Frjáls verslun - 01.07.1971, Síða 42
UM HEIMA OG GEIMA
HoIBráð mánaðarins
Næst þegar þú kemur heim úr partíi ögn of drukkinn,
skaltu fara í eldhúsið og blanda þér alveg sérstakan drykk.
Þessi drykkur er búinn til úr sítrónusafa að þriðjungi,
tómatsafa að þriðjungi og loks vodka, auðvitað Tindavodka,
því aldrei má gleyma fósturjörðinni og ríkinu. Af þessum
drykk sefurðu bærilega og vaknar furðu hress að morgni.
eða þegar þú vaknar, sem er vitaskuld mikilvægt, þegar
þú stendur aftur auglitis við alvöru lífsins.
En þú skalt athuga vandlega, þegar þú velur þér sitrónu
til að pressa úr í drykkinn, að hún 'sé ekki með stéli. Þá
skaltu umfram allt velja þér aðra, stéllausa. Það má
nefnilega telja vist, að þessi með stélinu sé kanarífuglinn
þinn!
Uóflega drukkið vín...
Sért þú einn af þeim fáu íslendingum, sem bragða áfengi, höf-
um við flett upp fyrir þig uppskriftum að tveim drykkjarblönd-
um, sem ekki er víst að þú hafir áður bragðað. Þetta eru ekki
kokkteilar, heldur drykkir, sem á ensku máli eru kallaðir „long-
drinks“ og ekki hefur tekizt að finna á íslenzkt heiti, svo okkur
sié kunnugt.
TALL ISLANDER: 6 cl. ljóst romm, 9 cl. ananassafi, 1/3 cl.
sykraður sítrónusafi, 1 tesk. dökkt Jamaica romm, 1 tesk. sykrað
síróp, kældur club-sódi, sítrónusneið. Rommið ásamt safanum á
að hrista vel í ís. Síðan á að hella því í hátt glas og bæta við
ís og sóda, og loks að hræra vel í og bæta sítrónusneiðinni ofan á.
PLAYBOY COOLER: 3 cl. ljóst Jamaica romm, 3 cl. Jamaica
kaffilíkjör, 9 cl. ananassafi, 2 tesk. ferskur sítrónusafi, kóla,
ananassneið. Rommið, líkjörinn og safann á að hrista í ís. Þá á
að bæta við ís upp að brún glassins, sem á að vera hátt, og þá
kóla-drykk. Drykkinn á að bera fram með strái í.
Alfreð Alfreðs-
son ferðasf um
heiminn
Það eru vafalaust til ótal úr-
ræði, en Alfreð Alfreðsson
fann eitt nýtt, þegar hann var
staddur í Nizza og þurfti nauð-
synlega að skreppa bæjarleið.
bann mund að hún lagði af
stað, gekk aftur ganginn og
Hann steig upp í hraðlest í
að næsta salerni, sem var upp-
tekið, bankaði á dyrnar og
sagði dimmum rómi: Farmiða-
skoðun, gerið svo vel að rétta
mér farmiðann fram fyrir dyrn-
ar. Og hver hefði látið á sér
standa? Ja, alla vega fékk Al-
freð miðann, og forðaði sér í
þægilegt sæti í hraðlestinni.
Mæsta skref...
Það er ekki vitað nákvæm-
lega um sannleiksgildi þess,
sem sagt er um nýju skat.ta-
stefnuna. En einhver þóttist
hafa heyrt, að nú væri verið
að prenta nýja tilkynningu til
skattborgaranna, ásamt með-
fylgjandi formi til útfyllingar,
sem er sannarlega einfaldara
en það gamla:
(A) Hve mikið fenguð þér í
laun á síðasta ári?
(B) Hve mikið áttuð þér eft-
ir, þegar þér höfðuð greitt
skattana yðar?
(C) Sendið B.
Stund og staður
— Fórst þú að ráðum mínum
um að kyssa skvísuna, þegar
hún átti sízt von á því, spurði
sálfræðineminn yngri bróður
sinn.
—- Hvað, sagði yngri bróðir-
inn, og rak upp stór augu, —
ég hélt að þú hefðir sagt þar
sem hún byggist sízt við því!
40
FV 7 1971