Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 21
Sex ríki veiddu 40 miilj.
tonn af fiski 1970.
Heildarafli 69,3 millj. tonna— ísland í 20. sæti
Sjávarafli jókst um nærri
12 milljónir lesta í heimin-
um á árabilinu 1966-1970,
eða úr 57,7 millj. 1966 í
69,3 millj. 1970. Aukning
milli ára 1969-70 nam 6,5
milljónum lesta.
Með því að líta á lista yf-
ir helztu fiskveiðiþjóðir,
kemur í ljós, að þær eru
tiltölulega fáar, sem skipta
með sér þorra þessa afla-
magns. Sex mestu fisk-
veiðiþjóðirnar veiddu sam-
anlagt um 40 milljónir
lesta árið 1970.
Loðnuveiðar á NA-At-
lantshafi hafa mikil áhrif á
heildaraflamagn á þessum
árum. Þær námu 521 þús.
lestum árið 1966, 855 þús.
lestum 1969, og 1515 þús.
lestum 1970.
Það eru Norðmenn, ís-
lendingar og Sovétmenn,
sem veitt hafa loðnuna, og
aukning milli ára 1969-70
var sú, að Norðmenn fóru
úr 678.900 tonnum 1969
upp í 1301.000 tonn 1970,
íslendingar úr 171.000 tonn-
um í 191.800 tonn og Sovét-
menn úr 500 tonnum 1969
í 13.100 tonn 1970.
Þorskveiðum hefur dreg-
ið úr. Árið 1969 voru veidd
2.122.700 tonn af NA-At-
lantshafsþorski, en 1.867.300
tonn árið 1970. Sum ríki
juku þó veiðar sínar á
þessu tímabili: Noregur úr
378.600 tonnum 1969 í 403,-
600 1970, ísland úr 286.200
í 308.300 og Danmörk úr
94.500 í 96.700 tonn.
Hjá þeim þjóðum, sem
stunda veiðar á fjarlæg
mið á stórum skipum,
minnkaði þorskafli hins
vegar. Þannig veiddu Bret-
ar 450.800 tonn af þorski
1969, en 408.000 tonn 1970.
Sovétmenn veiddu fyrra ár-
ið 627.200 tonn, en það
seinna 334.800 tonn.
Land Veiði 1970 (í þús. tonna) “ C: 3« Veiði 1969 (í þús. tonna) Röð 1969
Perú 12.612,8 í 9.243,6 1
Japan 9.308,5 2 8.613,4 2
Sovétríkin 7.252,2 3 6.498,4 3
Kína 5.800,0 (áætl.) 4 5.800,0 (áætl) 4
Noregur 2.980,2 5 2.481,0 5
Bandaríkin 2.714,3 6 2.463,9 6
Indland 1.745,9 7 1.605,0 8
Thailand 1.595,1 8 1.269,6 12
S.-Afríka 9 1.874,8 7
Spánn 1.496,6 10 1.496,0 9
Kanada 1.377,5 11 1.404,8 10
Indónesía 1.249,0 12 1.214,4 13
Danmörk 1.226,5 13 1.275,4 11
Chile 1.161,0 14 1.076,9 15
Bretland 1.099,0 15 1.083,0 14
Filipseyjar 989,9 16 978,1 16
S.-Kórea 933,6 17 879,1 17
N.-Kórea 800,0 (áætl.) 18 800,0 (áætl.) 18
Frakkland 775,2 19 770,5 19
ísland 733,8 20 689,5 20
FV 3 1972
21