Frjáls verslun - 01.12.1975, Síða 19
Noratom-
Norcontrol
hefur
smíðað um
helming'
allra tækja,
sem sérstak-
lega hafa
verið gerð til
að koma í
veg fyrir
árekstra
skipa.
Fyrirtækið
hefur
líka smíðað
Data-Cliief
tölvu-
stýringu
fyrir vélar-
rúm, sem hér
er verið að
prófa.
flotinn er einn hinn stærsti í
heimi og Norðmenn eru meðal
tíu mestu skipasmíðaþjóða í
heimi hafa þeir að sjálfsögðu
lagt talsverða áherzlu á smíðar
alls konar tækja- og vélbúnað-
ar fyrir skip. Heimamarkaður
fyrir þessa framleiðslu er stór,
bæði fiskiskip og kaupskip, og
með góðri samvinnu við eig-
endur og stjórnendur, hönnuði
og skipasmiði, hafa verkfræð-
ingar fundið upp margháttuð
tæki til að auka öryggi og
bæta rekstur.
Norskar skipasmíðar eru
mjög þýðingarmikil útflutn-
ingsgrein. Skipasmíðastöðv-
arnar hafa verið stækkaðar
undanfarin ár og Aker-sam-
steypan hefur framleitt í rað-
smíði 220.000 tonna olíuskip
og einnig 285.000 tonna. Þá
er samsteypan með áform um
að smíða enn stærri skip í
framtíðinni. Kværner-sam-
steypan hefur einkaleyfi á
skipum til að flytja fljótandi
gas og eru þau nú framleidd
samkvæmt leyfi viða um
heim Um 100 skipasmíða-
stöðvar eru nú starfræktar í
Noregi og hafa þær í aukn-
um mæli tekið að sér smíðar
á oliuborpöllum, sem notaðir
eru á Norðursjónum og víðar.
Dæmi eru um að slík ferlíki
hafi verið smíðuð inni á höfn-
inni í Osló og síðan siglt fyrir
eigin vélarafli austur á Ind-
landshaf.
Þá eru starfandi 150 verk-
smiðjur sem framleiða sigl-
ingatæki og annan útbúnað í
skip, sem seldur er til skipa-
smíðastöðva heima og erlendis.
í mörgum greinum hafa þær
komið fram á sjónarsviðið með
nýjungar eins og vökvadrifin
spil, stýrisvélar og skrúfur.
Núna er margt af þessu smíð-
að samkvæmt samningum í
öðrum löndum en t. d. hafa
vökvadrifin spil verið seld í
skip í 30 löndum. Má geta þess
að ein skipasmíðastöð í Japan
útbýr um 75% af allri nýsmíði
hjá sér með spilum, sem hún
framleiðir samkvæmt leyfi
frá norskri verksmiðju.
• KOL OG MÁLMAR.
Námagröftur er ein elzta at-
vinnugrein í Noregi. Fyrsta
járnið var unnið þar fyrir
2000 árum, en þrjár stærstu
námurnar í Noregi voru ekki
teknar í notkun fyrr en á 17.
öld, og er tiltölulega skammt
síðan nýtingu þeii’ra var hætt.
Járnsteinn, kopar og brenni-
steinskís eru mikilvægustu
jarðefnin, sem finnast í Noi’-
egi, aðallega nyrzt í landinu.
Mikið er enn ókannað af hugs-
anlegum námasvæðum uppi í
fjöllunum.
Svalbai’ði er sennilega kunn-
asta námasvæði Norðmanna.
Þar hafa kol verið grafin úr
jörðu mestan part þessarar
aldar, en þaðan eru nú flutt
i’úmlega 400.000 tonn af kol-
um á ári. Skilyrði á eyjunum
á Svalbarða eru hörð. I meir
en hundrað daga á ári rís sól-
in ekki yfir sjóndeildarhring-
inn. Um miðjan vetur er
kuldinn í námunum þó ekki
nema -^-3 gráður. Fáir hafa
þar vetui’setu aðrir en náma-
verkamenn og fjölskyldur
þeirra, veðurathugunarmenn
og veiðimenn. Margir náma-
verkamennirnir starfa á Sval-
barða á veturna en stunda
landbúnað í Norður-Noregi á
sumrin.
• STÓRIÐJAN.
Það má segja, að fjöllin hafi
valdið því að Noregur varð
iðnaðai’land. f fjöllunum eru
uppspretturnar fy.rir raforku-
verin, sem gera Noreg að
mesta rafmagnsframleiðanda í
Evrópu að Sovétríkjunum und-
anskildum. Til iðnaðar fara
65% af orkunni þar af 50%
til málmbræðslu og efna-
vinnslu. Greiður aðgangur að
þessari miklu orku opnaði
möguleika fyrir stóriðju þó að
hráefnin verði að koma langan
veg að og markaðir fyrir hina
unnu vö.ru séu langt undan.
Stækkun málmbræðsluverk-
srniðja og rekstur þeirra í
framtíðinni byggist á því að
Noi’ðmenn geti selt raforku á
samkeppnishæfu verði.
Árið 1850 notaði Napóleon
keisari 3. matarstell sem var
dýrara en gulldiskar. Nvju
diskarnir hans voru úr áli. Nú
nota allir ál og árlega eru not-
uð um 8 milljón tonn af því í
heiminum. Álframleiðslugeta
Norðmanna einna er rúmlega
700.000 tonn á ári og aðeins
Bandaríkjamenn og Kanada
framleiða meira.
Álframleiðsla hófst í Noregi
fyi’iv meir en hálfri öld, þegar
tvær bræðslur í eigu Breta
voru settar á stofn árin 1907
og 1908 en það var ekki fyrr
FV 12 1975
19