Frjáls verslun - 01.11.1974, Blaðsíða 43
ir blaðamanni FV. og sögðu
að þessi nýja tækni, þar sem
hægt er að nota venjulegan
pappír, gerði vélina mun hag-
kvæmari en aðrar ljósritunar-
vélar á markaðnum. Sögðu
þeir rekstrarkostnað hennar
um helmingi minni en venju-
legar ljósritunarvélar, auk
þess sem þeir sögðu þessa nýju
tækni ná fram mun meiri gæð-
um en eldri aðferðir.
FYRIRFERÐARLÍTIL.
Meðal kosta Nashua Delta
vélarinnar má nefna, að hún
er fyrirferðarlítil. Gerir hún
mjög nákvæmar eftirlíkingar
af frumbréfum, þar sem hægt
er að ráð,a blæ prentunarinn-
ar. Hún getur gert þrjár mis-
munandi stærðir af afritum án
þess að skipta þurfi um papp-
ír. Pappírinn fer nánast beina
línu í gegn um vélina og
krumpast því ekki. Sérstak-
lega er auðvelt að taka ljósrit
upp úr bókum, án þess að
skemma þær. Loks má svo
nefna að hægt er að fá aðr
eins eitt afrit, eða láta hana
telja sjálfa niður í 0 á bilinu
20 til 0, og svo er líka hægt að
stilla hana á áframhald og
heldur vélin 'þá áfram á með-
an pappír endist.
Nashua-fyrirtækið selur ár-
lega fyrir um 200 milljónir
dollara á þessu sviði og í sam-
bandi við tölvur. Fyrirtækið
rekur skrifstofur í um það
bil 90 löndum og starfrækir
17 verksmiðjur. Starfsfólkið er
nú um fjögur þúsund manns.
Skrifstofutækni h.f.:
IMý þjónusta í nýju húsnæði
Skrifstofutækni hf. er aðeins tveggja og hálfs árs fyrirtæki
og er í örum vexti. Fyrirtækið var fyrst til húsa að La’uga-
vegi 178, en vegna síaukinna umsvifa varð það húsnæði brátt
of lítið.
Fyrir skömmu flutti það því
starfsemi sína niður í Hafnar-
stræti, Tryggvagötumegin, þar
sem áður var veiðarfæradeild
O. Ellingsen, en það er mun
rýmra húsnæði en var á
Laugavegi 178.
Skrifstofutækni hf. hefur nú
til umráða 200 fermetra hús-
næði fyrir verzlun og viðhalds-
þjónustu. í sambandi við verzl-
unina, starfa fimm manns við
sölustörf, en jafnmargir starfa
í viðhaldsdeild, við viðgerðir,
viðhald og eftirlit.
ÞJÁLFAÐIR ERLENDIS.
Þrír starfsmenn viðhalds-
deildar eru skrifvélameistarar,
en allir hafa fengið starfsþjálf-
un erlendis, hjá Olivetti. Við-
haldsdeild sér um hvers konar
viðgerðir. Öllum vélum frá
Skrifstofutækni hf. fylgir eins
til tveggja ára ábyrgð. í sam-
bandi við nýja húsnæðið býð-
ur fyrirtækið upp á fjölbreytt-
ara vöruval en áður. Auk Oli-
vetti-véla og Rapidam-raf-
reikna, býður fyrirtækið upp
á skrifstofúhúsgögn af nýjustu
gerð, teikniborð og teiknivél-
ar, bréftætara, skjala- og pen-
ingaskápa o. fl.
Stofnendur Skrifstofutækni
hf. eru Penninn hf. og tækni-
menn sem starfað höfðu við
Olivetti-viðhald og hlotið þjálf-
un erlendis. Framkvæmdastjóri
er Bjarni Bjarnason, viðskipta-
fræðingur, en sölustjóri Skrif-
stofutækni hf. er Pétur Rafns-
son. Fyrirtækið hefur einkum
starfað sem söluumboð fyrir
Olivetti og kynnt margs konar
nýjungar á sviði rafreikna,
ljósprentunarvéla, ritvéla og
bókhaldsvéla.
VERKSMIÐJUR VÍÐA UM
HEIM.
Fyrirtækið Olivetti var
stofnað fyrir 67 árum á ítalíu.
Nú hefur Olivetti verksmiðjur
í mörgum löndum og söluum-
boð í flestum löndum heims.
Um 75 þúsund manns starfa
hjá Olivetti verksmiðum við
framleiðslu á rúmlega 200
vörutegundum, allt frá ferða-
og skólaritvélum til flóknustu
rafreikna og tölvugerða.
Úr hinni nýju verzlun Skrifstofutækni hf. í Hafnarstræti 17.
Rafreiknar skoðaðir.
FV 11 1974
43
L