Frjáls verslun - 01.12.1977, Page 16
IXioretfur
Um 34 þúsund manns starfa
hjá norskum skipasmíða-
stöðvum
Hjá norskum skipasmíðastöðvum starfa nú um 34 þús. manns og að auki milli 12 og 15 þús.
hjá ýmsum undirverktökum stöðvanna. Að sjálfsögðu eru stöðvarnar aðallega staðsettar meðfram
2655 kílómetra langri strönd Noregs og í ýmsum byggðarlögum veita þær meirihluta vinnandi
fólks fastan starfa. Lengst gengur bessi þróun í Ulsit'ein og Storði á Vesturlandi, þar sem skipa-
smíðastöðvarnar hafa 93% og 80% alls vinnuafls starfandi í sína þág,u. Þannig eru þessi byggðarlög
fullkomlega háð skipasmíðaiðnaðinum.
Skipasmíðar í Noregi eiga sér
að sjálfsögðu langa hefð vegna
nálaegðar Norðmanna við sjó-
inn í þúsund ár. Við uppgröft,
sem fram hefur farið í skipa-
smíðastöð Aker á Storði hafa
fundizt minjar um bátasmiðjur
síðan um 500 e. Kr.
GÖMUL HEFÐ
Skipasmíðar í Noregi hefur
gengið frá einni kynslóð til
annarrar, frá því að byggð voru
langskip til vikingaferða á
Storði fram til vorra tíma, þeg-
ar byggð eru risaolíuflutninga-
skip, allt að 285 þús. tonn. Aí*
öllum iðnverkamönnum í Nor-
egi hafa um 8,7% atvinnu af
skipasmiðum. Aðallega eru
skipasmíðastöðvarnar litlar
hvað afkastagetu snertir og
fjölda starfsmanna og aðeins
fáar geta talizt stórar á alþjóð-
legan mælikvarða. Skipin, sem
Norðmenn framleiða eru af öll-
um gerðum, allt frá litlum fiski-
bátum til olíuflutningaskipa,
sem eru 300 lestir að stærð eða
meira. Aukinn fjöldi stöðva sér-
hæfir sig nú í gerð ákveðinna
tegunda skipa til sérstakra nota.
Tankskip
fyrir
jarðgas
í smíðum
í norskri
skipa-
smíðastöð.
NÝ VERKEFNI
Á síðustu árum hefur þróun-
in verið í þá átt, að skipasmíða-
stöðvarnar hafa farið að sinna
nýjum verkefnum, aðallega við
gerð margs konar búnaðar til