Frjáls verslun - 01.12.1971, Síða 25
því að þetta hefur tekið lengri
tíma, en ég bjóst við og kostn-
aðurinn því orðið meiri. Takist
þetta vel er næsta skrefið að
undirbúa framleiðslu 100 sleða
fyrir íslenzkan markað.
FV — Hvernig er að vera
ungur kaupsýslumaður á ís-
landi?
SÞ — Fyrsti slagurinn hlýtur
alltaf að verða sá erfiðasti og
á það við um kaupsýslu eins
og annað. Maður þarf að byrja
á því að afla sér trausts í lána-
stofnunum og það er erfitt, er
við tökum tillit til þess hversu
erfitt er að fá rekstrarfjármagn
hér á landi yfirleitt, en það er
víst óþarfi að rifja þá rauna-
sögu upp enn einu sinni fyrir
lesendum FV.
FV — Hvað getur þú sagt
okkur um upphaf og þróun fyr-
irtækis þíns?
SÞ — Þegar ég var í kapp-
akstrinum úti hafði ég augun
opin fyrir fyrirtækjum er verzl-
uðu með vörur í sambandi við
bifreiðar. Fyrsta umboðið sem
ég fékk var STP og síðan bætt-
ist stöðugt eitthvað við og nú
er ég með umboð fyrir um 15
fyrirtæki og má nefna t.d.
FRAM. Kawasaki, sem er jap-
anskt stórfyrirtæki, einnig er
ég með japanska fyrirtækið
Yasaki svo eitthvað sé nefnt.
Hvað þróunina snertir má geta
þess að fyrsta árið velti fyrir-
tækið 3V2 milljón, en í ár verð-
ur veltan um 15 milljónir.
FV — Að lokum, hvert er
helzta markmið þitt?
SÞ — Að koma upp einhverj-
um vélaiðnaði, sem getur fram-
leitt vandaða útflutningsvöru,
eins og t.d. sleðann. Ég vil ekki
standa í stað og lokast inni í
einhverja fastmótaða viðskipta-
hætti. Eg vil skapa eitthvað,
gera eitthvað nýtt, þannig að
reksturinn verði eins fjölbreytt-
ur og ólíkur og svart og hvítt
og helzt allt þar á milli.
VYMURA VEGGFODUR
Klæðið veggina með
VYMURA
VINYL
VEGGFOORI
Það er fallegt, endingargott, þvott-
ekta, auðvelt i uppsetningu.
Tilvalið í skóla, sjúkrahús. samkomu-
hús, skrifstofur, opinberar byggingar
— og auðvitað á heimli yðar.
VYMURA VEGGFÓÐUR má þvo og
skrúbba, en þó heldur það alltaf sín-
um upprunalega lit.
Gerið íbúðina að fallegu heimili með
VYMURA VEGGFÓÐRI.
Umboðsmenn: G. S. Júlíusson.
SKREYTINGAR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI GJAFAVÖRUR
Blómastofa Friðfinns
SUÐURLANDSBRAUT 10 — SÍMI 31099
FV 12 1971
23