Frjáls verslun - 01.03.1972, Page 13
Skipstjórar með
1 millj. á loðnuvertíð
Helmingur af mjölframreiðslunni seldur
Þó að mjölið hlaðist upp sem stendur eru söluhoríur góðar.
Loðnuvertíðinni 1972 simn-
an- og vestan lands er nú lok-
ið. AI!s var aflað 250 þúsund
tonnum, sem er rúmlega 100
þús. tonnum meira en í fyrra,
Eins og kunnugt er gáfu fiski-
mjölsverksmiðjur sunnan- og
vestanlands út yfirlýsingu um
það undir Iok vertíðarinnar, að
þær tækju ekki á móti meiri
loðnu til vinnslu, þar sem fjár-
magn úr loðnudeild verðjöfn-
unarsjóðs var þá þrotið.
Þegar samið var um verð á
loðnu á þessari vertíð var gert
ráð fyrir að sjóðurinn greiddi
26—27 aura á hvert kíló. Þegar
séð var, að hann myndi tæmast
vegna mikillar veiði var gerð
tilraun til að ná samkomulagi
um lækkun á verði til útgerð-
armanna og sjómanna en það
tókst ekki.
Verð á loðnu var í febrúar
kr. 1.20 á kíló sem skiptaverð,
en þar ofan á bættust 10%, er
runnu til útgerðarinnar í
stofnsjóð.
í marz var skiptaverðið kr.
1.10 á kíló og 10% í stofnsjóð.
HÁSETAR MEÐ
300 ÞÚS. KRÓNUR.
Skipstjóri á loðnubát hafði
10 aura fyrir hvert kíló, sem
hann veiddi. Það þýðir, að
skipstjórar á aflahæstu bátun-
um hafa verið með um 1
milljón króna á þessum tæpum
tveim mánuðum. Skipstjórar
með 5000 tonn, sem voru marg-
ir á þessari vertíð, hafa því
500 þús. krónur í tekjur af
aflanum. Hásetar munu hafa
verið með um 300 þús. krónur
á vertíðinni að meðaltali.
Nú hafa verið seld 24 þús.
tonn af loðnumjöli eða um
helmingur af framleiðslunni á
þessu ári. Helztu kaupendurn-
ir eru í Póllandi, A-Þýzkalandi,
Finnlandi og Ungverjalandi.
Þá er sala til Bretlands að
hefjast..
MIKIÐ VERÐFALL Á LÝSI.
Verðið á mjölinu hefur ver-
ið nokkuð stöðugt að undan-
förnu en aftur á móti mun
lægra en í fyrra.
Sem stendur er íslenzka
loðnumjölið selt á 22 shillinga
hver próteineining en var í
fyrra selt á 28 shillinga pró-
teineiningin. Perú-verð mun
vera innan við 20 shillinga og
ef íslenzkir seljendur vildu
selja á því verði, væri hægt
að losna við mjölbirgðirnar
fyrirhafnarlítið.
Lýsi hefur fallið í verði um
helming frá í fyrra. er nú
£ 50 hvert tonn miðað við
£ 100 í fyrra.
Orðsending til áskrifenda
Áskriftargjald Frjálsrar verzlunar verður
á þessu ári greitt í tvennu lagi, kr. 570,00 í
hvort sinn.
Frjálst framtak hf.
FV 3 1972
13