Frjáls verslun - 01.12.1975, Síða 38
Skarphé&inn Árnason, forstjóri Flugleiða í Osló:
„Reynum fyrst og fremst að selja
ferðir til íslands, þegar flest
sæti og hótelherbergi eru laus“
iVorðmönnum boðnar ódýrar helgarferðir til íslands í vetur
Ferðir Flugfélags íslands til Oslóar voru hafnar 1952 en þá var áætlun haldið uppi yfir sumarmán-
uðina og voru fulltrúar félagsins þá staðscttir í borginni meðan vertíðin stóð yfir. Það var hins
vegar 1. janúar 1957, að félagið opnaði skrifstofu í Osló og var það Skarphéðinn Árnason, sem þá
starfaði á Kaupmannahafnarskrifstofu félagsins, er skipaður var forstöðumaður hennar. Hcfur
Skarphéðinn starfað í Osló nærri samfellt síðan með þeirri undantekningu að um skamma hrið
vann hann fyrir félag sitt í Hamborg.
Skarphéðinn Árnason fyrir framan söluskrifstofu Flugleiða við
Friðþjófs Nansens-torg í Osló, gegnt ráðhúsi borgarinnar.
— í -byrjun var ég eini starfs-
maðurinn á skrifstofunni og
það má segja að þetta hafi ver-
ið kotbúskapur, því að ég hafði
eitt skrifstofuherbergi með
manni sem seldi notaða bíla.
Það var kolaofn á kontórnum
og eftir á að hyggja voru húsa-
kynnin langt fyrir neðan virð-
ingu Flugfélagsins. Það gerðist
oft að menn hringdu með ein-
hver erindi við mig og spurðu
hvort þeir mættu ekki koma
við á skrifstofunni en vegna
þess hvað frumstætt húsnæðið
var svaraði ég, að slíkt væri al-
gjör óþarfi, þvi að ég væri ein-
mitt að fara út í bæ og skyldi
koma við hjá þeim!
Að sögn Skarphéðins var
skrifstofan á hálfgerðum ver-
gangi þar til hún fékk inni í
húsi samtaka norsku sveitarfé-
laganna. Engin söluskrifstofa
var starfrækt en mest áherzla
lögð á kynningarmál og þá sér-
staklega gagnvart ferðaskrif-
stofunum.
• ÞÁTTUR LOFTLEIÐA
Og þar eð Skarphéðinn er
nú forstjóri fyrir skrifstofu
Flugfélags íslands og Loftleiða
í Osló vék hann talinu að starf-
semi hins síðarnefnda, sem var
mikil í Noregi á þessum árum.
Noregur var eitt bezta við-
skiptaland Loftleiða og höfðu
vélar félagsins þá viðkomu í
Stavanger á ferðum sínum milli
Norðurlanda og Bandaríkjanna.
Félagið hafði nána samvinnu
við flugfélag Ludvig Braathens
meðal annars um viðhald á
flugvélum, sem fram fór í
Stavanger og einnig höfðu
Loftleiðir á leigu tvær flug-
vélar um nokkurt skeið frá
honum. Einn fulltrúi, Eyjólfur
Eyjólfsson, vann þá á vegum
Loftleiða í Osló.
Á vegum Flugfélags íslands
var farin ein ferð í viku um
Osló strax um veturinn eftir að
skrifstofan tók til starfa og
voru það í fyrstu Skymaster-
vélar, sem höfðu þar viðdvöl á
leiðinni til Kaupmannahafnar.
Þessar vélar höfðu sæti fyrir
60 manns og það fóru ekki
ýkja margir um borð í Osló.
Næsta sumar komu svo Vis-
count-vélarnar til sögunnar og
var þá boðið upp á meiri hraða
og betri þjónustu.
• SAMKEPPNI VIÐ SKIPIN
Þetta var landnámssaga Flug-
félagsins í Noregi. Flug Loft-
leiða til landsins hafði staðið
lengur en samkeppnin var þó
aðallega við skipin, því að sum-
arferðir strandferðaskipsins
Heklu til Norðurlandanna voru
þá mjög vinsælar. Skipafar-
38
FV 12 1975