Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1977, Síða 9

Frjáls verslun - 01.12.1977, Síða 9
í stattn máli # Aukning á ullarframleiðslu Eitt þeirra mála, sem Útflutnings- miðstöðin beitti sér fyrir var að koma á verðbótum á ull. Talið var að þær gætu stuðlað að tvennu: 1. Auknum skilum á ull frá bændum og þar með til iðnaðarins. 2. Auknum gæðum ullarinnar. Frá 1. desember 1975 hafa verið greiddar verðbætur á ull sem kemur frá bændum. Þetta hefur leitt til þess aö ull til skila hefur aukist um 200 tonn, úr ca. 1400 tonnum 1973 og 1974 í ca. 1600 tonn 1976. Auk þess hefur orðiö mikil aukning í vetrarrúinni ull, eða 100% frá 1974 til 1977. Frá 1. september 1977 til 31. ágúst 1978 verða greiddar kr. 330 í verðbætur á kg ullar. # Frystigámar hjá Sambandinu Skipadeild Sambandsins er um þess- ar mundir að taka í notkun fiysti. gáma. Fyrirhugað er að nota þá til aö flytja út fryst kjöt og frystar sjávar- afurðir, og til innflutnings á frystu grænmeti og kældum ávöxtum. Að sögn Axels Gíslasonar frkvstj. eru þessir gámar hver um sig með sjálfstæðum frystibúnaði, og er hægt að halda hitastiginu í þeim hverjum fyrir sig neðan við frostmark eða rétt ofan við það, eftir því hvort verið er að flytja frystar vörur eða kælivörur, eins og t.d. ávexti. Sömuleiðis er hægt að nota þessa gáma til að flytja í vörur, sem ekki mega frjósa, og einangra þær þar frá kulda utan þeirra, þótt ekki sé gert ráð fyrir að þeir verði notaðir í þeim tilgangi í skipum Skipadeildar. Eitt af Sambandsskipunum, ms. Hvassafell, er sérstaklega útbúið til að flytja slíka gáma, og er hugmyndin að nota þá fyrst og fremst á siglingum til Rotterdam, Antwerpen og Hull. Verða þeir þá notaðir til að flytja kjöt og sjávarafurðir til þessara hafna, en á heimleiðinni verða þeir notaðir til að flytja fiyst grænmeti og kælda ávexti. Fyrsti kjötfarmurinn, sem fluttur verð- ur í gámunum, fór með Hvassafelli nú um áramótin. Verða gámarnir fylltir 1 Afurðasölu Sambandsins á Kirkju- sandi, og þeim síðan ekið að skipshlið. # FVIik.il gróska í ullariftnaði í árslok 1977 voru starfandi 15 prjónastofur hér á landi, sem fram- leiða til útflutnings, og fjölgaöi prjóna- stofunum um tvær á árinu. Stærð þess- ara þrjónastofa eru þó ákaflega mis- munandi og eru þær með allt frá einni prjónavél upp í rúmlega 20 prjónavélar. Pólarprjón á Blönduósi og Hekla á Akureyri hafa nú flestar prjónavélar. Öll áðurnefnd fyrirtæki reka jafnframt saumadeild. Auk þess eru 12 fyrirtæki, sem eingöngu reka saumastofur sem byggja mikið á út- flutningi og hefur þeim fjölgað um þrjár á árinu. Vitað er nú um fyrir- hugaða stofnun nýrrar prjónastofu og tveggja nýrra saumastofa. # Væntanlegar vörusýningar Á árinu 1978 er ráðgert að íslensk fyrirtæki taki þátt í um 20—25 er- lendum vörusýningum. Þær fjórar fyrstu eru: Heimtextilen í Frankfurt, 11.—15. janúar, sem er stærsta textilsýning í heiminum. Þátttakendur verða Ála- foss hf. og Ullarverksmiðjan Gefjun. Útflutningsmiðstöðin verður með Uþp- lýsingabás á þessari sýningu. Glit hf. tekur þátt í Gavemessan, 15.— 18. jan- úar, í Oslo. Prjónastofan Iðunn hf., Les-prjón og Röskva hf. taka þátt í þrjónavörusýningunni International Knitwear Fair í London, 19.—23. febr- úar. 6—8 íslensk fyrirtæki munu taka þátt í Scandinavian Fashion Week í Kauþmannahöfn, 16.—19. mars. Út- flutningsmiðstöðin mun verða með uþplýsingabás á þessari sýningu. FV 12 1977 9

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.