Frjáls verslun - 01.07.1971, Page 8
ISLAND
Skipaúftyíerð ríkisins
l\iý skip, en önnur encfurnýjun
hægfara - Irifuriegf tap
Tekjur 1970 hrukku til að rúml. tapið var 30 milljónir
Árið 1970 var síðasta ár elli-
mála í skiparekstri Skipaút-
gerðar ríkisins, a. m. k. að
sinni. „Síðasti geirfuglinn“,
Herðubreið, var seld nýlega,
þó ekki úr landi, og voru það
Vestur-Húnvetningar, sem
björguðu henni. En á árinu
1970 rak Skipaútgerðin nýju
Heklu, gömlu Herðubreið og
svo Herjólf. Þessi skiparekst-
ur, með rekstri vöruafgreiðslu
og innkaupadeildar, skilaði
65-66 milljónum í tekjur, en
tap varð samt um 30 milljónir.
E. t. v. má skrifa eitthvað af
þessu tapi á Herðubreið og
millibilsástand, sem varð ó-
eðlilega langt, unz Esja leysti
Herðubreið af hólmi. Og hugs-
anlega er það rétt skoðun, sem
sumir halda fram, að ekki sé
að vænta hallalauss reksturs
þjónustufyrirtækis á borð við
Skipaútgerðina. Sé svo, er auð-
vitað ástæðulaust að síta tap-
ið, 30 milljónir eru jú enginn
stabbi nú. orðið.
Hvað sem þessu líður, er það
nú orðið staðreynd, að Skipa-
útgerðin hefur eignazt 2 ný
skip, fyrir hátt í 200 milljónir
samtals, og rekur þau nú ásamt
Herjólfi. Jafnframt hefur þjón-
usta Skipaútgerðarinnar farið í
annan farveg en áður, þar sem
bæði nýju skipin eru nær ein-
göngu vöruflutningaskip og
hafa verulega getu sem slík.
Farþegaflutningar hafa um leið
lagzt að mestu af. Verði þeir
á dagskrá aftur, verður það
sennilega með einhliða far-
þegaskipi, og skipareksturinn
þannig í meginatriðum tví-
skiptur.
En fylgja ekki þessum breyt-
ingum aðrar breytingar, breyt-
ingar á rekstri Skipaútgerðar-
innar í landi og í flutninga-
tækni t. d.? Jú, vissulega, sagði
Guðión Teitsson forstjóri, þeg-
ar FV lagði þessa spurningu
fyrir hann. Nú þegar er hafin
notkun meisa (pallar með Iéttri
álgrind) og gáma (containers)
í nokkrum mæli, og er að smá
aukast. Og í sambandi við það,
breytist út- og uppskipun, þar
sem til koma lyftitæki í aukn-
um mæli. Jafnframt er á döf-
inni að ráða þót á afgreiðslu-
aðstöðu í Reykjavík, sem er
mjög bágborin, en hún er að
vísu víðar þannig. Skipakaup-
in, kaup gáma á 25 þús. kr.
stykkið og lyftara m. m., ásamt
fyrirhuguðum endurbótum á
afgreiðslu í Reykjavík, er veru-
leg fjárfesting á tiltölulega
skömmum tíma.
Frá ýmsum aðilum út um
land hefur FV hins vegar heyrt
margs konar gagnrýni í garð
Skipaútgerðarinnar, og má þó
vafalítið rekja eitthvað af
henni til óeðlilegs ástands á
síðasta ári eða síðustu misser-
um. Annað virðist stutt sterk-
um rökum og vera í fullu gildi,
eins og kvartanir út af flók-
inni gjaldskrá og að því er sum-
ir segia ákaflega misviturlegri,
og ábendingar um sinnuleysi
Ný skip og gámar: Það eitt er ekki nóg.
6
FV 7 1971