Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 17
Þannig mun hinn nýi skuttogari Bœjarútgerðar Reykjavíkur líta út.
vert að geta þess, að togarinn
verður búinn móttakara til að
taka á móti ís- og veðurkort-
um, sem send eru þráðlaust
frá landi eða gervihnöttum.
Eitt meginviðfangsefni loft-
skeytamanns á skipinu verður
eftirlit með þessum margvís-
legu, flóknu tækjum og við-
gerðir á þeim, ef út af ber.
Ganghraði „Bjarna Bene-
diktssonar" er áætlaður 15V2
sjómíla á klst., en það þýðir,
að í söluferðum til Þýzkalands
til dæmis, myndi sparast einn
dagur í siglingu frá því sem
gerist á eldri skipum B.Ú.R.
SIGURJÓN STEFÁNSSON
VERÐUR SKIPSTJÓRI
Skipstjóri á „Bjarna Bene-
diktssyni“ hefur verið ráðinn.
Er það Sigurjón Stefánsson,
sem um árabil hefur verið
skipstjóri á Ingólfi Arnarsyni,
því ágæta aflaskipi. Mun mik-
ill hluti áhafnarinnar af Ing-
ólfi fara yfir á þennan fyrsta
skuttogara Reykvíkinga. Sig-
urjón skipstjóri mun í þjálfun-
arskyni fara út með hafrann-
sóknaskipinu Bjarna Sæm-
undssyni, sem er skuttogari,
en síðan fer hann á Sólbak,
skuttogara Útgerðarfélags Ak-
ureyringa og þar næst um borð
í færeyskan skuttogara. Brezk-
ir og þýzkir útgerðarmenn
höfðu heitið fyrirgreiðslu varð-
andi þjálfun áhafna á skuttog-
ara B.Ú.R., en þau tilboð hafa
verið dregin til baka vegna
ágreiningsins um landhelgis-
málið.
ANNAÐ SKIP í
FEBRÚAR 1973
„Bjarni Benediktsson“ verð-
ur afhentur í ágústmánuði
næstkomandi, en síðara skip
B.Ú.R. í febrúar á næsta ári.
Samið var um fast verð á skip-
inu, 151.796.000,00 króna og
þannig frá því gengið, að það
breyttist ekki þó að kaupgjald,
efni og vélar hækkuðu í verði
á smíðatímanum. Umsjón með
smíði skipanna hafa þeir Er-
lingur Þorkelsson, vélfræðing-
ur, og Alfreð Júlíusson, vél-
stjóri, sem báðir eru nú með
fast aðsetur á Spáni.
FLEIRI SKIP FÁANLEG Á
SVIPUÐU VERÐI
Um kaup á fleiri skuttogur-
Portúgal:
Nærri 30% aukning liefur
orðið í saltfiskframleiðslu
landsmanna frá árinu 1966.
Aðalástæðan er sú, að skreið-
armarkaðurinn í Nígeríu lok-
aðist og hráefnið var því sett
í salt í stað þess að vera hengt
upp. Meðalframleiðslan áður
nam árlega 22—25 'þús. tonn-
um en nú síðustu árin hefur
hún verið 32—39 þús. tonn
á ári. Á þessu árabili varð
framleiðslan niest árið 1968
eða 39 þús. tonn. Á síðasta ári
um fyrir B.Ú.R. frá Spáni
sögðu talsmenn útgerðarinnar,
að um þau væri ekki hægt að
spá, því að enn ætti eftir að
koma í ljós, hvernig fyrsta
skipið reyndist. Aftur á móti
kom það fram af hálfu eig-
enda skipasmíðastöðvarinnar á
Spáni, nú á dögunum, þegar
„Bjarni Benediktsson“ var sjó-
settur, að þeir eru reiðubúnir
að semja um smíði fleiri skipa
á mjög svipuðu verði og gildir
um skuttogarana tvo, sem þeir
vinna nú að fyrir Reykvík-
inga.
nam liún hins vegar um 32 þús.
tonnum.
Að sögn Tómasar Þorvalds-
sonar, formanns Sölusambands
ísl. fiskframleiðenda, hefur
orðið mikil breyting til hins
betra í sölumálum saltfisk-
framleiðenda frá því sem var
á árunum 1968—69. Þá var
saltfiskframboð mikið í heim-
inum m.a. vegna þess að Norð-
menn misstu skreiðarmarkað
sinn í Nígeríu eins og íslend-
ingar.
Saltfisk fyrir tæpan
milljarð
FV 3 1972
17