Frjáls verslun - 01.07.1993, Page 58
TOLVUR
FRAMTÍÐIBM AS/400
Sá orðrómur hefur verið á sveimi
að væntanlegur væri arftaki hins vin-
sæla AS/400 tölvukerfís sem slegið
hefur flest met í sölu miðlungstölva
(midi) undanfarin ár. Ástæðan er
sögð vaxandi þörf fyrir opnari kerfi og
aukin notkun Unix og því hlyti að
koma að því að AS/500 sæi dagsins
ljós.
IBM hefur gefíð yfirlýsingu um að
AS/400 línan verði í fullu gildi sem
söluvara fyrirtækisins a.m.k. næstu
5 ár. Orðrómurinn virðist því ekki
eiga við rök að styðjast. Yfirlýsinguna
gaf helsti hönnuður kerfisins, Dr.
Frank Soltis, á hátíðarfundi sem hald-
inn var í Rochester í Minnesota í júlí
sl. í tilefni þess að þá voru liðin 5 ár
síðan AS/400 tölvukerfið kom á mark-
Nýherji er með umboð fyrir IBM á íslandi. Nú hefur IBM í Bandaríkjunum
gefið yfirlýsingu um að AS/400 línan verði í fullu gildi sem söluvara að
minnsta kosti næstu fimm árin.
H-Laun
Heildarlausn sem einfaldar
Launabókhald
Og það máttu bóka!
TÖLVUmiÐLUn
Tölvumiðlun hf,
Grensásvegi 8,
Sími:68 88 82
O
o
ú
£
CL
aðinn. Á tímabilinu hafði IBM selt
rúmlega 200 þúsund AS/400 víðsveg-
ar í heiminum, 7500 af þeim í Bret-
landi.
„Það kunna að vera nýjar gerðir á
leiðinni, jafnvel með breytt útlit“,
sagði Dr. Soltis, „en þau kerfi munu
áfram nefnast AS/400. Hvers vegna
ættum við að hætta við kerfi sem
gefur af sér 1000 milljóna hagnað á
hverju ári?“.
Á fundinum upplýsti Dr. Soltis
m.a. að innan tveggja ára væri þess
að vænta að öll AS/400 línan yrði með
64ra bita Risc-högun - þeirri sömu og
nú væri boðin í sk. „IBM Power PC“
og 1995 myndi AS/400 verða boðin
með öflugasta gjörva sem nokkru
sinni hefur verið notaður í IBM-tölvu.
Soltis var spurður að því hvort
AS/400 myndi geta keyrt Unix stýri-
kerfið (Aix) í náinni framtíð og svaraði
með því að spyrja á móti; „hver ætti
að hafa áhuga á því?“ og bætti því
síðan við að enginn áhugi væri fyrir
Unix sem stýrikerfi fyrir AS/400 jafn-
vel þótt það væri hægt.
Þá kom fram að staða AS/400 á
markaðnum hefði verið styrkt enn
frekar með því að IBM hefði boðið
400 helstu hugbúnaðarhúsum, sem
þróa hugbúnað fyrir AS/400, beinan
aðgang að prófunardeildum sínum.
58