Frjáls verslun - 01.07.1993, Side 22
FORSIÐUGREIN
bankastjóri var með 887
þúsund í tekjur á mánuði í
fyrra á núverandi verðlagi.
ar á milli ára. Niðurstaðan
er að tekjur þeirra jukust
um 3,1% umfram hækkun
launavísitölu á sama tíma.
Meðalmánaðartekjur þeirra
árið 1991 voru 667 þúsund
en 710 þúsund krónur í
fyrra.
STJÓRNENDUR STÓRRA
RÍKISFYRIRTÆKJA
Halldór Jónatansson,
forstjóri Landsvirkjunar,
vermir toppsætið í flokki
stjómenda stórra ríkisfyrir-
tækja eins og hann hefur
raunar gert á undanförnum
árum. I öðru sæti er Hösk-
uldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR. Hér má skjóta því
inn í að Jón Sigurðsson, for-
stjóri Jámblendiverksmiðj-
unnar á Grundartanga, er í
flokki framkvæmdastjóra í
einkageiranum þar sem rík-
ið á verksmiðjuna að hluta.
Ef Jón hefði verið flokkaður
hér hefði hann lent í öðru
sæti.
Alls eru 10 stjórnendur
ríkisfyrirtækja eða stofnana
á listanum að þessu sinni.
Þeir voru 8 í fyrra. Tekjur
þessa hóps minnkuðu örlít-
ið á milli ára. í samanburð-
inum voru tekjur sömu 6
framkvæmdastjóranna
skoðaðar bæði árin. Meðal-
mánaðartekjur þeirra
minnkuðu um 1,0% að raun-
virði.
Valur Valsson, banka-
stjóri Islandsbanka, var
með 751 þúsund í tekjur á
mánuði í fyrra á núverandi
verðlagi.
BJÖRGVIN VILMUNDARSON
ER BANKAKÓNGURINN
Björgvin Vilmundarson,
bankastjóri Landsbankans,
er hinn ótvíræði banka-
kóngur í tekjum. Hann
vermir toppsætið nú eins
og áður. Sveinn Jónsson,
aðstoðarbankastjóri Bún-
aðarbankans, er í öðru
sæti. Sverrir Hermanns-
son, bankastjóri Landsban-
kans er í þriðja sæti. Af
þessu má ráða að Sveinn
Jónsson var með hærri
skattskyldar tekjur á síð-
asta ári en aðalbankastjórar
Búnaðarbankans.
Alls eru 46 stjórnendur
banka, sparisjóða og fjár-
málafyrirtækja á listanum
núna. Þeir voru 29 á listan-
um í fyrra.
ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON
MEÐA ALGERA SÉRSTÖÐU
í flokknum um kunna at-
hafnamenn er Þorvaldur
Guðmundsson í Sfld og fisk
með algera sérstöðu eins
og áður. Það er í raun ekki
frétt að Þorvaldur sé efst-
ur, það væri frekar frétt
væri hann ekki efstur. Þor-
valdup er með helmingi
hærri tekjur en næsti mað-
ur á listanum, Skúli Jóhann-
esson, verkfræðingur og
fyrrum aðaleigandi verk-
fræðistofunnar Strengs.
Hann seldi stóran hluta af
eign sinni í fyrirtækinu á
síðasta ári. í þriðja sæti er
Guðmundur Kristinsson
múrarameistari. Jón Ás-
björnsson, fiskútflytjandi,
er í fjórða sæti.
Sonur Þorvaldar
Guðmundssonar, Skúli í
Hótel Holti, sem var í öðru
sæti listans í fyrra vermir
3. Stjórnendur banka og
fjármálafyrirtækja
Björgvin Vilmundarson, bankastj. Landsb. 12.955 1.080 1.096
Sveinn Jónsson, aðstoðarbankastj. Búnaðarb. 10.682 890 904
Sverrir Hermannsson, bankastj. Landsb. 10.476 873 887
Sólon Sigurðsson, bankastj. Búnaðarbankans 10.281 857 870
Stefán Pálsson, bankastj. Búnaðarbankans 10.064 839 852
Jóhannes Nordal, fyrrv. Seðlabankastjóri 9.460 788 801
Halldór Guðbjarnarson, bankastj. Landsb. 9.427 786 798
Jón Adólf Guðjónsson, bankastj. Búnaðarb. 9.238 770 782
Gunnar Helgi Hálfdanarson, forstj. Landsbréfa 9.018 752 763
Björn Björnsson, bankastjóri íslandsbanka 8.996 750 761
Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstj. SPRON 8.903 742 753
Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka 8.871 739 751
Tómas Árnason, bankastj. Seðlabankans 8.854 738 749
Tryggvi Pálsson, bankastj. íslandsbanka 8.717 726 738
Ragnar Önundarson, frkvstj. íslandsbanka 8.650 721 732
Bragl Hannesson, frkvstj. Iðnlánasjóðs 8.577 715 726
Þorgeir Eyjólfsson, Lífeyrissjóði Verslunarm. 7.801 650 660
Jóhannes Siggeirsson, frkvstj. Sameinaða líf. 7.511 626 636
Brynjólfur Helgason, aðstoðarbstj. Landsbank. 7.245 604 613
Sigurður B. Stefánsson, frkvstj. VÍB 7.099 592 601
Kristján Óskarsson, frkvstj. Glitnis 7.088 591 600
Björn Líndal, aðstoðarbankastj. Landsbankans 7.015 585 594
Jóhann Ágústsson, aðstoðarbankastj. Landsb. 6.780 565 574
Stefán Pétursson, aðstoðarbankastj. Landsb. 6.555 546 555
Guðmundur Hauksson, frkvstj. Kaupþings 6.440 537 545
Már Elisson, forstjóri Fiskveiðisjóðs 6.421 535 543
Kristinn Zimsen, aðstoðarbankast. Búnaðarb. 6.283 524 532
Birgir ísleifur Gunnarsson, bankastj. Seðlab. 6.269 522 531
Friðrik Jóhannsson, forstj. Fjár.fél. Skandia 6.196 516 524
Þorvarður Alfonsson, forstj. Iðnþróunarsjóðs 6.157 513 521
Jónas Reynisson, sparisstj. Sþarisjóðs Hafn. 5.973 498 505
Hrafn Magnússon, frkvstj. Samb. lífsj., SAL 5.606 467 474
Einar S. Einarsson, frkvstj. VISA Islands 5.526 461 468
Sigurgeir Jónsson, frkvstj. Lánasýslu ríkis. 5.423 452 459
Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðast. 5.397 450 457
Gunnar Baeringsson, frkvstj. EUROCARD 5.329 444 451
Helgi Jónsson, útib.stj. Landsb. á Akureyri 5.131 428 434
Þórður Ingvi Guömundsson, frkvstj. Lindar 5.122 427 433
Kjartan Gunnarsson, frkvstj. Féfangs 4.980 415 421
Jón Hallsson, Lífeyrissjóði verkfræðinga 4.694 414 420
Gunnlaugur M. Sigmundss. fv. forstj. Þróunarf. 4.858 405 411
Ásmundur Stefánsson, ASÍ '92, nú islandsbanka 4.720 393 399
Ólafur Helgi Ólafsson, frkvstj. Lýsingar 4.660 388 394
Edda Helgason, frkvstj. Handsals 4.545 379 404
Þorsteinn Ólafs, frkvstj. Verðb. Samv. 4.441 370 376
Ásgrímur Hilmisson, útibstj. Búnb. Akureyri 3.453 288 292
22