Frjáls verslun - 01.01.1971, Síða 23
FRJÁLS VERZLUN NR. 1 1971
23
GREIIVAR OG VIDTÖL
Jóhann: Formaður Sjálfstæðis-
flokksins næstu árin?
Geir: Varaiormaour og um
leið formannsefni í næstu
framtíð.
Gunnar: Formaður þingrmKiiS-
ins næsta kjörtímabil?
Stjórnmálaflokkarnir
Jóhann Hafstein formaður áfram
Eftir Ásmund Einarsson
Nú má telja fullvíst að Jó-
hann Hafstein, forsætisráð-
herra, verði kjörinn formaður
Sjálfstæðis'flokksins á lands-
fundi í vor. Líklegt er að Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri,
verði 'kjörinn varaformaður.
Eins og kunnugt er hafa þess-
ir tveir forystumenn Sjálfstæð-
isflokksins komið til greina í
formannssætið í Sjálfstæðis-
flakknum ásamt dr. Gunnari
Thoroddsen, fyrrv. hæstaréttar-
dómara. Dr. Gunnar mun ekki
sækjast eftir formannsembætt-
inu í vor, og þaðan af síður
varaformannsembættinu. En á-
litið er að hann kunni að sækj-
ast eftir embætti formanns
þingflokks Sjálfstæðismanna.
Það mál mun tæpast verða á
dagskrá fyrr en eftir alþingis-
kosningar í sumar.
Ókunnugir munu eflaust
draga þær ályktanir af þessum
niðurstöðum að kjör Jóhanns
Hafstein muni eingöngu byggj-
ast á samningum hans við borg-
arstjórann, hverjir sem þeir
eru annars, ef þeir eru þá ein-
hverjir. Þetta er aðeins rétt
svo langt sem það nær. Kosn-
ing Jó'hanns Hafstein verður
rökrétt afleiðing af ríkjandi
hugarfari í Sjálfstæðisflokkn-
um og styrkleikahlutföllum
milli þremenninganna.
Það hefur alltaf verið ósk
og von Sjálfstæðisflo'kksins að
sem víðtækust samstaða gæti
náðst við formannskjörið í vor.
Það er ekki aðeins eðlilegt að
foringjavandamál í flokki eins
og Sjálfstæðisflokknum leysist
með víðtæku samkomulagi.
Kosningarnar, sem framundan
eru gera það beinlínis knýj-
andi að þessu sinni. Óbreyttir
floikksmenn voru famir að
kvíða því að þurfa að gera
út um málið í hörðum kosning-
um á landsfundi. Fyrirsjáan-
legt var að þær mundu frem-
ur vei'kja en styrkja flokkinn,
eins og á stóð. Það var því
beinlínis orðin skylda þeirra
manna, sem til greina komu í
formannsembættið, að reyna
að ná a.m.k. þegjandi samkomu
lagi.
Jóhann Hafstein vill ein-
dregið halda áfram for-
mennsku, og allt bendir til að
Geir Hallgrímsson hafi ekki
hag af styrjöld við hann.
Viss samstaða Geirs Hall-
grímssonar og Jóhanns Haf-
stein var orðin til löngu áður
en óbreyttir flokksmenn voru
farnir að kvíða fyrir vorinu.
Um forsendur þessar samstöðu
er óþarfi að fjölyrða. En þrennt
er óhjákvæmilegt að benda á.
Jóhann Hafstein átti hefðbund-
ið tilkall til formannsembættis-
ins sem fyrrverandi varafor-
maður, starfandi formaður og
forsætisráðherra. Geir Hall-
grímsson er hins vegar sterk-