Frjáls verslun - 01.12.1977, Side 52
leiðslunnar. Það hefur verið
stefna í landbúnaðarmálum, að
hafa fitustig mjólkur frá bænd-
um sem hæst, þar sem þeir fá
greitt fyrir framleiðslu sina eft-
ir hitaeiningum. Þá er þess að
geta að verðlagning landbún-
aðarafurða er ekki í höndum
framleiðenda, heldur svokall-
aðrar „sex manna nefndar“.
Hún hefur starfað síðan 1943
og haft með höndum verðlagn-
ingu á landbúnaðarvörum.
Hana skipa tveir fulltrúar Stétt-
arsambands bænda og einn full-
trúi Framleiðsluráðs landbún-
aðarins, frá framleiðenda háifu
og einn fulltrúi frá Alþýðusam-
bandi fslands, einn frá Lands-
sambandi iðnaðarmanna, og
einn frá Sjómannafélagi
Reykjavíkur. Náist ekki sam-
komulag sker yfirnefnd úr, en
hún er skipuð einum fulltrúa
frá neytendum, öðrum frá fram-
leiðendum og oddamanni skip-
uðum af Hæstarétti.
ÓVENJULEG
STJ ÓRN SKIPUN
Stjórnskipun Mjólkursamsöl-
unnar er mjög sérkennileg og'
vafalaust einsdæmi í sinni röð.
Mjólkursamsalan var stofnuð
árið 1935, samkvæmt sérstök-
um lögum, sem sett voru um
dreifingu mjólkur. Harðvítugar
deilur urðu um það frumvarp
og mun óhætt að segja að vart
sé gróið um heilt eftir þær.
Að sögn Guðlaugs Ólafssonar,
skrifstofustjóra Mjólkursamsöl-
unnar, hefur fyrirtækið aldrei
fengist skráð, þar sem ekki er
um samvinnufélag að ræða,
ekki hlutafélag og ekki sam-
eignarfélag. Þannig stóðu mál
til stríðsloka ,eða þar um bil,
að menn komu sér saman um
að hér væri um að ræða sam-
band samvinnuféaga, en ekki
var þó leitað eftir skráningu
fyrir fyrirtækið og er það því
ekki að finna í firmaskrá, þó að
hér sé um að ræða umsvifamik-
Verzlunin HEIMAVER
V estmannaey jum
Hásteinsveg 43 Hólagötu 40
Sími 98 - 1366 °g Sími 1707
Kjöt og nýlenduvörur
Verið velkomin
BAKKAHRAUNI 1 — SÍMI 50300
52
FV 12 1277