Frjáls verslun - 01.03.1992, Blaðsíða 40
STJÓRNUN
og mjög auðvelt að kalla þær fram.
Mikill fjöldi hugbúnaðar-„pakka“
fyrir hermilíkön er á markaðnum. í
þessu sambandi má benda á að í lista
nokkrum yfir hermihugbúnað frá ár-
inu 1987 má finna um 150 forritunar-
mál ásamt þeirra kröfum til vélbúnað-
ar og upplýsingar um verð og söluað-
ila. Mörg þessara hugbúnaðarfyrir-
tækja standa einnig fyrir tíðum
þjálfunarnámskeiðum.
AÐKOMAÍVEG FYRIR MISTÖK
Sem dæmi, þar sem gott hermilík-
an hefði getað fyrirbyggt mistök, er
saga af ungum verkfræðingi sem
gerði, upp á eigin spýtur, hermilíkan
af fyrirhugaðri stækkun á verksmiðju
bandarísks fyrirtækis er hann var til-
tölulega nýráðinn hjá. Líkan hans
sýndi fram á að fyrirtækið hafði rang-
lega tilgreint flöskuhálsa í verksmiðj-
unni. Er upp var staðið kom í ljós að
hann með líkani sínu hafði á réttu að
standa en fyrirtækið með allt sitt lið af
verksmiðjustjórum, verkfræðingum
og allskyns sérfræðingum hafði rangt
fyrir sér. Stækkun verksmiðjunnar
reyndist hafa lítið að segja fyrir heild-
ar afkastagetuna og var því í raun
aðeins eyðsla upp á 50-60 milljónir
króna. Reynslusögur á borð við þessa
heyrast oft. Það er óhætt að fullyrða
að í mörgum tilvikum gætu tveir til
þrír stúdentar við nám í framleiðslu-
stjórnun, vopnaðir hermiforritum,
auðmýkt heilan her af verkfræðingum
og öðrum sérfræðingum í aðgerða-
rannsóknum (O.R.) sem ekki not-
færðu sér þessa tækni.
Það, sem meðal annars er illt við-
ureignar í aðgerðarannsóknum þegar
verið er að setja upp stærðfræðileg
líkön af framleiðslukerfum, eru atriði
eins og ef seinkun verður á einum
stað í kerfmu þá hefur það oft áhrif á
marga aðra þætti. Sama gildir um
ýmsar skyndilegar og mislangar
stöðvanir, t.d. vegna bilana og/eða
matarhléa, en þessi atriði eru auðveld
viðureignar við gerð hermilíkana. Þá
er sá kostur hermilíkana fram yfir
stærðfræðileg líkön að ekki þarf að
gera ráð fyrir stöðugu ástandi (steady
state), þ.e. eins og kerfið sé stöðugt í
gangi allan sólarhringinn og hafi því
engin gangsetningar eða stöðvunar
tímabil sem eru frábrugðin þeim tíma
þegar ná á fullum afköstum. Auðvitað
er það algengast að framleiðsla hefjist
að rnorgni en ljúki að kvöldi, oftast
með allskonar stöðvunum og breyti-
legum afköstum þar á milli.
NIÐURLAG SEINNIHLUTA
Það er sem sagt hægt að koma
fyrir í hermilíkani flóknum innri sam-
böndum kerfis á raunhæfari hátt en
mögulegt er í stærðfræðilegu líkani
þar sem oft verður að einfalda margt
til að gera hlutina viðráðanlegri. Eftir
því sem tillit er tekið til fleiri atriða,
smárra sem stórra, þá verður komist
nær raunveruleikanum og niðurstöð-
urnar þeim mun betri.
Hermilíkön sýna oft fram á að dýrar
fjárfestingar eru ekki alltaf nauðsyn-
legar heldur væri hægt að ná fram
miklu meiri og betri árangri fyrir fyrir-
tækið með breyttum áætlunum,
breyttum vinnureglum eða bættri
nýtingu á fyrirliggjandi framleiðslu-
getu.
LAUGARASVEGI 1 S. 678767
40