Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1992, Síða 56

Frjáls verslun - 01.03.1992, Síða 56
TOLVUMARKAÐURINN Magnús S. Norðdahl. ÞAÐ ÞARF AÐ SKILGREINA ÞARFIRNAR - SEGIR MAGNUS S. NORÐDAHL HJA ACO HF. auk þess sem nú eiga sér stað mjög örar breytingar í hugbúnaði sem notfærir sér aukin afköst og lækkandi verð einkatölv- anna.“ Sveinn Áki sagði að þeir hjá Sameind hf. hefðu ávallt leitast við að fylgja nýjungum eftir og bjóða viðskiptavinum sínum eins fullkomin tæki og völ væri á á hverjum tíma. „Að undanfömu hafa tölvunotendur aukið kröfur um vinnuvistlegan tölvubún- að, þ.e. varðandi hávaða, útgeislun, raf- segultruflanir og annað sem hefur áhrif á vinnuskilyrði fólks. Við teljum okkur hafa á boðstólum bestu tæknina á þessu sviði. Má þar nefna NEC prentarana sem em afar hljóðlátir, nýja gerð af NEC skjám sem em gerðir með ítmstu kröfur neyt- enda í huga og vom valdir sem „Fram- leiðsla ársins“ af PC Magazine á síðasta ári,“ sagði Sveinn Aki að lokum. MINOLTA Netta Ijósritunarvélin sem ekkert fer fyrir Lítil og handhæg vél sem ávallt skilar hámarksgæðum. Auðveld í notkun og viðhaldi. Tekur ýmsar gerðir og stærðir pappírs. Sterk vél sem óhætt er að reiða | sigá. Útkoman verður oaðfimanleg með < Minolta EP-30 KJARAN Síðumúla 14,108 Reykjavik, s (91) 813022 „Ég held að samruni tölvufyrirtækja hérlendis sé ekki bein orsök sam- runa sem hefur orðið hjá framleið- endum erlendis. Hins vegar hefur samkeppni um heim allan farið harðnandi og þar er Island engin undantekning. Þeir, sem ekki reka sín fyrirtæki með markvissri ákvarðanatöku og stefnumótun, vakna einn daginn upp við það að þeir eru ekki samkeppnishæfir. Þá er það allra hagur að siík fyrirtæki verði tekin yfir af einhverjum sam- keppnisaðilanum,“ sagði Magnús S. Norðdahl hjá ACO hf. „Við hjá ACO höfum frá stofnun fyrir- tækisins fyrir 16 árum séð mörg tölvufyr- irtækin koma og fara. Við höfum fylgt þeirri stefnu að stækka ekki of hratt held- ur jafnt og þétt en leggja áherslu á góða þjónustu og ánægða viðskiptavini. A síð- asta ári jókst velta fyrirtækisins talsvert og skilaði mjög góðum hagnaði." Magnús sagði það sína skoðun að ekki hafi verið um offjárfestingu í tölvubúnaði að ræða hjá íslenskum fyrirtækjum en hins vegar hefðu sum þeirra gert mistök af því tagi að ráðast í tölvuvæðingu án nægjan- legs undirbúnings. Mikilvægast væri að skoða og skilgreina þarfimar í dag og átta sig á því hvaða þarfir búnaðurinn þyrfti að uppfylla í framtíðinni. „Af nýjungum hjá okkur er hægt að nefna ótalmörg dæmi. Nýlega tókum við að okkur umboð fyrir Legacy Storage Systems en þeir bjóða upp á fullkomnar lausnir í rekstraröryggisbúnaði fyrir net- kerfi. Þar er um að ræða MASS diska- tuma sem innihalda SCSI harða diska með allt að 12 GB geymslurými, afritunarstöð, CD-ROM drif og „optical" diska. Þessir tumar geta tengst DOS, OS/3, SCO Xen- ix, Unix og Novell NetWare. Þá bjóðum við sem fyrr Seagate harðdiska í flestar gerðir PC tölva, Macintosh, Unix, DEC, RS/6000 og Sun með gleymslurými frá 40 MB upp í 3 GB. Nú er Seagate að kynna nýja kynslóð af diskum en þeir em afar smáir með allt að 130 MB geymslurými." Magnús agði að ACO hf. hefði lengi sérhæft sig í þjónustu prentiðnaðarins. Með tilkomu PostScript og umbroti á PC tölvur hefði slík vinnsla færst töluvert inn í hefðbundin fyrirtæki. ACO hefði nýlega kynnt QMS PS 1700 geislaprentarann en hann væri einn fjölhæfasti laserprentari í heiminum í dag. „Loks má nefna að við höfum stigið stórt skref í þjónustu við notendur fax- tækja á íslandi með hjálp tölvutækninnar. í samvinnu við RICOH Inc. hefur ACO hf. sett upp fjarvinnslustöð fyrir faxtæki. Með hjálp hennar geta tæknimenn okkar náð sambandi við faxtæki í gegnum síma- móthald og greint bilanir, gert við þær og forritað og sett upp faxtæki samkvæmt óskum hvers og eins. Með þessari tækni getum við afgreitt um 75% allra þjónustu- beiðna sem berast vegna faxtækja án þess að viðskiptavinir okkar þurfi að koma með tækin á verkstæði ACO hf.“ 56

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.