Frjáls verslun - 01.07.1971, Page 19
Douglas: Ferskara loft.
Hjólhýsin hafa sem sé þróazt í þetta, verða nœst á 7 hœðum!
*
Astralía
Er að faka úf
efnahagsþrosk-
ann9 fær inn-
göngu í 0E€0
Fyrir skömmu undirritaði
Mr. Douglas Anthony, forsætis-
ráðherra Ástralíu, samning um
inngöngu landsins í OECD, og
er Ástralia 23. landið, sem
gengur í samtökin. Þykir inn-
taka Ástralíu benda til þess, að
landið sé að taka út gfnahags-
legan þroska sinn og ná sér á
strik. Ástralía hefur öðru
hverju sótt um inngöngu í
OECD allt frá því er Japan
var tekið inn í samtökin árið
1964 og þykir flestum að loks
hafi fengist nokkur viðurkenn-
ing á stöðu landsins. Ekki er
við að búast, að landið komist
strax inn í innsta hring OECD
og borgar það heldur ekki fullt
þátttökugjald strax. Þykir
gjaldmiðill landsins ekki nógu
hreyfanlegur, og bótt innflutn-
ingur fjármagns sé leyfður
hindrunarlaust, er þó erfitt að
flytja fé úr landinu, og kemur
það í veg fyrir fullt samstarf.
En alla vega veitir Ástralíu —
og reyndar fleiri löndum —
ekki af allri mögulegri aðstoð
og ráðleggingum á efnahags-
sviðinu, meðan gengi þýzka
marksins er fijótandi og gengi
dollarans ótryggt.
Bandaríkin
99Hjó8hýsi66 á
inörguim hæðum
Hjólhýsi er eiginlega vill-
andi heiti á þeim húsum, sem
náð hafa mestum vinsældum í
Minnesota undanfarið — og
þó. Þetta eru verksmiðjubyggð
hús, upphaflega teiknuð með
það fyrir augum að standa í
hjólhýsahverfum, þar sem fyr-
ir hendi er vatn, frárennsli,
rafmagn og gas. En húsin má
þó í rauninni hafa hvar sem
er.
Nú virðist vera að spretta
upp ný stefna í þessum hjól-
hýsabúskap.
Snemma á þessu ári var
byggingarsamþykkt Vadnais,
sem er útborg St. Paul í
Minnesota, breytt þannig, að
reyna mætti nýtt fyrirkomu-
lag á uppsetningu hjólhýs-
anna. Nýjungin er í því fólgin.
að settir eru upp pallar út frá
öflugum möndli, þrjár raðir
um hvern möndul og þrír pall-
ar í hverri röð, en á hvern
pall er svo sett hús, 14x70 fet.
Þessi hús eru síðan tengd við
veitukerfi borgarinnar. Og
þannig verða þetta eins konar
gerfi-fjölbýlishús, með ýmsa
eiginleika einbýlis, að vísu lít-
il og tiltölulega ófullkomin
íveruhús, en hræódýr í inn-
kaupum og rekstri. Ekkert
virðist vera bví til fyrirstöðu,
að búskapur þessi þróist enn
frekar og færist jafnvel í ein-
hverri mynd inn í borgirnar,
en hingað til hefur hann verið
bundinn úthverfum, þar sem
land er ódýrast. Og brautryðj-
andinn á þessu sviði, Mobile
Americana Co. hefur nú þeg-
ar skipulagt nýtt hjólhýsa-
hverfi, þar sem húsin verða á
7 hæðum. E. t. v. er hér fund-
in leið til þess að leysa hús-
næðisvanda efnalítils fólks,
sem annars verður að búa í
hreysum eða tjöldum, án allrar
þjónustu.
Bandaríkin
Starfsmenn
stærsta fyrir-
tækisins eru
700 þúsund!
Bandaríska mánaðarritið
„Fortune", sem einkum fjallar
um viðskipta- og efnaihagsmál
hefur undanfarin ár haft það
fyrir sið að birta á miðju ári
lista yfir 500 stærstu fyrirtæki
Bandaríkjanna og ýmsar töl-
fræðilegar upplýsingar um þau.
í síðasta tölublaði er svo birt-
ur listinn yfir 500 stærstu fyrir-
tækin árið 1970 og til gamans
birtum við hér 5 efstu fyrir-
tækin á listanum og 5 neðstu.
Ýmsum kann að þykja tölurn-
ar ógnvænlegar, sem ekki er að
furða er við lítum á þjóðfélags-
smæð okkar. Á iistanum kemur
t. d. fram, að starfsmenn
stærsta fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum og raunar heiminum
öllum eru um 700 þúsund tais-
ins, en við íslendingar teljum
aðeins rúm 200 þúsund. Þetta
fyrirtæki er General Motors og
nam heildar söluverðmæti fyr-
irtækisins 18.7 milljörðum doll-
ara, sem er um 120 fallt út-
flutningsverðmæti íslendinga á
sl. ári.
í formála listans skrifar
Fortune meðal annars, að hagn-
aðarprósenta fyrirtækjanna
hafi eins og vitað var fyrir
orðið sú lægsta. sem um getur,
eða um 3,9% af heildarsölu-
verðmætinu. Þar kemur einnig
fram að starfsmönnum fyrir-
tækjanna 500 fækkaði nú í
fyrsta skipti frá því 1958 og
nam fækkunin 1,4%. Um 14,5
milljónir starfsmanna voru á
launaskrá í árslok 1970. Af
fyrirtækjunum eru 120, sem
FV 7 1971
17