Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1977, Síða 45

Frjáls verslun - 01.12.1977, Síða 45
Verðið tíu álagningar- stigum lægra en í öðrum verzlunum — segir Guðmundur Jónasson, verzlunarstjóri m.a. til Evrópu, Ástralíu og Afríku. Rafbúðin var sú fyrsta ihér á landi sem seldi kastara fyrir heimilislýsingu að sögn Sigurð- ar. Hann sagði, að síðastliðin fimm ár hefði fólk gjörbreytt hugsunarhætti í sambandi við lýsingu og leitar eftir ljósum, sem eru ljóstæknilega gerð og bjóða upp á rétta lýsingu, sem hentar á hverjum stað. INNFELLD LÝSING MIKIÐ NOTUÐ ERLENDIS NÚ Sigurður sagðist hafa verið fyrir skömmu á sýningu i Birmingham á Englandi, sem er alhliða byggingavörusýning, en Concord var einmitt þátttak- andi í þeirri sýningu. Þar voru sýndar nýjar tegundir af kast- lömpum til heimilislýsingar, sem koma eiga á markaðinn hér senn. Innfelld lýsing virðist vera meira notuð erlendis í fyrir- tækjum og stofnunum en hér á landi, að sögn Sigurðar, þar sem mikið er um fluorsentlýs- ingu. Innfelld lýsing er hlý- legri, en krefst fleiri lampa. Hana má nota á heimilum jafnt sem í fyrirtækjum og stofnun- um. Sigurður sagði einnig að fólk hér á landi nýtti sér fljótt nýj- ungar í ljósum og hér væri yfirleitt til mikið úrval af hvers kyns lömpum. Hann kvaðst ánægður með staðsetningu verslunarinnar, og telur þennan stað f ramtíðar- stað fyrir hana. Auk Kópa- vogsbúa versla þar Reykvíking- ar, Garðbæingar, Hafnfirðing- ar og jafnvel fólk sunnan með sjó. Ekki væri ástæða til að færa verslunina inn í miðbæ Kópavogs. — Það hefur lika sína kosti að vera sér. Hér eru t.d. næg bílastæði. Við munum leggja áherslu á í framtíðinni að vera með ljóstæknilega gerða lýsingu og þróunin verð- ur sú að fólk leitar eftir réttri lýsingu frekar en skrautlegri lömpum, sagði Sigurður að lok- um. Vcrzlunin Kópavogur: — Neysluvenjur og inn- kaupahættir fólks hafa breyst og sala t.d. á brauðum úr hvítu hveiti eins og franskbrauði er á undanhaldi, en hins vegar framleidd grófari brauð í miklu fjölbreyttara úrvali en áður var. Þetta sagði Guðmundur Jón- asson, verslunarstjóri m.a. í spjalli sem F.V. átti við hann, en Guðmundur rekur verslun- ina Kópavogur, matvöruversl- un í miðbæ Kópavogs, Hamra- borg 10. Mjög mikið af verslun- um er nú í hinum nýja miðbæ Kópavogs. Verslunin Kópavog- ur flutti starfsemi sína í Hamra- borgina í apríl s.l. en var áður á Borgarholtsbrautinni. Guð- mundur hefur starfað meira eða minna í matvöruverslunum í 16 ár, en rekið verslunina Kópavogur um þriggja ára skeið. TÍU ÁLAGNINGARSTIGUM UNDIR ÖÐRUM MATVÖRU- VERSLUNUM — Starfsaðstaða er hér allt önnur, en var á gamla staðnum, segir Guðmundur. Höfuðmun- urinn er að í gamla húsnæðinu mátti varla snúa sér við án þess að rekast á vegg. Þar höfð- um við aðeins 100 m2, en erum nú með 430 m2. Við lánuðum mikið í gömlu versluninni, en ég sá að ekki var hægt að ráða við það leng- ur. Þetta kom út eins og lager þar til vörurnar voru borgaðar. Þess vegna fannst mér betra eftir að við fluttum í nýja hús- næðið, að selja vöruna ódýrari og hætta að lána. Nýlenduvör- ur, sem seldar eru hér eru tíu álagningarstigum undir öðrum matvöruverslunum. Þetta á við niðursuðuvörur, hreinlætisvör- ur og pakkavörur alls konar eins og sykur og hveiti. Verslunin Kópavogur þjónar hvort tveggja í senn sem vöru- í kjötdeildinni. markaður og „kaupmaðurinn á horninu“ eins og það er oft kall- að. — Eg er þeirrar skoðunar, sagði Guðmundur að smáversl- unum fækki, en þær hverfi aldrei. En það er allt öðru vísi að reka litlar matvöruverslanir, þar þekkir maður hvern kúnna, sem kemur inn í verslunina. GOTT AÐ REKA VERSLUN í HAMRABORG — Það er mjög gott að reka verslun hér í Hamraborginni, sagði Guðmundur. Það er nýtt hér á landi í sambandi við verslanamiðstöðvar að hér í Hamraborg 10 eru 300 bíla- stæði inni í húsinu, sem er mjög til þæginda fyrir við- skiptavini FV 12 1977 45 L

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.