Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 5
RITSTJORAGREIN
GÆTIORÐIÐ ÖÐRUM TIL
EFTIRBREYTNI
Aðhald, sparnaður, ráðdeild, sameining og sam-
runi eru meðal þeirra lausnarorða sem heyrast
æði oft þegar fjallað er um atvinnulíf nútímans.
Því þarf ekki að koma á óvart að spurt sé hvort
ekki væri hægt að korria við umtalsverðum sparn-
aði með sameiningu félaga og stofnana sem rekin
eru á vegum samtaka atvinnulífsins. Sparnaður
hjá forystu atvinnulífsins hlyti að hafa góð áhrif og
ætti að geta orðið öðrum til eftirbreytni.
Örn Kjærnested, formaður Verktakasambands
íslands, gerði þetta að umtalsefni á aðalfundi sam-
bandsins fyrir skömmu. Hann sagði að víða í þjóð-
félaginu væri farið illa með peninga á skipulagðan
hátt. í ræðu hans kom fram að rekstur hinna fjöl-
mörgu samtaka atvinnurekenda kosti fyrirtækin í
landinu um 700-900 milljónir króna á ári. „Hvaða
vit er í þessu?“, spurði Örn. Og hann bætti við:
„Ég tel orðið löngu tímabært að þessi mál verði
tekin til gagngerar uppstokkunar og að þessum
samtökum verði fækkað stórlega með sameiningu
eða samruna. Ymsar þreifingar hafa verið í gangi
milli manna um þessa hluti og að mínu áliti er það
aðeins spurning um tíma, hvenær búið verður að
sameina hin fjölmörgu samtök atvinnurekenda í
iðnaði í ein öflug iðnaðarsamtök með langtum
minni tilkostnaði en nú er hjá þessum félögum.
Ég tel eðlilegt að Verktakasambandið taki þátt í
slíkum málum og það hafi jafnvel forystu um að
koma þeim af stað.“
Síðar í ræðu sinni sagði formaðurinn:
„Ég legg áherslu á að nauðsynlegt sé að ræða
þessi mál af fullri alvöru og án tilfinninga, því
auðvitað eru þessi núverandi samtök okkar engin
heilög náttúrufyrirbrigði, heldur verða þau að
fylgja þeirri þróun sem á sér stað allt í kringum
okkur, bæði hér á landi og erlendis. Að öðrum
kosti er vart hægt að segja að þau gegni hlutverki
sínu eins og til er ætlast.“
Þessi orð formanns Verktakasambands Islands
eru athyglisverð. Það hlýtur að vera unnt að koma
starfsemi atvinnurekendasamtakanna fyrir á hag-
kvæmari hátt en nú er. Sameining hlyti að skila
sér í sparnaði og jafnframt öflugri og gagnlegri
samtökum. Fordæmi sem þessir aðilar hefðu for-
ystu um að skapa gætu haft góð áhrif á öðrum
stöðum í atvinnulífinu nú á tímum þegar stöðugt
er hrópað á hagræðingu, sparnað og áþreifanlegar
aðhaldsaðgerðir.
/
* 4 4^^ <1 L.)
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, súni 82300, Auglýsingasími 685380 - RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18, sími 685380 -
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.814 kr. (469 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 549 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5