Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1977, Side 31

Frjáls verslun - 01.12.1977, Side 31
Brezk athugun Helztu orsakir gjaldþrots „Duldu” orsakirnar eru oftast raunverulegu orsakir gjaldþrota að sögn brezks lögfræðings Stjórnun fyrirtækis getur verið krefjandi, spcnnandi og skemmtilegt starf; en það getur einmg verið samfelld martröð mistaka og vonbrigða. Á þessum tímum alþjóðlegra efnahagssveiflna eru gjaldþrot fyrirtækja daglegt brauð. Þessi grein getur gefið vísbendingu um hve einstaklingur er vcl í stakk búinn 'til stjórnunar. Breskur lögfræðingur sem mikið hefur fengist við gjald- þrotamál segir að gjaldþrot fyr- irtækis þyggist á tveimur grundvallaratriðum; augljósu orsökunum og hinum duldu or- sökum gjaldþrotsins. ,,Það eru augljósu orsakirnar sem ég kynni í réttinum" segir hann, ,,en þær duldu eru oftast raun- verulegu orsakir gjaldþrots- ins“. AUGL.TÓSAR ORSAKIR GJALDÞROTA Rannsóknir á gjaldþrotum hafa leitt í ljós að augljósar or- sakir í flestum tilvikum eru: — Fjármagnsskortur. — Léleg framkvæmdastjórn. — Ekki nægilegur markaður fyrir framleiðslu. — Reynsluleysi í markaðs- tækni. DULDAR ORSAKIR G.TALDÞROTA Að baki augljósu orsökunum eru oft aðrar orsakir sem ef til vill koma ekki uppá yfirborð- ið nema grannt sé skoðað. Þær orsakir eru oftast persónu- bundnar og tengdar stjórnend- unum. Þessar orsakir eru m.a. vanheilsa, skortur á þekkingu og hæfileikum sem nauðsvnlegt e’’ að stjórnandi hafi á reksturs- svíði fvrirtækisins, mistök í stefnumörkun fyrirtækis. ó- raunveruleg persónuleg mark- mið, skortur á heilbrigðri dóm- greind vð skipulag og áætlana- gerð, rangar ákvarðanir og van- hæfni til að stjórna fólki. ÞEKKING OG HÆFILEIKAR Segjum svo, að bú hafir þá þekkingu os revnslu sem staða þín krefst. f Ijósi þess skaltu svara eftirfarandi spurningum: — Hefði ég gagn af aukinni þekkngu á eftirtöldum sviðum: auglvsinvatækni. bókhaldi. skattqrnálum. trvggingum. lög- fræði eða viðskiptatækni? — Hvaða önnur svið gæti verið gagnlegt að bekkia bet- ur auk beirra sem nefnd eru í snnrningunni að framan: tækni- leg mál, mannleg samskipti? Og á hvern hátt. væri mögulegt fvrir mig að afla mér þeirrar þekkingar? — Ver ég tíma mínum með tilljt.i til hámarksnýtingar hans? SKTT.GREINDU RAUNHÆF MARKIVHD Eðlilegasta markmið er gróði á sviði framleiðslu, sölu eða kostnaðarminnkunar. En al- gengt er að ýmis persónuleg markmið sitji í fyrirrúmi, svo sem; — að slá út keppinauta, — að öðlast viðurkenningu sem virtur persónuleiki í við- skiptalífinu og jafnframt í fé- lagslífi. HEILBRIGÐ DÓMGREIND Sennilega er skortur á heil- brigðri dómgreind algengasta orsök mistaka og gjaldþrota. Vanhæfni í því að meta hvern- ig rétt og skynsamlegt sé að bregðast við vandamálum hins daglega lífs er stórkostleg fötl- un. Viðbrögð barna við hættum eða erfiðleikum geta oft verið óútreiknanleg. Sumt fullorðið fólk heldur áfram að bregðast við á óútreiknanlegan hátt líkt og það gerði í barnæsku. Hér eru spyrðuð saman nokk- ur dæmigerð einkenni um heil- brigða dómgreind og hið gagn- stæða. Sértu gefinn fyrir sjálf- skoðun og nógu heiðarlegur gagnvart sjálfum þér mun próf- ið koma þér að gagni. Taktu hverja línu fyrir sig og strik- aðu við það sem þú álítur vera þín raunverulegu viðbrögð. A Málinu skotið á frest.. Flótti frá vandamálum. Gera lítið úr öðrum. FV 12 1977 31

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.