Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1993, Blaðsíða 41

Frjáls verslun - 01.07.1993, Blaðsíða 41
um á herðar? Það getur leikið á tveimur tungum. Ogþaðert.d. þama sem álitaefnin verða siðferðileg. Hvað er rétt breytni og hvað er röng, hvernig eiga menn að hegða sér þann- ig að þeir starfi í anda laganna en ekki aðeins eftir þerum bóksta- fnum? tuttugu og jafnvel vel á þriðja tug sumstaðar. Þetta leiðir hugann að frægri setningu Parkinsons þess efn- is að í hópstarfi hafi of mikill fjöldi þátttakenda lamandi áhrif á afköst heildarinnar. Rannsóknir hans bentu Hlutverk stjórnarmanna að mati þeirra sjáifra LITIÐ REYNTAAÐMENN SVARIFYRIR STJÓRNARSTÖRF Það er vel hægt að hugsa sér stjórnarmann sem strangt til tekið fer eftir þeim skyldum sem lögin segja fyrir um, en er samt sem áður næsta afleitur stjómarmaður. Hann kann að mæta óundir- búinn á hvern einasta stjórn- arfund, leggur ekkert til mála, rétt kinkar kolli þegar mál eru borin upp til sam- þykktar og felur eitt í brjósti sér en talar annað þegar hann er inntur álits. Nú, eða að við- komandi er með afbrigðum smámunasamur þannig að all- ir stjórnarfundir leysist upp í deilur um keisarans skegg. Upp á þessa ímynduðu menn hafa lögin strangt til tekið ekkert að klaga. En fyrirtækið kann að líða fyrir slíka háttsemi og þá er enn og aftur komið að siðferðilegu ábyrgðinni. Hugsanleg hegning, ef stjórnarmenn standa ekki í stykkinu, er þó sú að þeir taki pokann sinn. Slíkar kárínur eru hinsvegar fáheyrð- ar. Það hefur lítið reynt á að menn svari fyrir stjórnarstörf sín hér á landi. AF ERLENDUM VETTVANGI í Bandaríkjunum og Bretlandi eru höfuðstjómkerfi fyrirtækja með sama sniði og hér á landi þ.e.a.s. kerfið er einfalt. Ein stjóm sem lýtur valdi hlut- hafafunda. Þrátt fyrir það eru álitamál varðandi stjórn fyrirtækja af talsvert öðrum toga en hér á landi. í fyrsta lagi eru risafyrirtæki algeng erlendis. Stjórnirnar draga óhjákvæmilega dám af því. Ekki er óalgengt að fjöldi stjórnarmanna í meðalstórum og stærri fyrirtækjum sé á þilinu tíu til \ Stefnumótun Ráða forstjóra. Meta frammi- stöðu hans. Eftirlit. (Að markmið náist). Gæta hagsmuna hluthafa. Taka stærri ákvarðanir, eins og sölu fasteigna. Veita forstjóra ráðgjöf. Þetta er mat stjómarmanna og forstjóra í könnuninni um hlutverk stjórna í hlutafélögum. til þess að þegar fjöldi fólks í hópi sé á bilinu 19-22, þá taki að myndast minni hópur innan heildarinnar sem taki að sér hlutverk hennar. Afgangur upp- runalega hópsins verður áhorfandi. Af þessum sökum meðal annars er algengt að settar séu á stofn nefndir innan stjórna, sem hafa tiltekin við- fangsefni á sinni könnu. Þær eru svo- kallaðar „ad hoc“ nefndir. Þannig er komið á verkaskiptingu í því skyni að virkja stjórnina. Annar megintilgang- ur með nefndunum er sá að gefa utan- aðkomandi stjórnarmönnum (outsid- ers), tækifæri til að fylgjast grannt með einstökum málefnum fyrirtækis- ins. ÞRÍR FJÓRÐU UTANAÐKOMANDI Eitt helsta umfjöllunarefnið erlend- is er samsetning stjórna með tilliti til innan- og utanbúðarmanna. Dæmi- gerð stjórn í bandarísku fyrirtæki er þannig samsett að þrír fjórðu stjórn- armanna eru utanbúðarmenn. í Bret- landi er slagsíðan hinsvegar á hina hliðina. Þar er hlutfallið einungis einn þriðji. Þess ber að geta að þróunin í Bandaríkjunum síðustu tvo til þrjá áratugi hefur stefnt að vaxandi vægi utanbúðarmanna. Nánast öll umræða hefur hnigið í þá átt. Það er talið mun árangursríkara að hafa fleiri en færri utanbúðarmenn. Með því sé stjómin mun fær- ari um að rækja eftirlitshlut- verk sitt, þótt ekki væri ann- að. Þessi umræða er nánast óþörf hér á landi, því í opnum hlutafélögum heyrir til undan- tekninga ef daglegir stjórn- endur sitja í stjóm þess fyrir- tækis sem þeir starfa hjá. Þar á ofan stendur til að binda í lög að meirihluti stjórnar megi ekki vera framkvæmda- stjórar viðkomandi fyrirtæk- is. SLÆMT EF STJÓRNARFORMAÐUR ER LÍKA FORSTJÓRI Obbinn af engilsaxneskum stjórnum er því marki brenndur að sami maðurinn er í senn forstjóri og stjómarformaður. Á lista Fortune tímaritsins yfir 500 stærstu iðnfyrirtæki Bandaríkjanna reyndust yfir 85 af hundraði fyrirtækja hafa slíkt fyrirkomuiag. Og það verður að segjast að það er langt í frá einhugur um að á þennan veg séu hlutirnir í réttu horfi. Fjölmargir gagnrýna þetta fyrirkomulag á þeim forsendum að þessi hlutverk fari ekki vel saman, því öðrum aðilanum sé ætlað að hafa auga með hinum. Eitt af hlutverkum stjórna sé að ráða og reka forstjóra. Miklu erfiðara sé að standa að upp- sögn ef forstjóri er jafnframt lykil- maður stjórnar og nánast ógerningur ef hann hefur tögl og hagldir. Það sé öllum fyrir bestu að forstjóri hafi að- hald, hversu góður sem hann kunni að vera. Engar heilagar kýr séu lengur í viðskiptum. Því til staðfestingar benda þeir á að nýlega hafi forstjórar IBM, Westinghouse og American Express hlotið skell fyrir skildinga. Þeir sem bregðast verst við þessari gagnrýni eru lykilmennirnir sjálfir. Mótbáran er sú að það þurfi umfram allt einingu til þess að leiða stórfyrir- 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.