Frjáls verslun - 01.12.1977, Page 55
Henson — sportfatnaður hf.
Framleiðir 90-95% af öllum
búningum fyrir íslensk
ífiróttalið
IVIik.il þörf skapaöist þegar auglýsingar á títíningana voru leyfóar
Henson sportfatnaður hf. er eitf þeirra fyrirtækja, sem vaxið hefur úr grasi, án bess að valda
neinum sviptingum í sinni grein, enda ekki stofnað neinum til höfuðs. Því fleiri þekkja fyrirtækið
á sviði íþrótta, þar sem fyrirtækið framleiðir nú meirihlutann af þeim félagsbúningum, sem notaðir
eru hér á landi.
Halldór Einarsson í knattspyrnuleik á Laugardalsvellinum.
Aðaleigandi fyrirtækisins er
Halldór Einarsson, sem er
kunnur knattspyrnumaður í
Val mörg undanfai'in ár. Hall-
dór hóf þátttöku sína í viðskipt-
um með því, að flytja inn sport-
fatnað. Honum þótti þjónusta
fremur slök á sviði sportfatnað-
ar og vildi bæta úr því. Hann
komst fljótlega að því, að það
var fremur fánýt iðja að standa
í að panta tíu peysur og tíu
buxur og þíða síðan eftir þess-
ari sendingu, svo mánuðum
skipti. Eins og hann sjálfur seg-
ir, gaf það ekkert af sér nema
fyrirhöfn og leiðindi.
ERFITT AÐ FÁ RÉTT EFNI
Honum varð ljóst að tíma-
bært væri að hefja framleiðslu
hér, en eins og oft vill verða,
þurfti tilviljun til að úr fram-
kvæmdum yrði. Halldór rakst á
saumavélar ,sem voru falar fyr-
ir lítið og hafði upp á góðri
saumakonu og framleiðslan
hófst, úr efnum, sem framleidd
voru í Englandi.
Halldór hefur þann eigin-
leika, að muna eigin mistök, og
á ekkert erfitt með að ræða
þau. Um fyrstu framleiðsluna
hefur hann þetta að gegja:
„Skemmst er frá því að segja
að efnið reyndist svo frámuna-
lega illa, að telja verður með ó-
líkindum. Reynslan af fötunum
varð slæm og því varð ekki um
að ræða neina aukningu á við-
skiptum“. Eftir þessa erfiðu
reynslu áttaði Éfalldór sig á
því, sem ýmsum hefur reynst
erfitt að sætta sig við, sem sé
því að hann skorti þekkingu.
Eins og hann sjálfur segir, vissi
hann ekki einu sinni með vissu
hvað það hét ,sem hann raun-
verulega vantaði. Gerðar voru
tilraunir með ýmis efni, þar á
meðal íslensk, en 'nokkur tími
leið, þar til hann datt niður á
nothæft efni. Eftir það fór að
ganga betur.
Smátt og smátt fóru gæðin að
batna og Halldór segir: ,,Ég tel
að gæði ol^kar séu nú sambæri-
leg við. það sem gerist á Norð-
urlöndum, og eftir eitt ár get-
y um við framleitt jafn goðar vör-
ur og þær eru bestár hjá keppí-
nautum okkar“.
AUGLÝSINGAR SKÖPUÐU
AUKNA ÞÖRF
Það var stórt stökk í starf-
semi fyrirtækisins, þegar ís-
lenskum félagsliðum var leyft
að hafa- auglýsingár á búning-
um sínum. Þá skapaðist mikil
þörf fyrir þjónustu, sem oft
þurfti að fást með mjög skömm-
um fyrirvara. Þetta varð til þess
að nánast varð ómögulegt að
panta slika búninga erlendis frá
og nú hefur Henson fyrirtækið
með höndum 90—95% af allri
framleiðslu á búningum fyrir
íslensk íþróttalið.
Nú eru uppi áætlanir um að
sveigja í aukhum mæíi inn á
svið almenns sportfatnaðar, sem
FV 12 1977
55