Frjáls verslun - 01.07.1971, Qupperneq 27
til landsins og framkvæmdu
ýmis verk, fyrst einir, en síðar
hafa mörg verkefni verið unn-
in af þeim í samvinnu við ís-
lenzka verktaka, til dæmis síð-
asti hluti Sogsvirkjunar, Stein-
grímsstöð (Sog), Grímsárvirkj-
un og minni virkjanir, Þorláks-
höfn, Njarðvíkurhöfn, Stráka-
göng o- fl.
Hér má segja, að viss sam-
vinna hafi átt sér stað, hugsan-
lega til þess að íslenzku verk-
takarnir gætu notið forréttinda
útlendinganna án þess að þurfa
sjálfir að stofna fyrirtæki er-
lendis. Staðreynd mun þó, að
þessir íslenzku verktakar urðu
margir gjaldþrota, en erlendu
verktakarnir virðast engu hafa
tapað. Einn þeirra, danskur
verktaki, sem hér hefur aðal-
lega komið við sögu, mun nú
hafa stofnað íslenzkt verktaka-
fyrirtæki undir nafninu ís-
lenzkt verktak h.f. Að sjálf-
sögðu treysta þeir íslendingum
fullkomlega til þess að reka
þetta myndarlega fyrirtæki
með erlendri fjárhagsaðstoð og
bankatryggingum, en meiri-
hlutinn mun þó vera í erlendri
eign, þótt annar eigandinn sé
íslenzkur ríkisborgari.
ALÞJÓÐABANKINN Á
ÞAKKIR SKILIÐ
Islenzk verktakastarfsemi í
núverandi mynd hefst eigin-
lega ekki fyrr en árið 1960
með láni Alþjóðabankans til
Hitaveitu Reykjavíkur. Bank-
inn setti þau skilyrði, að allar
framkvæmdir við verkið og
allt efni, sem nota ætti, skyldi
boðið út á alþjóðamarkaði.
Jafnframt var það skilyrði sett,
að verkið væri hannað af sjálf-
stæðum ráðgefandi verkfræð-
ingum.“
„Við megum vera þakklátir
Alþjóðabankanum fyrir fjár-
hagslegan stuðning og vel
heppnaðar framkvæmdir Hita-
veitunnar,“ segir Birgir, ,,en ís-
lenzkir verktakar og reyndar
þjóðin öll stendur ekki síður í
þakkarskuld við bankann fyr-
ir að hafa komið af stað þrótt-
mikilli verktakastarfsemi og
látið íslenzka verkkaupa leita
tilboða í efni á alþjóðamark-
aði, sem hefur reynzt afar hag-
kvæmt og sparað og mun halda
áfram að spara hundruð millj-
óna árlega.
Nú hefur Alþjóðabankinn
veitt stórlán til hraðbrauta-
framkvæmda, og þar virðist
enn einu sinni vera að fara af
stað þróttmikil starfsemi, þar
sem íslenzkir verktakar hafa
getað boðið mun lægra verð en
erlendir-
Svo að ég fari aðeins nánar
út í vegagerð, þá má líklega
í framtíðinni gera ráð fyrir, að
nýbygging vega á íslandi verði
unnin af verktökum, en Vega-
gerð ríkisins sjái um viðhald
vega. Það er draumur íslenzkra
verktaka, að sá tími komi, að
vegamálastjórn bjóði út ný-
byggingu vega milli ákveðinna
staða og setji fram ákveðnar
kröfur um undirbyggingu,
Áburðarverksmiðjan stœkkuð.
Birgir: Nú er farið að bjóða út byggingarframkvœmdir með öllu,
og húsunum skilað fullbúnum til notkunar.
GLASSO
GLASSOMAX
BÍLALAKK
GRUNNUR — FYLLIR
SPARTL-ÁLGRUNNUR
BAKKI HF.
simi 13849
MÚRBROT
SPRENGIVINNA
ÖNNUMST
hvers konar verk-
takavinnu.
Tíma- eða
ákvæðisvinna.
LEIGJUM ÚT
loftpressur, krana,
gröfur, víbratora,
dælur.
VÉLALEIGA
STEINDÓRS SF.
verkstæði 10544
skrifstofa 30435.
FV 7 1971
25