Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 37
Með innflutningi landbúnaðarvara þarf að minnka framleiðsluna innanlands.
heimild til innflutnings á afurðunum.
Með uppboði á innflutningsleyfum er
komið í veg fyrir hugsanlega spillingu
og kostnað henni samfara auk þess
sem komið er í veg fyrir að þau fyrir-
tæki, sem fengju úthlutað innflutn-
ingsleyfi, eins og algengt var, geti
notið einokunargróða - þau þurfa að
bjóða í eins og allir aðrir.
Innflutningskvótar á landbúnaðar-
afurðir geta aldrei orðið til frambúðar.
Nauðsynlegt er að huga að öðrum
leiðum eftir að eðlilegum aðlögunar-
tíma innlendra bænda er lokið. Upp-
boð á innflutningsleiðum tel ég þó
vera farsælustu leiðina ef takmarka á
verulega innflutning landbúnaðaraf-
urða með innflutningskvótum.
ÍSLENSK GÆÐAVARA
STENST SAMKEPPNI
Það er mörgum spurningum ósvar-
að í sambandi við framtíð landbúnaðar
á íslandi. Ef heimilaður verður inn-
flutningur á landbúnaðarvörum þá
þarf að minnka framleiðslu innanlands
svo ekki safnist upp birgðir. Nauð-
synlegt er að reyna að draga úr fram-
leiðslu þar sem rekstur er óhag-
kvæmur. Auðvitað væri best að leyfa
neytendum (markaðnum) að ráða því
hvaða bændur muni halda áfram bú-
rekstri. Þannig náum við upp sterk-
um kjama af bændum sem búa á gjöf-
ulum jörðurn og græða vel á innlendri
landbúnaðarframleiðslu sem án efa
mun standast erlenda samkeppni
vegna gæða sinna og sérkenna.
Á næstu árum mun án efa verða á
boðstólum innlendra verslana gott úr-
val af landbúnaðarafurðum frá ýmsum
löndum, þ.á.m. Danmörku og Nýja
Sjálandi. Ef það þykja sjálfsögð rétt-
indi fólks að fá að neyta landbúnaðar-
afurða frá ýmsum löndum þá eru það
ekki síður sjálfsögð réttindi neytenda
að fá að velja úr vöruflokkum eftir
verði. Þeir neytendur, sem hafa
minna fé á milli handanna eða stórar
fjölskyldur, mundu vel þiggja að
kaupa landbúnaðarafurðir fyrir lægra
verð en nú er - jafnvel þótt þær afurð-
ir væru ekki íslenskar. Eðlilega toll-
aður og kvótalaus innflutningur á
landbúnaðarafurðum er eina færa
leiðin ef bæta á fjárhagslegan hag
neytenda og ekki síst þeirra sem
minnst mega sín. Þar er sannarlega
þörf á.
Skiltakerfi
til merkingar
f innanhúss
% AUGLYSINGAR - SKILTAGERÐ
| SILKIPRENTUN
SKEIFUNNI 3c - 108 REYKJAVÍK
SlMI: 68 00 20 - FAX: 68 00 21
37