Frjáls verslun - 01.01.1971, Side 34
34
GREINAR OG VIÐTÖL
FRJÁLS VERZLUN NR. 1 1371
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
ríkisins ámmm
Nýr eindagi:
1. febrúar 1971, vegna
nýrra lánsumsókna.
HtJSNÆÐISMÁLASTOFNUNIN VEKUR ATHYGLI
HLUTAÐEIGANDI AÐILA Á NEÐANGREINDUM
ATRIÐUM:
I. EINSTAKLINGAR, er hyggjast hefja byggingu
íbúða eða festa kaup á nýjum íbúðum (íbúðum í
smíðum) á næsta ári, 1971, og vilja koma til greina
við veitingu lánsloforða á því ári, skulu senda láns-
umsóknir sínar með tilgreindum veðstað og tilskild-
um gögnum og vottorðum til stofnunarinnar fyrir
1. febrúar 1971.
II. FRAMKVÆMDAAÐILAR í BYGGINGARIÐNAÐ-
INUM, er hyggjast sækja um framkvæmdalán til
íbúða, sem þeir hyggjast byggja á næsta ári, 1971,
skulu gera það með sérstakri umsókn, er verður að
berast stofnuninni fyrir 1. febrúar 1971, enda hafi
þeir ekki áður sótt um slíkt lán til sömu íbúða.
III. SVEITARFÉLÖG, FÉLAGASAMTÖK, EINSTAKL-
INGAR OG FYRIRTÆKI, er hyggjast sækja um lán
til byggingar leiguíbúða á næsta ári í kaupstöðum,
kauptúnum og á öðrum skipulagsbundnum stöðum,
skulu gera það fyrir 1. febrúar 1971.
IV. Þeir, sem nú eiga óafgreiddar lánsumsóknir hjá
stonuninni, þurfa ekki að endurnýja þær.
V. Umsóknir um ofangreind lán, er berast eftir 31.
janúar 1971, verða ekki teknar til meðferðar við
veitingu lánsloforða á næsta ári,
Reykjavík, 5. nóvember 1970.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77, SlMI 22453
FYRIR FUNDI OG VEIZLUR
Leigjum út sali fyrir fundi og veizlur í
LINDARBÆ við Lindargötu.
Uppl. ísíma 21971 kl. 14—16 daglega.
Sportið var að ná í vöruna og
hún seldist jafnóðum, sama
hvað maður náði í. Þetta gamla
að þurfa að mæla með vöru og
sannfæra viðskiptavininn um
að hann væri að _ kaupa það
bezta var búið. Ég var oft
býsna heppin með að næla mér
í varning, sérstaklega í sam-
bandi við Hjálmar Finnsson.
Ég pantaði einu sinni hundrað
hraðsaumavélar á einu bretti
og það þótti býsna djarft gert.
Svo kom gengisfelling stuttu
síðar og þetta seldist eins og
skot!
PFAFF AFTUR 1951.
FRJÁLS VIÐSKIPTI
LOKS 1961.
Það fer fyrst að færast svo-
lítið líf í þetta þegar blessuð
viðreisnarstjórnin kemur —
þegar við förum að fá frjálsar
hendur. Ég hafði áður stundum
þrjú til fjögur hundruð pant-
anir á hendi fyrir vélum, sem
ekki var hægt að ná í. Á sama
tíma verður bylting í gerð
saumavéla tæknilega séð.
Þú hefur aldrei orðið fyrir
viðskiptalegu áfalli í stríðinu.
Nei. Ég fékk allt með skil-
um. Þegar stríðinu lauk var ég
fyrsti erlendi umboðsmaður
PFAFF, _ sem hafði samband
við þá. Ég var á fex-ð 1946 til
Sviss og fór þá í gegnum
Þýzkaland. Þá náði ég sam-
bandi við forstjóra Pfaff á
landamærum Sviss og Þýzka-
lands og við sátum þarna und-
ir eftirliti svissnesku landa-
mæravarðanna og þeirra
frönsku, en Pfaff verksmiðj-
urnar voru á franska hernáms-
svæðinu í Þýzkalandi. Þá gátu
þeir ekkert gert — Frakkarnir
búnir að taka alla framleiðslu
þeirra, og við náðum ekki eðli-
legu viðskiptasambandi við
verksmiðjurnar fyrr en árið
1951.
Það kemur sem sagt engin
Pfaff vél hingað frá árinu
1939 til 1951.
Það er rétt. Á meðan verzl-
aði ég með Singer, ítalskar
vélar og jafnvel tékkneskar, en
það gerði ég ekki nema einu
sinni.
Varstu umboðsmaður fyrir
Singer á þessum tíma?
MEÐ UMBOÐ FYRIR ÖLL
LEIÐANDI FYRIRTÆKI MEÐ
PRJÓNA- OG SAUMAVÉLAR
FYRIR IÐNAÐINN.
Nei, þeir veittu ekki um-