Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1992, Síða 28

Frjáls verslun - 01.03.1992, Síða 28
HUSNÆÐISKERFIÐ Um helmingur útgjalda Húsnædisstofnunar á síðasta ári varð vegna greiðslna til verktaka, einkum Veðdeildar Landsbankans, Reiknistofu bankanna og annarra verktaka, einkum vegna þjónustu við tölvukerfi. vegna vanskila við Byggingasjóð rík- isins en Ríkisendurskoðun taldi þenn- an kostnað stórlega vanáætlaðan. í skýrslu Ríkisendurskoðunar haustið 1990 er sérstaklega tekið fram að við mat á raunhækkun rekstr- arkostnaðar Húsnæðisstofnunar verði að taka tillit til mikilla breytinga á starfseminni sem hafi leitt af sér stóraukin verkefni. M.a. hafi verið stofnsett ráðgjafastöð árið 1985, lög um kaupleiguíbúðir hafi tekið gildi árið 1988 og húsbréfakerfið tekið upp ári síðar. Bent er á að afgreiðsla um- sókna í húsbréfakerfmu kreþist mun meiri vinnu en áður hafi tíðkast við lánveitingar. HÁLFUR MILUARÐUR í FYRRA Þrátt fyrir athugasemdir Ríkisend- urskoðunar um mikinn rekstrar- kostnað Húsnæðisstofnunar árið 1989 virðist fátt hafa breyst í þeim efnum frá því þær voru sett á blað. Af yfirliti yfir reksturinn á síðasta ári má ráða að hann hafi kostað um 500 millj- ónir króna en á móti hafi komið sér- tekjur upp á 163 milljónir þannig að nettó rekstrarkostnaður var tæplega 350 milljónir króna. Það skal tekið fram að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Brúttókostnaður stofnunarinnar fór verulega fram úr heimildum fjár- laga fyrir árið 1991. Hann átti að nema 430 milljónum en varð 500 milljónir eins og áður sagði. Laun fóru 17 millj- ónir fram úr fjárlögum og rekstrar- kostnaður án launa og fjárfestinga fór 70 milljónir fram úr fjárlögum. Hins vegar varð nettókostnaður við rekst- urinn aðeins 6 milljónum meiri en fjár- lög gerðu ráð fyrir vegna þess að tekj- ur stofnunarinnar urðu helmingi hærri en ráð var gert fyrir. Fjárlög gerðu ráð fyrir 88 milljónum í tekjur en þær urðu 163 milljónir. Þar var um að ræða tekjur frá Innláns- og inn- heimtudeild, tekjur vegna greiðslu- seðla og loks tekjur vegna útseldrar vinnu Tæknideildar. Eins og áður sagði benti Ríkisend- urskoðun á sínum tíma á miklar greiðslur til verktaka, utan Húsnæð- isstofnunar. Ekki virðist hafa tekist að lækka þann kostnað nema að því er varðar kostnað vegna þjónustu Veð- deildar Landsbankans. Á síðasta ári fékk Landsbankinn 101 milljón fyrir sinn snúð en þar er um 4.5% raunlækkun að ræða frá reikningum ársins 1989 frá sömu stofnun. Engu að síður má það teljast furðulegt að þessi þjónusta skuli ekki hafa verið boðin út. Ragnar Önundar- son, framkvæmdastjóri hjá íslands- banka, sagðist ekki kannast við nein útboð en taldi einsýnt að aðrir bankar gætu annast þessa þjónustu ef því væri að skipta. Reiknistofa bankanna veitti Hús- næðisstofnun viðamikla tölvuþjón- ustu í fyrra ens og jafnan áður og fékk fyrir þau viðskipti 53 milljónir króna. Þar er um 45.2% raunaukningu að ræða frá árinu 1989.1 hverju sú aukn- ing liggur er erfitt að skýra á þessari stundu en vísast er þar um aukin og viðameiri verkefni að ræða. Sá liður, sem vekur hvað mesta furðu í þessu bráðabirgðauppgjöri Húsnæðisstofnunar fyrir árið 1991, er önnur aðkeypt þjónusta verktaka. Hún kostaði 99 milljónir króna í fyrra en 50 milljónir árið 1989 á þáverandi verðlagi. Raunhækkun er 53.5%! Samkvæmt heimildum Frjálsrar verslunar er hér m.a. um að ræða kostnað við rekstur tölvukerfis stofn- unarinnar en það hefur reynst gífur- lega stór liður í bókhaldi stofnunarinn- ar um margra ára skeið. Árið 1989 kostaði umsýsla tölvukerfisins 33 milljónir á þáverandi verðlagi og er 28

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.