Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1992, Side 15

Frjáls verslun - 01.03.1992, Side 15
FRETTIR VERSLUNARRÁÐIÐ: HVERJIR FARA MEÐ MEST ATKVÆÐAMAGN? Dreifing atkvæða- magns í kosningum til stjórnar Verslunarráðs Islands er mun meiri en fram hefur komið í fjöl- miðlum að undanförnu. Rætt hefur verið um að stærstu fyrirtækin innan Verslunarráðsins hefðu svo mörg atkvæði að þau gætu ráði úrslitum í kosningum. Þetta er ekki rétt. Kosning er hlut- bundin við félagsgjöld sem eru mishá eftir veltu aðila en með þaki. Ein- staklingur innan Versl- unarráðsins ræður 13 at- kvæðum, fyrirtæki í minnsta flokki ræður 29 atkvæðum en fyrirtæki í efsta flokki ræður 302 at- kvæðum. Alls eru flokk- arnir átta talsins. I efsta flokki eru níu fyrirtæki: Búnaðarbank- inn, Eimskip, Flugleiðir, Hagkaup, Islandsbanki, Landsbankinn, OLÍS, SÍF og Skeljungur. Hvert þeirra fór með 302 at- kvæði við stjórnarkjör á síðasta aðalfundi Versl- unarráðsins. í öðrum flokki eru 23 fyrirtæki og fór hvert þeirra með 212 atkvæði á aðalfundinum: Arvakur, BYKO, Glóbus, Grandi, Hagvirki, Hekla, Herluf Clausen, IBM, Iðnlána- sjóður, Iðnþróunarsjóð- ur, Ingvar Helgason, Kristján Ó. Skagfjörð, Natan & Olsen, Prent- smiðjan Oddi, P. Sam- úelsson, Sjóvá-Almennar tryggingar, Skrifstofu- vélar-Sund, Sláturfélag Suðurlands, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenn- is, Sparisjóðurinn í Kefla- vík, Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna, Trygging- S ælkerasafarí HaLLargardsins Réttur Hallargarðsins nr. 25 H1 í}í\ ífi e^étti r Símon í' gítarleil-ca: ljúfa tónlil matargesti dags- og laugi dagskvöld kynnurn nvjar citargerðarperlur á lystilegum matseðli. Verlð velkomin á veitlngastað vandlátra Borðapantanir í síma 678555 og 30400. Iládegisverður viðskiptalífsins ltr. 990,00 Leikliústilboð: Priggja rétta k\ öldverður á aðeins kr. 1.980,00 Hallargarðurlim í Húsi verslunar armiðstöðin og Verk- smiðjan Vífilfell. Þess má geta að í kosn- ingunum nú gátu 386 að- ilar neytt atkvæðisréttar. Fram komu 149 atkvæða- seðlar. Einar Sveinsson, sem varð efstur í kosn- ingunni, hlaut 8.832 at- kvæði, en 19. og síðasti maður í aðalstjórn hlaut 3.450 atkvæði. ISLANDSBANKI: FYRIRTÆKJAÞJONUSTA Hjá útibúi íslands- banka í Lækjargötu 12 hefur máium verið skipað á þann veg að öll banka- viðskipti fyrirtækja fara fram á sérstökum stað í húsinu, aðgreind frá al- mennri bankaafgreiðslu. Þetta þykir vera mark- vissara og til þæginda fyrir viðskiptavini. Jafet Ólafsson er annar af útibússtjórum Islands- banka í Lækjargötu. Hann segir að á fyrstu hæð sé öll almenn banka- afgreiðsla og þjónusta við einstaklinga en á annarri hæð hússins sé öll þjón- usta við fyrirtæki, þar á meðal meðhöndlun á lánafyrirgreiðslu til fyrir- tækja, víxlakaup, af- greiðsla á yfirdrætti og umsjón með Skjálínu Is- landsbanka sem er bein- tenging fyrirtækja við bankann. Erlend við- skipti eru einnig á hæð- inni með allri gjaldeyris- þjónustu á sviði inn- og útflutnings. Meðal þess, Jafet Ólafsson, útibússtjóri. sem gert er til að auð- velda viðskiptavinum störfin, er að veita þeim aðgang að síma. Útibússtjórar í Lækjar- götu eru þeir Jafet Ólafs- son og Reynir Jónasson. 15

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.