Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1977, Side 53

Frjáls verslun - 01.12.1977, Side 53
ið iðnaðar- og verslunarfyrir- tæki. HVER Á MJÓLKURSAMSÖLUNA? En hver á raunverulega Mjólkursamsöluna? Þessu getur orðið erfitt að svara. Á félags- svæði Mjólkursamsölunnar, frá Skeiðará í austri, til Þorska- fjarðar í vestri, er Mjólkursam- sölunni falið, samkvæmt lögum frá 7. janúar 1935, að sjá um alla dreifingu mjólkur. Á þessu dreifingarsvæði, sem nefnt er dreifingarsvæði 1, eru fjögur mjólkursamlög, Mjólkur- bú Flóamanna, sem hefur fé- lagssvæði frá Skeiðará að vest- urmörkum Árnessýslu, Mjólk- ursamlag Kjalarnessþings, sem hefur félagssvæði að Andakílsá, Mjólkursamlag Kaupfélags Borgarfjarðar, sem nær frá Andakil um Borgarfjörð, Mýr- ar og Snæfellsnes, sunnan fjalla. Loks er Mjólkursamlagið í Búðardal, með félagssvæði norðan fjalla á Snæfellsnesi, í Dölum og vestur til Þorskafjarð- ar. Ekki er þó málið svona ein- falt. Mjólkurbú Flóamanna er samvinnufélag framleiðenda á félagssvæðinu og lang sterkast þeirra, sem aðild eiga að Mjólk- ursamsölunni. Mjólkursamband Kjalarness- þings er félag mjólkurframleið- enda á svæðinu, en hefur ekki til umráða mjólkurbú, þar sem Mjólkurstöðin i Reykjavík, þar sem þeir leggja inn framleiðslu sína, er nú í eigu Mjólkursam- sölunnar. Mjólkursamlag Kaupfélags Borgfirðinga er í rauninni ekki til. nema sem deild i Kaupfé- laei Borgfirðinga, sem rekur miólkurbúið í Borgarnesi. Full- trúar á stjórnarfundi Mjólkur- samsölunnar eru kosnir á deild- arfundi í kaupfélaginu, þar sem framleiðendur einir eru þátttak- endur. Mjólkursamlagið í Búðardal er félag framleiðenda. sem legeia inn mjólk hjá Mjólkur- búi Mjólkursamlagsins í Búðar- dal. sem er í eign Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík. TJPPGJÖR SAMEIGINLEGT FYRIR ALLA Því er um að ræða fjögur framleiðslufyrirtæki, sem leggja inn framleiðslu sína, á einn eða annan hátt, hjá Mjólk- ursamsölunni og eru tvö þeirra í eigu Mjólkursamsölunnar sjálfrar. Hin tvö leggja þar einnig inn framleiðslu sína, en fá hana ekki greidda á venju- legan hátt, þar sem öll fram- leiðslan og dreifingarkostnaður fara í sama pott og eitt sameig- inlegt uppgjör gert í senn fyrir allt svæðið. Af þessu leiðir að bóndi fær sama verð fyrir mjólkina hvort sem hún er sótt í einn kílómeter til mjólkurbús- ins, eða 150 kílómetra. Af þessu leiðir það einnig, að sé eitt mjólkurbú betur rekið en hin, græða allir bændur á svæðinu jafnt, og tapa á öðru, sem kann að vera illa rekið. 16 MENN STJÓRNA SAMSÖLUNNI Til að stjórna þessu flókna kerfi, er kosin 16 manna stjórn. Samlagsdeildirnar fjórar kjósa í hana fulltrúa, án tillits til þess, hvort þær hafa umráð yf- ir mjólkurbúi á sínu svæði eða ekki. Af svæði Mjólkurbús Flóamanna eru kosnir 9 fulltrú- ar, af svæði Mjólkursamlags Kjalarnesþings 2 fulltrúar og af svæði Mjólkursamlags Kaupfé- lags Borgfirðinga 3 fulltrúar og af svæði Mjólkursamlagsins i Búðardal 2 fulltrúar. Mjólkurbú Flóamanna hefur því hreinan meirihluta fulltrúa til aðalfund- ar Mjólkursamsölunnar, enda langstærst af samlögunum fjór- um, með 37 milljónir innveg- inna lítra árið 1976, borið sam- an við 18 milljónir lítra hjá hinum samlögunum þremur. Þessir fulltrúar kjósa fimm manna stjórn, sem er þannig skipuð að tveir menn eru af svæðum þeirra mjólkurbúa, sem samsalan á sjálf, tveir af svæði Mjólkurbús Flóamanna og einn af svæði Kaupfélags Borgfirðinga. Stjórnarmenn eru nú Ágúst Þorvaldsson, bóndi og fyrrum alþingismaður frá Brúnastöðum í Flóa, Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttar- sambands bænda. Eggert Ólafs- son, Þorvaldseyri undir Eyja- fjöllum, Oddur Andrésson, Neðri Hálsi í Kjós, og Vífill Búason, Ferstiklu í Hvalfirði. Stjórnin heldur fundi 12 til 15 sinnum á ári, eftir þörfum. HVAÐ VARÐ UM AFGREIÐSLUSTÚLKUR í MJÓLKURBÚÐUM MJÓLKURSAMSÖLUNNAR? Mikið var um það talað, þeg- ar ákveðið hafði verið að loka mjólkurbúðum Mjólkursamsöl- unnar á dreifingarsvæði henn- ar, sem náði allt frá Skeiðarár- sandi til Þorskafjarðar, hvað yrði um þær konur, sem starf- að höfðu vð afgreiðslustörf í mjólkurbúðum. í árslok 1976 störfuðu alls 175 stúlkur í mjólkurbúðum á dreifingarsvæði Mjólkursamsöl- unnar. Búðirnar voru alls 58, þar af 40 í Reykjavík. Aðrir út- sölustaðir voru mun fleiri, eða 115 talsins, þar af 45 í Reykja- vík. Að sögn Hallveigar Einars- dóttur, formanns Félags af- greiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðum, voru 159 kon- ur starfandi á félagssvæði fé- lagsins, frá Akranesi til Suður- nesja, þegar lög tóku gildi, 1. febrúar 1977, um að loka skyldi mjólkurbúðunum. Hallveig sagði að engin þess- ara kvenna væri á atvinnuleys- isskrá. Hún sagðist ekki vita um allar þessar konur, en marg- ar hefðu farið til starfa í öðr- um verslunum, aðrar á sauma- stofur og svo framvegis. Hall- veig kvaðst ekki vita annað en að allar þær, sem þess óskuðu, hefðu fengið vinnu, sem þær gætu unað. Hallveig sagði ennfremur að meiri hluti þessara kvenna hefðu verið húsmæður, enda vinnutími heppilegur fyrir þær. Óvenju lítið var um hreyfingu á starfsfólki í mjólkurbúðum Samsölunnar, að sögn Hallveig ar. Ekki virðast því hafa ræst hrakspár þeirra, sem töldu að þessar konur misstu við þessa breytingu atvinnumöguleika alla, nema ef vera kynni að prjóna peysur heima fyrir, eins og framagjarnar kvenréttinda- konur höfðu á orði, æ ofan í æ, í fjölmiðlum. FV 12 1977 53

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.