Frjáls verslun - 01.03.1972, Page 19
BEZTU SAMNINGARNIR
VIÐ PORTÚGAL
Af hálfu íslenzkra aðila er
nú búið að semja um sölu á
öllum saltfiski fyrir þetta ár,
miðað við að veiði á vetrarver-
tíð verði í meðallagi góð. Lang-
stærstu og hagkvæmustu samn-
ingarnir hafa verið gerðir við
Portúgala, en þeir ætla að
kaupa um 14 þús. tonn á árinu,
að verðmæti nærri 1000 millj-
ónir króna. Eru samningar
þessir einkar hagkvæmir, því
að gert er ráð fyrir all rúmri
gæðaflokkun á fiskinum. Þá er
þess líka að, geta, að Portúgal-
ar hafa engar kröfur sett fram
um, að íslendingar auki vöru-
kaup hjá þeim og auk þess
kaupa þeir af okkur saltfisk,
sem engir aðrir vildu fá.
Af öðrum saltfiskkaupend-
um kemur Spánn næstur á
eftir Portúgal með 5—6 þús.
tonn á ári þegar góður fiskur
hefur verið fyrir hendi, þá
ítalia með 4—5 þús. tonn og
Grikkland með 2—3 þús. tonn
af smáfiski.
AUKINN ÚTFLUTNINGUR
TIL S-AMERÍKU
í Suður-Ameríku er saltfisk-
markaður okkar aðallega bund-
inn við Brasilíu og eyjarnar í
Karabíska hafinu. Árið 1967
voru flutt til S-Ameríku rúm
1000 tonn af saltfiski en 1970
var útflutningurinn Kominn
upp í 4000 tonn. Að meginhluta
er þessa fiskmagns neytt sem
fæðu á föstu, en þó dreifist
neyzlan á alla mánuði ársins.
Samkvæmt þeim samningum,
sem nú hafa verið gerðir er
meðaltalsverð á hvert tonn um
780 Bandaríkjadollarar. Samn-
ingar, sem nú hafa verið gerðir,
eru um sölu á blautverkuðum
saltfiski, og er gert ráð fyrir
að fiskurinn veiðist á tímabil-
inu til maíloka og afhendist
síðan á tímanum til júlíloka.
Saltaður ufsi, og annar fisk-
ur í lélegra ástandi er svo salt-
aður og þurrkaður fyrir S-
Ameríkumarkað og verður
hann afhentur í haust.
Tilbúnir réttir um
borð í skipin
Tilraunir í Kanada
Yfirvöld fiskimála í Kanada
hafa gert tilraunir með notk-
un tilbúinna matarrétta um
borð í fiskiskipum og náð tals-
verðum árangri. í Kanada hef-
ur verið mikill liörgull á hæf-
um matsveinum á skipin og
stundum hefur skipum hrein-
lega verið lagt af þeim sökum.
Matreiðslunámskeið, sem
haldin eru, hafa séð veitinga-
húsunum fyrir nægum liðs-
afla, en á bátana hafa farið
innan við 5% þeirra, sem nám-
skeiðin hafa sótt. Þar af leið-
andi hafa sjómenn á fiski-
skipaflotanum kanadíska orð-
ið að sætta sig við fæði af
ýmsu tagi, allt frá mjög sæmi-
legu niður í það allra versta.
Þá hafa tilraunirnar verið
gerðar með það í huga, að
veiðiaðferðir koma í veg fyrir,
að um fastsetta matmálstíma
sé að ræða.
Forstöðumaður tilraunanna,
sem hér um ræðir, segir, að
tilgangurinn með þeim sé
fremur sá, að sjá sjómönnum
fyrir góðu fæði en að lækka
fæðiskostnað. Góður kokkur
eigi fullan rétt á sér, en hins
vegar geti tilbúnir réttir orðið
til að létta undir með honum
við matseldina.
LÍKAÐI VEL
Matvælafyrirtæki, sem fram-
leiðir tilbúna rétti af ýmsu
tagi, hefur gert tíu vikna til-
raun um borð í tveimur skip-
um, í öðru tilvikinu hjá sex
manna áhöfn, sem er að jafn-
aði tvær vikur úti, og í hinu
hjá 16 manna áhöfn, sem er
venjulega 10 daga úti. Hvoru
tveggja eru nýleg skip með
kæliklefum, og lagði fyrirtæk-
ið til annan búnað, sem nauð-
synlegur reyndist, eins og ör-
bylgjuofna til að hita tilbúnu
réttina upp.
Mjög óljósar fregnir bárust
af fyrstu niðurstöðum, því að
fulltrúi matvælafyrirtækisins
varð svo feiknalega sjóveikur,
að menn urðu að sigla með
hann í hasti í land. En allt
benti til þess, að helmingi
skipshafnarinnar á stærra
skipinu líkaði maturinn vel,
20% illa, en 30% var nokkurn
veginn sama. Á þessu skipi
var góður kokkur og hann
hafði mikinn áhuga á tilraun-
unum.
ÓDÝRARI MATUR OG
BETRI
Með tilbúnu réttunum er, að
sögn hinna kanadísku aðila,
hægt að bjóða upp á tvenns
konar rétti á hverjum matar-
tíma, og úrval rétta verður
miklu fjölbreyttara en nú tíðk-
ast á flotanum. Þrjár tilbúnar
máltíðir á dag myndu kosta
sem næst 2,30 kanadískum
dollurum, eða rúmar 200 kr.
ísl. Þar eð matur sá, sem nú
er á boðstólum um borð í skip-
unum, kostar að meðaltali 3
dollara, telja menn, að hin
nýja aðferð muni bæði auka
gæði fæðunnar og lækka mat-
arkostnað.
FV 3 1972
19