann. — En þú hefur sjálfsagt aldrei heyrt um þá borg. — Jú. Sunnudagaskólinn okkar hefur trúboða þar. ★ í stórum sirkus bar svo við, að einn fíllinn fékk slæman hósta. Til að fyrirbyggja að hann fengi lungnabólgu, hellti eftirlitsmaður fílanna einni flösku af rommi í drykkjarvatn fílsins. — Næsta morgun hóstuðu allir fílarnir ★ — Hvernig fór skilnaðarmál PétursP — Eins og við var að búast. Pétur fékk bílinn, konan fékk börnin og lögfræðingurinn peningana. ★ Frúin við nýju vinnukonuna: — Og með tilliti til fríkvölda yðar, þá er ég reiðubúin að mæta yður á miðri leið. Vinnukonan: — Þakka yður kærlega fyrir frú, það var dásamlegt. Ég þori heldur ekki að ganga ein alla leið heim á kvöldin. ★ — Mamma, þetta er hræðilegt, snökti nýgifta frúin í símann. Ég gaf Pétri óvart sápuspæni í morgunverð í staðinn fyrir kornfleks. — Varð hann reiður? — Reiður? Það er ekki orðið yfir það. Hann froðufellir ennþá. FKJÁLSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.