Frjáls verslun - 01.03.1992, Síða 47
ein vinnustöð eða fjölnotendakerfi í
risafyrirtæki. Með VMS stýrikerfinu
gátu notendur stækkað tölvukerfi sín
í áföngum án þess að þurfa að breyta
hugbúnaði. DEC Microvax með VMS
gat auk þess minnkað þróunar- og
reksturskostnað fyrirtækja á fleiri en
einn hátt: Þótt forrit séu gerð fyrir
ólík verkefni innihalda þau oft sömu
einingar eða þætti sem ekki þarf að
skrifa nema einu sinni í VMS; þjálfun
starfsmanna varð ódýrari og auðveld-
ari þar sem umhverfið var það sama,
hvort sem kerfið var stórt eða lítið,
framboð sjálfstæðra hugbúnaðarhúsa
á kerfum fyrir DEC/VMS jókst, úr-
valið varð meira, verðið jafnvel hag-
stæðara o.s.frv.
Með Microvax komust kaupendur
á bragðið og kröfðust nú sveigjanlegri
og hagkvæmari kerfa sem aðlaga
mætti breyttum aðstæðum án þess
að breyta hugbúnaði. IBM gat ekki
uppfyllt þessar kröfur og stóð því, um
skeið, höllum fæti í samkeppni á sviði
miðlungstölva.
IBM brást við með nýju tölvukerfi,
miðlungstölvunni AS/400, og síðar,
eftir að kröfur um „opin kerfí“ bætt-
ust við kröfur um sveigjanleika, með
nýju hugbúnaðarumhverfi, SAA
(Systems Application Architecture)
sem kynnt var árið 1987. Til að gera
langa sögu stutta hefur IBM náð ótrú-
legum árangri með AS/400 en sú
tölva er af mörgum talin skólabókar-
dæmi um hvernig frábær hönnun og
tækniþekking mótast saman af þörf-
um markaðarins.
AS/400 er sveigjanlegt kerfi sem
má byggja upp í einingum með sama
stýrikerfi og hugbúnaði. AS/400 er
„opið kerfi“ samkvæmt þeim staðli,
sem notaður er í Bandaríkjunum,
(TCP/IP) og brátt samkvæmt OSI-
staðli sem notaður er í Evrópu. í SAA
umhverfinu getur notandi AS/400
undir DBMS jafnframt haft aðgang að
gögnum sem vistuð eru í IBM megin-
tölvum undir DB2, í miðlungstölvum
undir SQL/DS o.s.frv.
Nú er svo komið að sú deild IBM,
sem einungis framleiðir AS/400 í New
York-ríld í Bandaríkjunum, hefur
meira umleikis en keppinauturinn,
stórfyrirtækið DEC íMassachusetts.
Þetta sýnir m.a. að þrátt fyrir mótbyr
er tæknigeta IBM líklega meiri en
nokkurs annars fyrirtækis á tölvu-
markaðnum þótt það sé ekki ástæða
til að gera lítið úr erfiðleikum þess og
starfsmannanna en þeim hefur fækk-
að um tugþúsundir í rösklega 350
þúsund manns og mun, samkvæmt
spám sérfræðinga, fækka enn meir á
næstunni.
HAMLAR SAMKEPPNI ÞRÓUN?
Fáir efast um að samkeppni sé af
hinu góða. En spyrja má hvort sam-
keppnin eigi sér ekki endimörk þar
sem hið góða, sem af henni stafar,
snýst í andhverfu sína? Sé hugað að
ástandinu á sk. PC-markaði, hér sem
erlendis, verður ekki betur séð en að
skefjalaus samkeppni hafi bókstaflega
lagt hann í rúst. Tölvunotendur hafa
ef til vill notið samkeppninnar í lægra
verði á meðan aðrir þurftu að greiða
reikninginn fyrir niðurgreiðslurnar í
formi glataðra krafna í gjaldþrotum.
Sé litið á málið í stærra samhengi
má færa rök fyrir því að engir hafi
tapað jafn miklu og einmitt notendur
PC-tölva um víða veröld: Þeir sitja
uppi með stöðnuð kerfi sem hafa lítið
sem ekkert breyst í grundvallaratrið-
um sl. áratug vegna þess að grimmi-
leg samkeppni hefur drepið frekari
þróun í dróma.
Það nægir að líta á stýrikerfin á
Útiskilti
úr húöuöu áli meö
eöa án lýsingar
I AUGLYSINGAR - SKILTAGERÐ
| SILKIPRENTUN
SKEIFUNNI 3c - 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 68 00 20-FAX: 68 00 21
47