Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1975, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.12.1975, Blaðsíða 25
mestur hluti þessa fólks hefur fundið störf að nýju í iðnaði. Helmingur fiskimannanna nú stundar sjómennsku einvörð- ungu en 1948 voru þessir „at- vinnumenn" aðeins einn fimmti hluti allra fiskimanna í Noregi. MÖRG LÍTIL SKIP. Skráð eru næstum 27.000 fiskiskip í Noregi en þar af eru rúmlega 19.000 opnir bát- ar, trillur, sem eigandinn rær oftast á einn. Af þilfarsbátun- um 7.500 talsins eru flestir litlir og stunda veiðar uppi við land. Þetta eru yfirleitt lítil skip, 4800 eru nefnilega undir 40 fetum á lengd og aðeins 600 skip eru yfir 100 brúttó- tonnum. Árlegur afli Norðmanna er um 3,2 milljónir tonna eða sem svarar 5% af heildarfiskafla í heiminum. Norðmenn, sem flytja út 90% af aflanum, eru fimmtu í röðinni af fiskveiði- þjóðum, koma á eftir Japan, Sovétríkjunum, Kína og Perú. Aðeins örlítill hluti af fengn- um fer til neyzlu óunninn. Það er ekki aðeins skipa- kosturinn í fiskveiðiflotanum sem er ólíkur og dreifður, því að fiskvinnslustöðvarnar eru af ýmsum stærðum og stað- settar meðfram allri Noregs- strönd. Þær munu vera sam- tals um 1700 talsins og hjá þeim starfa um 20.000 manns. Þetta er ein af ástæðunum fyr- ir því, hve víða áhrifa sjó- manna gætir í norsku þjóðlífi. ÖFLUG SAMTÖK. Fiskimenn hafa með sér öfl- ug samtök, Norsk Fiskerlag, sem standa utan Alþýðusam- bandsins. Öll sala á fiski og skelfiski frá sjómönnum fer fram á vegum lögverndaðra samvinnufyrirtækja. Þessir að- ilar hafa sterk og bein áhrif á mótun stjórnarstefnunnar gegnum sjávarútvegsráðuneyt- ið. Því var komið á stofn árið 1946 og var Noregur fyrsta ríkið, sem setti upp sérstakt ráðuneyti fyrir sjávarútvegs- mál. Undanfarin nokkur ár hefur ráðuneytið miðlað nið- urgreiðslum til sjávarútvegs- ins, að meðaltali um 180 millj. norskra króna árlega, og er þetta fyrst og fremst gert til að viðhalda litlum byggðum úti á landi, sem ella myndu líða undir lok. Síðan haustið 1974 hafa niðurgreiðslurnar farið ört hækkandi vegna sölu- tregðu á erlendum mörkuðum. Beinar niðurgreiðslur munu á þessu ári nema 350 milljónum n. króna en að auki hafa 600- 700 milljónir verið lagðar í sérstaka lánasjóði fyrir útgerð- ina og vinnslustöðvar. Norskir fiskimenn hafa lagt fast að ríkisstjórninni að tryggja útfærslu norsku fisk- veiðilögsögunnar. Sem svar við þessu skipaði forsætisráð- herrann Jens Even'sen, fyrr- um viðskiptaráðherra, í ný- stofnað embætti hafréttarráð- herra í september 1974. Um leið var tilkynnt um aðgerðir í þremur áföngum: • Bann við togveiðum á viss- svæðum við Norður-Noreg í árslok 1974. • Fimmtíu mílna fiskveiði- lögsögu í árslok 1975. • 200 mílna efnahagslögsaga verði lokamarkmiðið en um hana verði samið á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Fyrsta áfanganum var náð einum mánuði á eftir áætlun að loknum viðræðum við lönd Efnahagsbandalagsins, þar á meðal Bretland, og ennfrem- ur Sovétríkin, Pólland og Aust- ur-Þýzkaland. BANN VIÐ TOGVEIÐUM. í ársbyrjun 1975 náðist sam- komulag um bráðabirgðaráð- stafanir sem felast í því, að á þremur aðalsvæðum eru togveiðar bannaðar að vetrar- lagi. Norðmenn hafa lýst á- nægju sinni yfir því hve vel þetta samkomulag var haldið það sem eftir var af vetrarver- tíðinni síðustu. Sérstakra að- gerða í Barentshafi var þörf vegna aukinnar sóknar togara á þau mið um leið og afli fór minnkandi á öðrum veiðisvæð- um. Hættan á ofveiði var því augljós. Eftir að þetta samkomulag náðist um Barentshafið, hafa norsk yfirvöld staldrað við og safna kröftum fyrir næstu lotu. Þau vilja fara samninga- leiðina, sem er bugðótt og ströng. í grein í brezka blaðinu Economist er því lýst, að Norð- menn hafi mikla samúð með íslendingum í landhelgismál- inu, en kunni aftur á móti illa einhliða aðgerðum þeirra. Hagsmunir Norðmanna í haf- réttarmálum eru líka flóknari ísland sækist aðeins eftir að vernda rétt sinn til fiskveiða en Noregur, sem forystuþjóð í siglingum, leggur mikla á- herzlu á að frjálsar siglingar séu tryggðar skipum allra þjóða. Þeir hafa miklar á- hyggjur vegna kröfu sumra Suður-Ameríkuríkja um 200 mílna landhelgi og greina skýrlega á milli mismunandi réttinda þjóða í þessu sam- bandi. Flokkunin er sú, að 12 mílur gildi sem lögsaga, 50 milur fyrir fiskveiðimörk og 200 mílur vegna nýtingar auð- linda á hafsbotninum. ÞÁTTUR EVENSEN. Jens Evensen hefur auga- stað á hafréttarráðstefnunni 1 New York næsta vor til þess að semja þar um 200 mílna auðlindalögsögu og hefur um sinn dregið úr kröfunni um 50 mílurnar. Hann sætir gagn- rýni af hálfu hagsmunaaðila í sjávarútveginum norska, sem segja hann of áhugasaman um að gegna hlutverki hins virta stjórnmálamanns á alþjóðleg- an mælikvarða, þannig að hagsmunir norska sjávarút- vegsins hafi gleymzt. Upphaflega voru norskir fiskimenn á móti olíuborunum í Norðursjónum. Þeir óttuðust að bygging olíupallanna gæti haft truflandi áhrif á fisk- stofnana og þá óaði við tiihugs- uninni um olíuleka. Þeir börð- ust mjög ötullega fyrir ráð- stöfunum til að koma í veg fyrir slík slys og ennfremur til verndar starfsmönnum borpall- anna. Norska stjórnin varð við kröfum þeirra og setti mjög strangar öryggisreglur fyrir öll norsk olíumannvirki. FV 12 1975 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.