Frjáls verslun - 01.12.1977, Qupperneq 42
Ityggingavöruverzlun Kópavogs:
Byggir nýja verzlun inni á
Kópavogshálsinum
Timbursala stærsti hlutinn af verzlun fyrirtækisins
— Það hafa verið óskaplega miklar breytingar frá þeim tíma er ég byrjaði í þessu. Þá var áberandi
minni kaupgeta hjá almenningi, vöruval miklu minna og allur innflutningur á byggingavörum háð-
ur leyfum. Fólk keypti bara það sem til var. Ekki var hægt að selja neitt nema leyfi fengist frá
fjárhagsráði og síðan þurfti að gera mánaðarlega skýrslu til fjárhagsráðs.
Það er óvíða jafn skemmtillegt að skoðla sig um í verzlun og í
BYKO í Kópavogi.
Þetta sagði Guðmundur H.
Jónsson forstjóri Bygginga-
vöruverslunar Kópavogs eða
BYKO eins og hún er kölluð í
daglegu tali, þegar blaðamaður
ræddi við hann á skrifstofu
hans á 4. hæð BYKO hússins á
Nýbýlavegi.
STÆRSTI HLUTURINN ER
TIMBURSALAN
Byggingavöruverslun Kópa-
vogs er stærsta byggingavöru-
verslun á landinu, hvað veltu
snertir. Þegar fyrirtækið tók til
starfa 1962 var öll starfsemin
til húsa að Kársnesbraut 2, en
þar er nú timbursalan, sala á
steypustyrktarjárni og þunga-
vörum, en á Nýbýlavegi 6 er
byggingavöruverslunin og skrif-
stofur, og í Auðbrekku er sér-
stök deild, sem selur plötur og
þiljUr og sagar niður plötur.
Stærsti hluturinn í starfsem-
inni er timbursalan.
INNFLUTNINGUR VAR
HÁÐUR LEYFUM
Guðmundi varð fyrst tíðrætt
um gamla tímann og þær höml-
ur, sem voru í innflutningi
byggingavara. — Innflutning-
ur á gólfdúk var iháður leyfum
eins og annað. Fluttur var inn
gólfdúkur frá A-Evrópu, en sá
dúkur var allur eins. Flísar
voru fluttar inn frá Tékkó-
slóvakíu og A-Þýskalandi. Lita-
úrval var ekkert, allt hvítt.
Stuttu eftir að fyrirtækið tók
til starfa, var gefinn frjáls inn-
flutningur á flísum og þá var
farið að flytja inn mosaik flís-
ar frá Japan. Beðið var eftir
hverri sendingu og allt seldist
upp um leið. Byggingavöru-
verslun Kópavogs var sú fyrsta,
sem flutti inn mosaik.
— Fólk málaði í sterkum lit-
um og mosaikið var mjög lit-
ríkt, og um tíma var fólk held-
ur litaglatt. Síðan var farið að
mála í mildari litum og þá
fóru flísar í mildum litum að
koma inn í dæmið og fluttum
við þær inn frá Bretlandi, en
nú flytjum við inn flísar frá
V-Þýskalandi.
Nú er hægt að kaupa efni,
hvaðan sem er. Sáralítill eða
enginn innflutningur er frá A-
42
FV 12 1977