Frjáls verslun - 01.03.1972, Page 16
B. V. „Bjarni Benediktsson”
Rammgert skip með full-
komnustu tækjum
Sigurjón Stefánsson ráðinn skipstjóri
Hinn nýi skuttogari Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur, „Bjarni
Benediktsson“ RE 210, sem nú
er í smíðum á Spáni, verður
rammbyggilegasta skip ís-
lenzka flotans. Skrokkur skips-
ins er byggður samkvæmt regl-
um Lloyd’s í ísklassa 2, en þau
skip, sem byggð hafa verið fyr-
ir íslendinga fram til þessa,
hafa verið smíðuð samkvæmt
Lloyd’s reglum um ísklassa 3.
ísklassi 1 á við um raunveru-
lega ísbrjóta eins og þeir ger-
ast nú á dögum.
Frjáls verzlun ræddi á dög-
unum við forstjóra B.Ú.R., þá
Þorstein Arnalds og Martein
Jónasson, ásamt Jóni Axel
Péturssyni, sem sæti hefur átt
í skuttogaranefnd. Þeim bar
öllum saman um, að samstarf-
ið við spænsku skipasmíðastöð-
ina hefði verið hið bezta og
öll vinnubrögð hennar með
mikilli prýði.
SPÁNVERJAR HAFA LÆRT
MIKIÐ AF SMÍÐINNI
Af hálfu íslendinga hefur
verið fylgzt mjög náið með
smíði b.v. „Bjarna Benedikts-
sonar“ og má segja að Spán-
verjar hafi öðlazt mikla reynslu
af þeirri samvinnu, þar sem
þeir hafa ekki áður byggt skip
af þessu tagi. íslendingar gerðu
það að skilyrði, að skipið yrði
tankprófað hjá Hydro- og
Aerodynamisk Laboratorium í
Lyngby, í Danmörku, og í fram
haldi af þeirri prófun voru
gerðar miklar breytingar á
teikningum skipsins. Upphaf-
lega var það teiknað mun
mjórra, en eftir breytingarnar
verður burðarmagn þess í lest
26000 rúmfet. Þessi rannsókn
í Lyngby var greidd af kaup-
endum skipsins, og mun kostn-
aður við hana hafa numið um
600 þúsundum króna. Vegna
rannsóknarinnar varð 6 vikna
töf á smíði togarans.
VERÐUR UM 1200 SMÁ-
LESTIR
Heildarlengd „Bjarna Bene-
diktssonar“ RE 210 verður 68
metrar. Lengd milli lóðlína 59
metrar, breidd 11,6 metrar og
vélarstærð 2x1410 hestöfl. 1
skipinu verða vélar af gerð-
inni MAN, smíðaðar á Spáni
samkvæmt framleiðsluleyfi frá
Þjóðverjum. Snúningshraði
verður 400 snúningar á mín-
útu. Er stéfnt að því, að skip-
ið noti sömu olíu og Eimskip
á sín skip, þ. e. Marine Diesel
Oil í stað gasolíu, sem er dýr-
ari.
Um borð verður togvinda af
Bvússel-gerð, 440 hestafla. Gert
er ráð fyrir, að skipið verði
um 1200 smálestir.
Helztu nýjungar i sambandi
við vinnubrögð um borð í
þessu skipi eru þær, að troll-
spili verður stjórnað úr brúnni
í stað þess, að á gömlu togur-
unum hafa tveir menn verið
við spilið á dekki. Þá verður
mannskapurinn algjörlega í
skjóli, þegar híft er, í stað þess
að vera á síðunni, oft í kalsa-
veðri, eins og til þessa hefur
tíðkazt á togurunum.
VERÐUR SKIPAÐ UPP í
KÖSSUM?
Þegar trollið hefur verið
tekið inn mun fiskurinn verða
látinn falla niður á næsta
dekk, þar sem aðgerð fer
fram neðan þilja. Þar verð-
ur vél, sem slægir fisk-
inn, en síðan mun hann
renna á færiböndum í tvær
þvottavélar og úr þeim aftur
niður í lest. í lestum skipsins
verður hægt að hafa fiskkassa
í fjórðungi geymslurýmisins,
og verður það íhugað vand-
lega, hvort ekki sé unnt að
skipa upp í kössum, þó að nú
sem stendur séu fiskvinnslu-
stöðvarnar hér yfirleitt ekki
búnar undir það að taka á
móti kössunum.
RÚMLEGA 20 í ÁHÖFN
í skipinu verða tveggja
manna klefar fyrir háseta, en
yfirmenn verða í eins manns
klefum. Allar kojur verða á
innvegg, en ekki á útveg eins
og áður, sem olli því, að
„ménn voru kaldir öðrum
megin, en heitir hinum meg-
in“, eins og Jón Axel orðaði
það. í eðlilegum rekstri verð-
ur einn maður í sumum há-
setaklefunum. Þá verður um
borð í „Bjarna Benediktssyni“
aukaklefi fyrir 5 eða 6 menn,
sem miðaður er við viðbótar-
mannskap á veiðar í salt. Und-
ir venjulegum kringumstæð-
um verður því hugsanlega
hægt að taka nokkra pilta, sem
áhuga hafa á sjóvinnustörfum
og vilja læra þau, með í veiði-
ferðir. Ekki er að fullu ráðið,
hve margir menn verða í
áhöfn togarans, en samningar
standa nú yfir um þau mál.
Hefur heyrzt, að í stað 30
manna, sem verið hafa á
gömlu togurunum, verði rúm-
lega 20 á skuttogurum af þess-
ari stærð.
MÓTTAKARI FYRIR ÍS- OG
VEÐURKORT
Af ýmsum tækjabúnaði hins
nýja skips má nefna gíró-
kompás með sjálfstýringu, tvo
radara, dýptarmæli með sjálf-
ritara og fisksjá, höfuðlínu-
mæli, sem sýnir stöðu vörp-
unnar í sjó, hve opin hún er
og hvort fiskur er fyrir. Fisk-
leitartæki verður ennfremur í
skipinu og vegmælir, sem seg-
ir til um hraða skipsins miðað
við botn. Þetta er líka eins
konar viðvörunartæki, ef varp-
an rifnar, því að þá myndi
hraði samkvæmt vegmælinum
aukast.
Hátíðnitalstöð 28 rása með
fjarstýringu verður í skipinu,
lóran-staðarákvörðunartæki og
talsími úr brú til tíu staða um
borð, svo og kallkerfi. Þá er
1()
FV 3 1972