Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1979, Side 69

Frjáls verslun - 01.10.1979, Side 69
Hér má sjá sýnishorn af fjölbreytni ORA, á niðursoðnum matvælum. Gamalgróið fyrir- tæki, með fram- leiðslu fyrir daginn í dag. Eitt elsta, og jafnframt stærsta fyrirtæki Kópavogs er Ora, kjöt og rengi h.f. Saga þess í Kópavogi nær allt aftur til ársins 1952 en þá flutti fyrirtækið starfsemi sína í bæinn. Fyrirtækið hefur smá aukið um- svif sín í gegnum árin en eins og flestir vita er starfssvið fyrirtækis- ins að sjóða niður hverskyns mat- væli. [ fyrstu var einungis soðið niður grænmeti, pylsur og hvalkjöt en fljótlega var fiski og fiskbúðingi bætt við og að lokum síld og gaffalbitum. Árið 1972 var hafist handa við að byggja þau húsakynni er nú hýsir starfsemina, og var ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur því að húsnæðið er mjög vandað og fullkomið að allri gerð og má nefna að það stendst ströngustu hreinlætiskröfur. Þá er til staðar mötuneyti fyrir 100 manns en nú starfa 60—80 manns hjá Ora h.f. Húsið er um 3500 m að stærð. Vélakostur Ora gæti afkastað meiru heldur en nú er en forsvars- menn fyrirtækisins hafa tekið þann kostinn að jafna vinnunni niður á allt árið. Framleiðslan er nokkuð árstíðabundin og í því sambandi má nefna að t.d. er grænmeti unnið frá því seint um haust og fram í febrúar, en þá tekur við fiskur o.þ.h. fram á vor og í maí og júní er ýmislegt súrmeti soðið niður. Ora framleiðir aðallega fyrir inn- anlandsmarkað en þar sem hann er bæði lítill og sveiflukenndur hefur fyrirtækið beint augum sín- um í æ ríkari mæli út fyrir lands- steinana. Þannig er um 20% fram- leiðslunnar flutt út í dag, aðallega til Bandaríkjanna, Bretlands og Danmerkur. Forstjóri Ora er Tryggvi Jónsson en framkvæmdastjóri er Magnús Tryggvason. Heimir og Lárus sf Vesturvör 28 Kópavogi Sími 43312 69

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.