Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 32

Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 32
HUSNÆÐISKERFIÐ „ALMNGIHEFUR ALDREIGERT ATHU - SEGIR SIGURÐUR E. GUÐMUNDSSON, FORSTJÓRIHÚSNÆÐISSTOFNUNAR „Vissulega kostar Húsnæð- isstofnun talsvert fé en hinu mega menn ekki gleyma að hér er rekin umfangsmikil starf- semi og hefur hún aukist all- verulega hin síðari árin. Við sem hér vinnum kappkostum að halda okkur innan fjáralag- arammans og það hefur í öllum meginatriðum tekist. A það ber að líta að í raun rekum við hér tvær stofnanir fyrir allt þetta fé því á síðasta ári runnu um 100 milljónir til rekstrar Veðdeild- ar Landsbankans í þessu sama húsi. Þá greiðum við verktök- um eins og Reiknistofu bank- anna og tölvufyrirtækjum stór- ar upphæðir á ári hverju.“ Þetta sagði Sigurður E. Guð- mundsson forstjóri Húsnæðisstofn- unar ríkisins í samtali við Fijálsa verslun. Hann nefndi nokkra þjón- ustuþætti hjá stofnuninni og rakti dæmi um umfang þeirra verkefna sem þeir leiddu af sér: „Húsnæðisstofnun ríkisins er í raun ein stærsta innlánsstofnun landsins því hér innheimtum við hundruð milljóna króna á ári hverju. Það starf hefur gengið ákaflega vel og hefur stofnunin ekki þurft að verja nema 10-20 milljónum á ári í afskriftir vegna tapaðra krafna. Þá veitum við unga fólkinu ókeypis þjónustu með innheimtu og vörslu á skyldusparnað- inum og hér erum við með um 50 þúsund reikninga af því tagi. Það er sem ég sæi ýmsa af bönkum landsins ná slíkum árangri. Það fylgir því auð- vitað gífurleg vinna að sýsla með tvö lánakerfi auk húsbréfadeildarinnar sem krefst mikillar pappírsvinnu. Er þá fátt eitt upp talið,“ sagði Sigurður ennfremur. En hvað segir forstjórinn um at- hugasemdir Ríkisendurskoðunar, en alvarlegar aðfinnslur voru gerðar varðandi rekstrarkostnað Húsnæðis- stofnunar í skýrslu hennar haustið 1990: „Það eru margar skýrslurnar sem berast úr stofnunum ríkisins og sum- ar æði misjafnar að gæðum. Vinir mínir hjá Ríkisendurskoðun hafa sent okkur ýmis skeyti og gert athuga- semdir um rekstur á kerfi sem starfs- menn þar hafa sínar umdeilanlegu hugmyndir um. Ég spyr á móti: Eru menn tilbúnir að axla ábyrgðina sem fylgir því að reka svona stofnun? Það er nefnilega ekki nóg að setja hug- myndir á blað. Það er erfiðara um að tala en í að komast. Sannleikurinn er sá að árið 1986 fengum við álit Lagastofnunar Há- skóla íslands á stjómskipulagi Hús- næðisstofnunar. Staðfestu hinir mætu lögfræðingar að yfir þessari stofnun sæti þingkjörin stjórn sem bæri ábyrgð á rekstri stofnunarinnar gagnvart Alþingi. Þeir vísu menn undirstrikuðu einnig það álit sitt að forstjóri stofnunarinnar bæri ábyrgð á daglegum rekstri hennar gagnvart Húsnæðismálastjóm. Með þessu tók lagastofnun af öll tvímæli um það hverjir stjómuðu hér og hverra væri ábyrgðin. Ég hef starfað hjá þessari stofnun í hartnær þrjá áratugi og átt ákaflega gott sam- starf við Húsnæðismálastjórn á hverj- um tíma. Alþingi hefur aldrei gert at- hugasemdir við rekstur þessarar stofnunar og meðan mál ganga fram með eðlilegum hætti, hef ég ekki áhyggjur af skeytasendingum utan úr bæ. Slík upphlaup koma með nokkuð reglulegu millibili og lítið við því að gera.“ Sigurður sagði að 60 manns störf- uðu hjá Húsnæðisstofnun og Veð- deild Landsbankans. „Við erum með tæknideild, lögfræðideild og hús- bréfadeild, sem allar standa undir sér. Ég tel raunar að gjaldtöku megi auka verulega hjá stofnuninni og það mun reynast mögulegt að innheimta þær 100 milljónir upp í rekstrarkostn- að, sem okkur er gert að standa skil á í sparnaði til ársloka 1993.“ 32

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.