Frjáls verslun - 01.03.1972, Síða 11
ján, að Færeyingar væru einu
útlendingarnir, sem til greina
kæmu í vinnu á vertíðinni.
Aðilar í sjávarútveginum
hafa skorað á ríkisvaldið, að á
þess vegum verði ekki lagt í
umfangsmiklar og mannfrekar
framkvæmdir á þeim tíma, er
sjávarútvegur þarfnast vinnu-
afls í mestum mæli. í fyrra
gerðist það, að vegafram-
kvæmdir í nágrenni Reykja-
víkur hófust í aprílmánuði,
þegar vertíðin stóð sem hæst,
og skipti það engum togum, að
stórir hópar góðra manna
sögðu sig strax úr skipspláss-
um og fóru í vegagerðina.
ÞURFA 1000—1500 MANNS
SÉRSTAKLEGA
Á VERTÍÐINA
Kristján Ragnarsson taldi
útilokað, að unnt yrði að koma
á meiri stöðugleika á þeim
vinnumarkaði, sem tengdur er
sjávarútvegi, en nú er. Stað-
reyndin væri sú, að um þriggja
mánaða skeið, á vertíðinni,
þyrfti sérstaklega 1000—1500
sjómenn, sem ekki væri hægt
að veita atvinnu á öðrum árs-
tíma vegna veiðiaðferða okk-
ar. Á sumrin þyrfti ekki nema
5—6 menn á bát í humarveiði
og trollfiskirí á þá sömu báta,
sem þurfa 10—11 menn á vetr-
um.
Til skamms tíma hafi það
þótt eftirsóknarvert að komast
í þessa vinnu þar sem hún hef-
ur gefið góðar tekjur. Nú vildi
fólk hins vegar ekki sleppa
vinnunni í landi.
„Vandamálið virðist óleysan-
legt nema með því ef til vill að
leggja stórum hluta flotans yf-
ir vetrarmánuðina. En þar með
væru forsendur fyrir útgerð-
inni brostnar, þar sem vetrar-
vertíðin er blóminn úr úthaldi
bátanna,“ sagði Kristján Ragn-
arsson að lokum.
Þœr virðast kunna vel við sig í fiskvinnunni þessar.
Rúmlega
14000
fiskiskip
Á þriggja ára tímabili, frá
1969 til 1971, hefur fjöldi
fiskiskipa, stærri en 100
rúmlestir, vaxið úr 11448
skipurn í 14468 skip í heim-
inum. Rúmlestafjöldi hefur
aukizt úr 7 milljón í 9 millj-
ónir á þessum sama tíma
Alls eru það 93 ríki, sem
ráða yfir skipum yfir 100
rúmlestum, en 8364 skip-
anna eru í eigu þeirra fimm
ríkja, sem flest skipin eiga,
að stærð samtals 6,9 millj.
rúmlesta.
Efst á blaði eru Sovétrík-
in, sem hafa eflt fiskiskipa-
flota sinn á þessum þremur
árum úr 2908 í 3563 skip.
í fyrra áttu Sovétmenn
3108 veiðiskip og 455 flutn-
ingaskip og verksmiðjuskip,
alls 4,5 milljónir rúmlesta,
sem er helmingur allrar
fiskiskipaeignar í heiminum
sé miðað við stærð.
Japanir eru í öðru sæti
með 2508 veiðiskip og 70
verksmiðjuskip, samtals 1,08
millj. rúmlesta.
í þriðja sæti er svo
Spánn með 1400 veiðiskip
og eitt verksmiðjuskip, alls
435.771 rúmlest.
Bretar eru í fjórða sæti.
Þeir eiga 579 veiðiskip af
þessum stærðarflokki, alls
238,155 rúmlestir.
Pólverjar koma fimmtu í
röðinni með aukningu á
þremur árum úr 172 skip-
urp í 244, sem eru 236,248
rúmlestir.
Þess má geta til saman-
burðar, að í árslok 1971 átt-
um við íslendingar 291
fiskiskip stærri en 100 rúm-
lestir, alls 123.755 rúmlest-
ir.
FV 3 1972
11